Morgunblaðið - 10.12.2018, Page 12
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Úlfar var meistari í þvíað töfra fram veislur,hvort sem þær vorumatarkyns eða fólust í
því að skapa eitthvað skemmtilegt
fólks á meðal í dagsins önn,“ segir
Lárus Karl Ingason ljósmyndari.
Út er komin bókin Úlfar og kokk-
arnir á Frökkunum hvar er að
finna úrval uppskrifta úr kokkabók-
um Úlfars heitins Eysteinssonar
matreiðslumeistara. Margar þess-
ara uppskrifta standa að baki rétt-
unum sem eru á matseðli veitinga-
staðarins Þrír frakkar við Baldurs-
götu í Reykjavík sem hann rak svo
lengi og gerði vinsælan. Þar var
fiskur og sjávarfang jafnan í aða-
hlutverki, rétt eins og í bókinni.
Góðar viðtökur
„Við Úlfar vorum lengi vinir
og brölluðum margt skemmtilegt
saman,“ segir Lárus Karl. Úr
löngu samstarfi minnist hann fyrri
bókar þeirra félaga sem heitir Úlf-
ar eldar og kom út árið 2010. Þar
mátti finna fjölda uppskrifta, en
viðmiðið var að rétturinn dygði
fjórum og hráefnið kostaði ekki
meira en 1.000 krónur á verðlagi
síns tíma.
„Þetta var dæmigerð kreppu-
bók, eins og algengar voru á þess-
um árum. Sé hugmyndaflugið í lagi
er hægt að búa til mikið fyrir lítið.
Þessi bók fékk góðar viðökur og við
ákváðum því að halda áfram, þótt
síðar yrði,“ segir Lárus Karl og
heldur áfram:
„Nokkur ár eru svo síðan við
tíndum til uppskriftir, tókum
myndir og fleira. Steinunn Þor-
steinsdóttir skrifaði texta upp úr
viðtölum við Úlfar í kringum upp-
skriftirnar og sjálfur vann ég
myndirnar. Segja mátti svo að bók-
in væri tilbúin til prentunar þegar
Úlfar lést skyndilega nú í október
síðastliðnum, þá eftir nokkurra ára
veikindi í kjölfar hjartaáfalls. Auð-
vitað var fráfall Úlfars áfall, en í
hans anda og viðhorfa hans um að
lífið heldur alltaf áfram var bókin
gefin út og hér er hún komin. Þetta
heldur arfleifð Úlfars á lofti og
sama gerist á Þremur frökkum sem
Stefán sonur hans rekur nú.“
Fjölbreytt fiskmeti
Svartfuglsegg og krabbasúpa í
forrétt. Lúða, skata, þorskur, lax,
grásleppa, rauðspretta, humar, ufsi
og karfi í aðalrétt. Fiskmetið sem
segir frá í bókinni og er efniviður
uppskriftanna er fjölbreytt og það
er í anda Úlfars. „Þegar sjómenn
komu að landi með fisk af sjaldgæf-
um tegundum sem höfðu ekki áður
sést hér við land var gjarnan farið
á Baldursgötuna til Úlfars og hann
fenginn til að matreiða fiskinn, sem
hann gerði af hreinni list. Allt slíkt
vakti athygli fjölmiðla og ég fór oft
á staðinn þegar furðufiskar voru í
potti og pönnu. Það voru ævintýri
og afrakstur þeirra sést í bókinni
nýju,“ segir Lárus Karl Ingason að
síðustu.
Veislur lífsins! Frábærir
fiskréttir Úlfars Eysteins-
sonar í nýrri bók sem var
að koma út. Lúða, skata
lax og fleira gott sem
meistarakokkurinn útbjó
af hreinu listfengi og
Lárus Karl Ingason tók
ljósmyndir af.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Útgefandinn „Ég fór oft á staðinn þegar furðufiskar voru í potti og pönnu. Það voru ævintýri,“ segir Lárus Karl
um vináttu og langt samstarf þeirra Úlfars – en afraksturinn sést í bókinni sem er um 80 blaðsíður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Feðgar Kokkarnir á Þremur frökkum, Úlfar og Stefán sonur hans, útbúa
markríl sem getur verið alveg herramannsmatur. Mynd frá árinu 2015.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Fjölmenni mætti á Langasand á Akra-
nesi þegar opnuð var Guðlaug, sem
er aðstaða fyrir sjóundsfólk sem þar
hefur verið útbúin. Guðlaug saman-
stendur af útsýnispalli, heitri laug og
grynnri laug sem nýtur vatns úr yfir-
falli efri laugarinnar. Útsýni úr laug-
inni er yfir Faxaflóann og til Reykja-
víkur, hæð mannvirkisins er um 6 m
yfir meðal-stórstreymisflóði og er
gert ráð fyrir því að sjór geti flætt inn
í vaðlaugina. Það voru félagar úr Sjó-
sundsfélagi Akraness sem fyrstir
nýttu sér Guðlaug, sem verður opin í
vetur alla miðviku- og föstudaga frá
kl. 16-20 og laugar- og sunnudaga frá
kl. 10-14. Ókeypis er í laugina og bún-
ingsklefar á staðnum.
Framkvæmdir við gerð Guðlaugar
hófust í ágúst á síðasta ári. Saman-
lagður kostnaður er um 120 milljónir
króna. Þar af er hlutur Akraneskaup-
staðar 71-76 milljónir króna, en það
sem upp á vantar eru styrkir úr ýms-
um sjóðum.
„Guðlaug er frábær viðbót hér á
Akranesi fyrir bæði heimamenn og
gesti og erum við yfirfull af stolti að
standa hér í dag að vígja laugina,“
segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjar-
stjóri á Akranesi. Guðlaug var búin að
vera lengi á lista yfir þær fram-
kvæmdir sem Akraneskaupstaður
vildi fara í og því er fagnaðarefni að
málið sé nú í höfn og mannvirkið
klárt, að sögn bæjarstjórans.
Sjósundsaðstaða í gagnið á Akranesi
Ljósmynd/Aðsend
Guðlaug Slökun í heitum pottinum eftir busl í köldum sjónum við Langasand.
Guðlaug gleður Skagamenn
Fyrir tvo
4 stk. 250 g útvatnaðir saltfisk-
hnakkar
Rófur
Kartöflur
Hamsatólg
Seytt eða dökkt rúgbrauð og
smjör
Aðferð
Suðan látin koma upp og sjóða í
5 mínútur og standa í 10 mínútur
með loki. Salta vatnið pínulítið
(það þarf að salta vatnið því fisk-
urinn er útvatnaður og klár til
steikingar). Heitir diskar (passa
að bera matinn fram á heitum
diskum svo tólgin kólni ekki).
Soðnir salt-
fiskhnakkar
LÍFIÐ ER SALTFISKURSíðustu uppskriftir Úlfars