Morgunblaðið - 10.12.2018, Side 15
AFP
Frá mótmælunum í Frakklandi Macron hypjaðu þig stendur á gulu vesti mót-
mælanda sem veifar snjáðum frönskum fána við tollhlið á hraðbraut á laugardag.
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Búist er við að Emmanuel Macron
Frakklandsforseti rjúfi annað hvort í
dag eða á morgun þögn sína um upp-
reisn svonefndra gulvestunga undan-
farnar vikur. Í gær boðaði hann fimm
stærstu verkalýðsfélög landsins og
þrenn megin samtök atvinnurekenda
á sinn fund nú í morgun, mánudag,
þar sem hann áformar að fá stuðning
við aðgerðir til að draga úr spennu og
binda enda á mótmæli sem fjármála-
ráðherrann Bruno Le Maire segir
hafa valdið landinu stórfelldu efna-
hagstjóni.
Frönsk yfirvöld hafa hrundið af
stað rannsókn á samfélagsmiðlum
þar sem kynt var undir mótmælin.
Um er að ræða mörg hundruð vef-
síðna sem sagðar eru ættaðar frá
Rússlandi. Þar var dreift röngum eða
villandi upplýsingum til að örva
stuðning við mótmælin. Áttu ljós-
myndir þar af særðu og slösuðu fólki
að sýna grimmd frönsku lögreglunn-
ar gegn mótmælendum. Þær reynd-
ust gamlar og jafnvel teknar í mót-
mælum í öðrum löndum fyrir
nokkrum árum.
Alls voru 1.723 manns handteknir í
ofbeldisfullum mótmælum gulvest-
unga í París, Marseille, Bordeaux,
Lyon og Toulouse og víðar um land á
laugardag. Þar af voru 1.220 úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald. Í París voru
1.082 handteknir en þar kom til átaka
milli mótmælenda og brynvarinna
lögreglusveita fjórðu helgina í röð.
Eyðileggingin var meiri en næstu
laugardaga á undan. Alls tóku 136.000
manns í mótmælunum og rúmlega
80.000 lögreglumenn höfðu það hlut-
verk að halda uppi röð og reglu.
Gulvestungar hafa í aðgerðum sín-
um mótmælt vaxandi framfærslu-
kostnaði og stefnu Macrons forseta
yfirleitt. Spjót þeirra hafa öll staðið á
forsetanum, sem búist er við að reyni
að slökkva eldana með ávarpi til þjóð-
arinnar í byrjun vikunnar. Þykir for-
setinn fertugi hafa sýnt hik að und-
anförnu sem túlkað er á þann veg að
hann viti ekki hvernig hann eigi að
bregðast við mótmælunum sem engin
fordæmi eru fyrir að umfangi og eyði-
leggingu.
Fyrir helgi lét Macron undan kröf-
um gulvestunga að hluta en þeir
sögðu þær aðgerðir of seint fram
komnar og kröfðust afsagnar forset-
ans. Meðal annars ákvað hann að falla
frá sköttum á bílaeldsneyti sem hann
sagði í upphafi mótmælanna að ekki
kæmi til greina að hrófla við. Um
verulega eftirgjöf þykir að ræða hjá
forsetanum sem sagðist ekki ætla að
láta undan fjölmennum mótmælum á
götum úti í forsetatíð sinni, eins og
forverar hans. Ekki kvaðst Macron
vilja hrófla við auðlegðarskatti og eft-
irgjöf fasteignaskatta sem gulvest-
ungar vilja endurreisa til að auka aft-
ur skattbyrði ríka fólksins.
Beðið eftir að Macron taki til máls
Frönsk yfirvöld rannsaka samfélagsmiðla þar sem kynt var undir mótmælin í landinu undanfarið
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Meira til skiptanna
Óeirðir helgarinnar í París höfðu
lítil ef nokkur áhrif á fólk sem
leggur stund á áradrag á brettum
á sjó og vötnum. Um 800 slíkir
lögðu leið sína til borgar ljósanna
og létu til sín taka í keppni í sigl-
ingamennsku þessari á Signu.
Helst er þó að mótmælin hafi
verið siglurum innblástur því þeir
voru flestir í gulum vindstökkum.
Um var að ræða fjölmennustu
brettasiglingu sögunnar en um var
að ræða lokamót í heimsbikar-
keppni þessarar íþróttagreinar.
Við fögnuð heimamanna sigraði 21
árs Frakki, Arthur Arutkin, og
var krýndur heimsmeistari. Reri
hann leiðina á 1 klukkustund og
tuttugu mínútum. Drjúga stund
tók siglingin því keppnislengdin
fyrir áhugamannaflokkinn var 11
kílómetrar en 13,5 km fyrir at-
vinnumennina í íþróttinni. Allan
tímann standa keppendur á bretti
sínu og toga það áfram með ár-
inni.
Siglingin hófst fyrir framan
Þjóðarbókasafnið, Bibliotheque
Nationale de France, og reru
keppendur síðan framhjá Frúar-
kirkjunni (Notre-Dame Cathed-
ral), Louvre-safninu, Stórhöll
(Grand Palais) og Eiffel-turninum
en endamark var við Klórbakka
(Quai de Javel) í suðvesturhluta
Parísar. agas@mbl.is
Stærsta bretta-
sigling sögunnar
Siglt Frá brettakeppninni á Signu og sem sjá má eru keppendur allir gulklæddir.
Kosið verður um Brexit-samninginn í breska þinginu á
morgun, þriðjudag, eins og ráð hefur verið fyrir gert.
Brexit-ráðherrann Stephen Barclay segir frestun
kosningarinnar ekki koma til greina, en aukinn þrýst-
ingur hefur verið á Theresu May forsætisráðherra að
knýja á um betri samning við Evrópusambandið (ESB).
Barclay sagði að kjörið færi fram því samningurinn
væri góður og eini díllinn sem væri í boði. Varaði hann
við tali um að hægt væri að endursemja og sagði að
Frakkar, Spánverjar og fleiri myndu þá krefjast betri
samnings fyrir sig.
Almennt er búist við að samningurinn verði felldur í
þinginu. May hefur varað andófsmenn Brexit í Íhalds-
flokknum við því að verði samningi hennar hafnað í
þinginu gæti það leitt til nýrra þingkosninga. Heldur
hún fast við að hættan sé sú að Bretar hverfi úr ESB
samningslausir.
Barclay sagði að May gæti setið áfram á stóli for-
sætisráðherra ef samningnum verður hafnað. Ekki
væri við öðru búist og Boris Johnson, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra, tók undir það en bætti við að þá yrði
hún að fara til Brussel og endursemja um útgöngu
Breta úr ESB. agas@mbl.is AFP
Kosningu
um Brexit
ekki frestað