Morgunblaðið - 10.12.2018, Side 11
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
J ó l aT I L B O Ð
TILBOÐSverð kr. 283.280
Fullt verð kr. 354.100
T imeout XL Stóll + Skemill / Extra hátt bak
stillanlegur hnakkapúði / Fantasy Leður / Svört eik
Ávarp Tómas er þekkur í fótboltaheiminum fyrir þjálfarastörf um árabil.
„Dagurinn tókst frábærlega. Þarna mætti fólk undir merkjum fótboltans á
skemmtun til að sýna góðum félaga stuðning og með því móti söfnuðust
peningar; fjárhæð sem svo sannarlega munar um,“ segir Hafsteinn Steins-
son, verkefnastjóri hjá Fylki og einn skipuleggjanda Tommadagsins.
Í gær var í Egilshöll í Grafarvogi í Reykjavík haldinn svonefndur
Tommadagur til stuðnings Tómasi Inga Tómassyni, yfirþjálfara yngri
flokka Fylkis í fótbolta og aðstoðarþjálfara 21 árs karlalandslið Íslands.
Tómas fékk gervimjöðm í ársbyrjun 2015, en sú aðgerð misheppnaðist. Af
þeim sökum hefur Tómas verið frá vinnu um lengri tíma og nánast óslitið á
spítala síðan í apríl á þessu ári. Framundan er aðgerð í Hamborg í Þýska-
landi, en þar vonast Tómas til að fá þá hjálp sem þarf.
Dagskráin í Egilshöll hófst strax í gærmorgun með ýmissi skemmtan. Í
lokin var úrslitaleikur þar sem landslið Eyjólfs Sverrissonar vann pressulið
Rúnars Kristinssonar, 4:1. Sérstakur Tommadagur verður í Vestmann-
eyjum, heimabæ Tómasar, nk. sunnudag, 16. desember. sbs@mbl.is
Vinátta Sterk vinabönd myndast meðal fólks í fótboltanum eins og vel sást á Tommadeginum, þangað sem fólk úr ólíkum áttum mætti með gleði til að styðja við góðan félaga.
Skemmtun og
góður stuðningur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbygginn Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, gam-
all fótboltamaður úr Stjörnunni, blandaði sér í leikinn.
Bolti Veigur Sveinsson, til vinstri, og Guðni Bergsson,
formaður KSÍ, voru meðal þátttakenda á Tommadegi.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Jólagjöfin hennar
Tryggvagötu 18 - Sími 552 0160 - Opið alla virka daga kl. 13.00-18.00