Morgunblaðið - 10.12.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 10.12.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018 Veður víða um heim 9.12., kl. 18.00 Reykjavík 1 alskýjað Hólar í Dýrafirði 3 súld Akureyri -6 skýjað Egilsstaðir -3 alskýjað Vatnsskarðshólar 1 alskýjað Nuuk -9 skýjað Þórshöfn 1 léttskýjað Ósló 0 heiðskírt Kaupmannahöfn 6 skúrir Stokkhólmur 4 súld Helsinki 4 rigning Lúxemborg 6 skýjað Brussel 8 súld Dublin 8 léttskýjað Glasgow 4 léttskýjað London 9 léttskýjað París 10 skýjað Amsterdam 8 skúrir Hamborg 7 skýjað Berlín 7 skýjað Vín 7 skýjað Moskva -3 snjókoma Algarve 19 heiðskírt Madríd 4 þoka Barcelona 16 heiðskírt Mallorca 19 heiðskírt Róm 14 léttskýjað Aþena 15 léttskýjað Winnipeg -17 heiðskírt Montreal -6 snjókoma New York 0 heiðskírt Chicago -3 þoka Orlando 21 rigning  10. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:08 15:34 ÍSAFJÖRÐUR 11:50 15:02 SIGLUFJÖRÐUR 11:35 14:43 DJÚPIVOGUR 10:46 14:55 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Suðaustan 15-23 m/s, hvassast NV-til og víða talsverð rigning, en styttir upp norðanlands. Á miðvikudag Sunnan og suðaustan 8-13 m/s hvessir S-lands. Skúrir eða slydduél víða um land. Vaxandi suðaustanátt, 15-25 m/s síðdegis, hvassast við fjöll SV-til og fer að rigna á láglendi, snjókoma eða slydda NV-til, en úrkomulítið NA-lands. Lægir og rofar til SV-til seint í kvöld. FALLEG OG VÖNDUÐ LEIKFÖNG Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 úr náttúrulegum efnivið, tré og silki Kíktu á netverslun okkar bambus.is Morgunblaðið/Eggert Minningar Ferðamenn skrásetja augnablikið við Reykjavíkurhöfn. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Bókunartímabilið fyrir árið 2019 fer aðeins betur af stað en það gerði fyr- ir árið 2018. Það er engin ástæða til að mála skrattann á vegginn,“ segir Sævar Skaptason, framkvæmda- stjóri Hey Iceland, um stöðuna. Því sé útlit fyrir að árið 2019 verði gott ár í ferðaþjónustu. Það verði þó ekki jafn gott og árin 2015 og 2016 sem hafi verið með afbrigðum góð í ferðaþjónustunni. Sævar hefur áratuga reynslu af skipulagningu ferða fyrir erlenda ferðamenn. Fyrirtæki hans er ferða- skrifstofa og ferðaheildsala. Bænda- ferðir heyra undir fyrirtækið. Haft var eftir honum í Morgun- blaðinu í maí síðastliðnum að 25% samdráttur væri í bókunum frá Evrópu og evrusvæðinu. Bókunar- staðan frá Bandaríkjunum væri að vísu betri, eða svipuð og í fyrra. Hátt verðlag slær á eftirspurn Sævar segir styrkingu krónu og hækkandi verðlag á Íslandi megin- skýringuna á þessum samdrætti. Nú séu hins vegar vísbendingar um að eftirspurnin frá Evrópu sé farin að glæðast í kjölfarið á veikingu krónunnar. Síðustu mánuðir ársins hafi verið í rólegri kantinum. Sú breyting sé merkjanleg á eftirspurn að bókanir séu með styttri fyrirvara. „Það er vandamál að við ákveðum verðið ár fram í tímann. Þegar við vorum að reikna út tilboð í ágúst síð- astliðnum fyrir árið 2019 var krónan ekki farin að gefa eftir. Á mörgum sviðum erum við búin að gefa út verð til erlendra endursöluaðila sem var reiknað út frá öðru gengi. Þegar við reiknuðum út verðið í ágúst kostaði evran um 125 krónur en kostar nú 138 krónur. Við erum strax farnir að leiðrétta verðið eftir föngum.“ Sævar bætir því við að ef gengis- veiking krónunnar verður viðvar- andi skapist skilyrði til að endur- reikna verðið enn frekar. Það muni aftur styrkja samkeppnisstöðu ferðaþjónustunnar. Stjórnendur í ferðaþjónustu vilji sjá hvernig fram- haldið verður hjá WOW air áður en þeir gera áætlanir til lengri tíma. Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri segir framboð flug- sæta hafa mikil áhrif á fjölda ferða- manna. Óvissa sé um þetta framboð á næsta ári. Meðal annars vegna samningaviðræðna WOW air. Almennt megi segja að ef evran kostar 140 krónur eða meira séu skil- yrði til vaxtar í íslenskri ferðaþjón- ustu hagstæð. Sé gengið mikið sterk- ara sé síður raunhæft að greinin vaxti hratt á næstu árum. Nýjar tölur Seðlabankans sýna að raungengið hefur gefið eftir í haust. Betri bókunarstaða en í fyrra  Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofu segir vísbendingar um að veiking krónu hafi örvað eftirspurnina  Ferðamálastjóri segir hagstæð skilyrði til vaxtar í greininni ef evran kostar 140 krónur eða meira Raungengi krónunnar 2005=100 M.v. verðlag. Frá janúar 2016. 110 100 90 80 70 jan. 2016 nóv. 2018 Heimild: Seðlabanki Íslands Taka stöð- una í lok vikunnar Starfsgreinasambandið og VR halda áfram viðræðum við Samtök at- vinnulífsins í vikunni. Staða við- ræðna verður gerð upp í vikulok hjá hvorum tveggja samtökum. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að ef Starfsgreinasambandið ákveður að vísa verkstjórn samning- anna til ríkissáttasemjara muni VR að öllum líkindum gera það einnig á fundi næstkomandi föstudag. VR fundar með samningamönnum SA á morgun og Starfsgreina- sambandið á fimmtudag. Þá er fundað stíft í húsnæðismálahópi sem ríkisstjórnin setti á fót. Ragnar Þór býst við löngum fundi með SA á morgun. Vilhjálmur Birgisson, for- maður Verkalýðsfélags Akraness, segir að allt verði undir á fundi með SA á fimmtudag. „Við þurfum að fá einhver svör,“ segir hann. Samn- inganefnd Starfsgreinasambandsins kemur saman á morgun og á föstu- dag verður fundur formanna aðild- arfélaganna. Vonast hann til þess að þá verði farið að sjást betur til lands og menn viti frekar í hvað stefni. Björn Snæbjörnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að umræða um stöðu mála verði tekin á föstudag. Fyrr sé ekki hægt að meta aðstæður.  Fundað um kjara- samninga næstu daga Margmenni var í Hlíðarfjall við Akureyri um helgina, en þar er nú talsverður snjór og búið að opna skíðasvæði þar. „Við erum að opna á nán- ast sama tíma og í fyrra. Þetta stendur nánast á pari. Hingað komu alls um 500 manns á laugar- daginn, en hér hefur verið um sjö stiga frost og almennt frábært skíðaveður. Við getum ekki teppinu og Auði. Fari allt að vonum verður brautin Strýta, sú sem hæst nær í fjallinu, opnuð um næstu helgi. Allt ræðst slíkt þó að veðri en spáð er slyddu og hlýindum nyrðra næstu dag- ana. Til viðbótar má geta að búið er að opna skíðasvæðin í Skarðsdal við Siglufjörð og í Böggvisstaðafjalli við Dalvík. sbs@mbl.is farið fram á meira. Já, hér hefur snjóað talsvert að undanförnu, þó eiginlega meira niðri í byggð en hér uppi í fjallinu,“ segir Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður í Hlíðarfjalli, í samtali við Morgunblaðið. Í Hlíðarfjalli er þegar hægt að leika sér í skíðabrautunum Fjarkanum, Hólabraut, Töfra- Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Margir á skíðum í Hlíðarfjalli í frábæru veðri Veturinn er kominn og búið að opna skíðasvæðin á Norðurlandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.