Morgunblaðið - 10.12.2018, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Borgaryfir-völd hafaárum sam-
an haft það að
markmiði að loka
Reykjavíkur-
flugvelli án þess
að skýrt hafi verið hvað ætti
að koma í staðinn. Enda hefur
þeim sem fylgt hafa þessari
stefnu af mestu harðfylgi ver-
ið sama um hvað kæmi í stað-
inn, það eina sem skiptir þá
máli er að fjarlægja flugvöll-
inn úr Vatnsmýrinni. Þar á
svo að reisa mikla byggð, rétt
eins og annað byggingarland
finnist ekki innan borgar-
markanna. Þetta er hluti af
stefnunni um þéttingu byggð-
ar og aðförinni sem á sér stað
samhliða gegn einkabílnum.
Draumsýnin er að sem flestir
búi í 101 eða næsta nágrenni
og gangi eða hjóli í vinnuna.
Þeir sem búi utan þessa svæð-
is skuli vera á þéttingar-
svæðum nærri borgarlínu.
Þessar öfgar hafa staðið
skipulagi og þróun höfuð-
borgarinnar mjög fyrir þrifum
og hafa þrýst húsnæðisverði
langt upp fyrir það sem verið
hefði ef byggð hefði fengið að
þróast með eðlilegum hætti.
En afleiðingarnar hafa líka
verið þær að hindra eðlilegt
viðhald og uppbyggingu
Reykjavíkurflugvallar. Vegna
þeirrar óvissu sem borgaryfir-
völd hafa komið framtíð vall-
arins í hefur ekki verið ráðist
í byggingu nýrrar flugstöðvar,
eða eðlilegt viðhald flughlaða
svo dæmi sé tekið.
Í nýrri skýrslu starfshóps
sem samgönguráðherra skip-
aði eru lagðar til
úrbætur í innan-
landsflugi og snýr
það einnig að því
að efla vara-
flugvelli hér á
landi. Umferð um
Keflavíkurflugvöll hefur
margfaldast og samhliða því
hefur þörfin á varaflugvöllum
vaxið mjög. Henni hefur ekki
verið mætt sem skyldi en nú
leggur starfshópur samgöngu-
ráðherra til að úr þessu verði
bætt og flugvellirnir þrír sem
um ræðir, Reykjavíkurflug-
völlur, Akureyrarflugvöllur og
Egilsstaðaflugvöllur, fái
tryggt fjármagn til að hægt
verði að byggja þá upp til að
mæta aukinni flugumferð.
Lagt er til að þetta verði gert
með hóflegu varaflugvallar-
gjaldi, sem virðist eðlileg leið
til að tryggja aukið flug-
öryggi.
Með þeim framkvæmdum
sem fyrir liggur að ráðast
þarf í á Reykjavíkurflugvelli
til að treysta stöðu hans fyrir
innanlandsflug og sem vara-
flugvöll er augljóst að hug-
myndir um að taka hann út af
skipulagi borgarinnar á næstu
árum eða áratugum eiga ekki
rétt á sér. Borgaryfirvöld
verða að átta sig á að í fyrir-
sjáanlegri framtíð verður þörf
á innanlandsflugvelli og vara-
flugvelli í Vatnsmýrinni. Völl-
urinn er og hefur verið styrk-
ur fyrir borgina og getur
verið það áfram ef borgaryfir-
völd laga skipulag borgar-
innar í átt að raunveruleik-
anum en ekki óraunsærri
draumsýninni.
Vægi Reykjavíkur-
flugvallar fer
vaxandi með auknu
millilandaflugi}
Varaflugvöllurinn
í Vatnsmýrinni
Það hefði ekkiátt að koma
Emmanuel Mac-
ron, forseta
Frakklands, á
óvart að landar
hans væru komnir
með nóg af skatt-
heimtu og að þess vegna væri
ekki til vinsælda fallið að
leggja nýjan skatt á eldsneyti.
En Macron taldi sig verða að
uppfylla Parísarsamkomulagið
svokallaða og því fór sem fór á
götum Parísar.
OECD birti í liðinni viku
nýjan samanburð á skatt-
heimtu í aðildarríkjum þess. Í
þessum samanburði kom í ljós
að frönsk stjórnvöld njóta nú
þess vafasama heiðurs að
leggja þyngstar skattbyrðar
allra OECD-ríkja á þjóð sína.
Hlutfall skatttekna hins opin-
bera af landsframleiðslu óx í
19 af 34 ríkjum
OECD, þar á með-
al í Frakklandi þar
sem hlutfallið fór í
46,2% í fyrra. Með
þessu tókst Frökk-
um að ýta Dönum
niður fyrir sig, en
þar lækkaði hlutfallið lítillega.
Frakkland er langt fyrir of-
an meðaltal OECD-ríkjanna,
sem er 34,2%, en Ísland er líka
nokkuð fyrir ofan meðaltalið
með 37,7%. Að sjálfsögðu ætti
að vera keppikefli fyrir stjórn-
völd að halda þessu hlutfalli
lágu og að minnsta kosti undir
meðaltali OECD. Og eins og
forseti Frakklands hefur nú
reynt, er ekki skynsamlegt að
ráðast í skattahækkanir,
hverju nafni sem þær nefnast,
þegar lönd eru í hópi þeirra
sem mestar byrðar leggja á al-
menning.
Þegar skattar eru
bornir saman á milli
ríkja þurfa gulu
vestin í París ekki
að koma á óvart}
Skattþreyta
T
ónlistarlíf á Íslandi hefur átt
mikilli velgengni að fagna og
vorum við minnt á það nýlega á
degi íslenskrar tónlistar sem
haldinn var hátíðlegur 6. des-
ember síðastliðinn. Öflugt tónlistarnám
leggur grunninn að og styður við skapandi
tónlistar- og menningarlíf í landinu en ný-
verið var undirritað samkomulag ríkisins
og sveitarfélaganna um stuðning við tón-
listarnám til ársloka 2021. Markmiðið er að
jafna aðstöðumun nemenda til tónlistar-
náms á framhaldsstigi og söngnám á mið-
og framhaldsstigi og festa fjármögnun
námsins betur í sessi. Ljóst er að um
veigamikið skref er að ræða en grunn-
fjárhæð framlags ríkisins er 545 milljónir
kr. á ársgrundvelli sem greiðist til Jöfn-
unarsjóðs sveitarfélaganna sem annast úthlutanir
framlaganna. Á móti skuldbinda sveitarfélögin sig til
að taka tímabundið yfir verkefni frá ríki sem nema
230 milljónum kr. á ári og sjá til þess að framlag
renni til kennslu þeirra nemenda sem innritaðir eru í
viðurkennda tónlistarskóla án tillits til búsetu. Sam-
komulagið er umfangsmikið en það snertir 33 viður-
kennda tónlistarskóla víða um land en þar stunda nú
um 600 nemendur nám á framhaldsstigi.
Það skiptir máli fyrir tónlistarlífið í landinu að um-
gjörðin sé sterk og innviðir góðir. Á síðasta ári var
gerð úttekt á veltu íslenskrar tónlistar fyrir Samtón,
ÚTÓN og atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið. Úttektin var unnin af dr. Mar-
gréti Sigrúnu Sigurðardóttur og Erlu Rún
Guðmundsdóttur. Helstu niðurstöður eru
þær að heildartekjur íslenska tónlistariðn-
aðarins á árunum 2015-2016 voru um það
bil 3,5 milljarðar kr., auk 2,8 milljarða kr. í
afleiddum gjaldeyristekjum til samfélags-
ins vegna komu tónlistarferðamanna til
landsins. Þá stendur lifandi flutningur á
tónlist undir tæplega 60% af heildartekjum
íslenskrar tónlistar á meðan hljóðrituð
tónlist og höfundarréttur nema hvort um
sig 20%. Að auki sýnir úttektin að lifandi
flutningur er mikilvægasta tekjulind
sjálfra tónlistarmannanna á meðan plötu-
sala hefur dregist saman.
Það er mikilvægt að halda áfram að
styrkja umgjörð skapandi greina í landinu. Nýundir-
ritað samkomulag um tónlistarnám skiptir sköpum á
þeirri vegferð og mun gera fleirum kleift að stíga sín
fyrstu skref í tónlist um land allt. Að auki hafa verið
stigin mikilvæg skref í uppbyggingu menningarhúsa
á landsbyggðinni en þau hafa haft ótvíræð jákvæð
margfeldisáhrif á tónlistar- og menningarlíf bæja og
nærsamfélaga. Við viljum að allir landsmenn geti not-
ið lista og menningar og tekið virkan þátt í slíku
starfi.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir,
Pistill
Jöfn tækifæri til tónlistarnáms
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Gera þarf ítarlegri kröfurum áhrif bygginga á vindhér á landi, einnig vantarfrekari eftirfylgni með nú-
verandi kröfum, að mati Harðar
Páls Steinarssonar verkfræðings.
„Það er tiltölulega auðvelt og
hagkvæmt að skoða áhrif bygginga
og skipulag hverfa á staðbundið veð-
urfar með tölvulíkönum. Það þarf
helst skýrari stefnu og ítarlegri
kröfur um hvaða gögnum þurfi að
skila til yfirvalda, hvaða markmið
þarf að uppfylla og hafa þarf eftirlit
með að markmiðunum sé náð,“ sagði
Hörður. Hann hefur starfað í Bret-
landi undanfarin tvö og hálft ár við
vindgreiningar á byggingum. Þá eru
skoðuð áhrif sem samspil vinds og
bygginga geta haft fyrir gangandi
vegfarendur. Til að greina áhrifin er
aðallega notuð CFD (Computational
Fluid Dynamics) tölvuhermun eða
prófanir í vindgöngum.
Hörður sagði að í Bretlandi eigi
byggingar ekki að hafa neikvæð
áhrif á staðbundið vindafar séu þær
af tiltekinni hæð. Borgin Leeds ger-
ir strangari kröfur en almennt gerist
vegna banaslyss sem varð þar vegna
vinda við byggingar.
Sé talin hætta á neikvæðu sam-
spili bygginga og vindsins í skipulagi
er það annaðhvort hermt í tölvu-
líkönum (CFD) eða prófað í vind-
göngum. „Vindhraði í skipulaginu er
reiknaður í CFD-greiningum eða
mældur í vindgöngum fyrir a.m.k. 12
vindáttir og svo eru veðurgögn not-
uð til að meta áhrif bygginga á
vindafarið í skipulaginu,“ sagði
Hörður. Finnist svæði sem þykja
líkleg til vandræða er hægt að grípa
til fyrirbyggjandi aðgerða áður en
lengra er haldið í skipulags- og
hönnunarferlinu. Kröfur yfirvalda
tryggja þar með að vindáhrif bygg-
inga séu almennt skoðuð.
Hörður bendir á að í íslenskri
skipulagsreglugerð og byggingar-
reglugerð séu ákvæði sem gefa til
kynna að skoða ætti betur vindáhrif.
Einnig megi lesa svipað í Aðal-
skipulagi Reykjavíkur þar sem
fjallað er um gæði byggðar. Mögu-
lega séu kröfurnar þó ekki nógu
skýrar og eftirfylgnin ekki nægileg.
„Nú er það vanalega í höndum
eiganda viðkomandi byggingar
hvort vindáhrif séu yfirhöfuð skoðuð
og þá á hvaða hátt,“ sagði Hörður.
„Þannig er greining vindáhrifa
nærri einskorðuð við bygginguna
sjálfa en ekki endilega umhverfið í
kring, jafnvel þótt framkvæmdar
séu tölvuhermanir eða prófanir í
vindgöngum þar sem stór hluti
byggðarinnar í kring er hluti af lík-
aninu.“
Áhrif vinds á viðskipti
Það getur blásið hressilega og
verið kalt á Íslandi og því ástæða til
að huga sérstaklega að vindáhrifum
bygginga, að mati Harðar. Suðaust-
anátt er ríkjandi á höfuðborgar-
svæðinu og í norðanátt er oft besta
sumarveðrið. „Svæði og byggingar
ættu því að vera hönnuð með fleiri
vindáttir í huga svo gæði byggðar-
innar verði meiri og hægt sé að nýta
svæði í kringum byggingar oftar en
þær sumarstundir sem gefast þegar
er norðanátt,“ sagði Hörður.
„Þar sem verið er að skapa
skemmtileg almenningssvæði, s.s.
torg eða stræti, þarf að tryggja að
staðbundið vindafar verði þannig að
mannlíf myndist og haldist svo
hönnun teljist vel heppnuð. Til þess
þarf að framkvæma vindgreiningar í
CFD-greiningu eða vindgöngum svo
hægt sé að reikna eða mæla vind-
hraða á ákveðnum svæðum og meta
hvort svæðin henti til tilætlaðra
nota.
Eins getur slæmt vindafar í
kringum rekstur, s.s. verslun, veit-
ingahús og kaffihús, líklega haft
áhrif á tekjur rekstraraðila og því
gæti verið hagkvæmt fyrir þá að
huga meira að vindáhrifum bygg-
inga sinna og þeirra sem eru í ná-
grenninu.“
Spá þarf í vindinn við
hönnun og skipulag
Vindgreiningar eru mikið gerðar í CFD (Computa-
tional Fluid Dynamics) tölvuhermun. Séu bygg-
ingar meira en 20 hæðir eru auk þess gerðar til-
raunir í vindgöngum. Niðurstöður CFD og vind-
gangatilrauna ríma vel saman séu þær rétt gerðar,
að sögn Harðar Páls Steinarssonar verkfræðings.
Líkön í vindgöngum eru vanalega í u.þ.b. 1:300
skala. Líkanið stendur á skífu sem hægt er að
snúa til að prófa mismunandi vindáttir. Vindgöng-
in geta verið allt að 30 metra löng eða lengri til
að vindprófíllinn sé réttur. Vindgangatilraunir eru
töluvert tímafrekari og dýrari en CFD. Kosturinn
við CFD er að líkanið er í fullum skala og niðurstöður hermana að-
gengilegar hvar sem er í líkaninu.
Tölvuhermun og vindgöng
AÐ GREINA VIND
Hörður Páll
Steinarsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjavík Byggingar geta haft mikil áhrif á vindafar þar sem gangandi
vegfarendur eiga leið um. Huga þarf að þessum áhrifum við hönnun.