Morgunblaðið - 10.12.2018, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Handa-
vinna með leiðb. kl. 12:30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Mynd-
list með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-
12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
S. 535-2700.
Árskógum 4 Opin smíðastofa kl. 8.30-16. Handavinna m/leiðb. kl.
12.30-16. Félagsvist með vinningum kl. 13. Kortagerð með Lóu kl. 13.
Myndlist með Elsu kl. 16.
Boðinn Félagsvist kl. 13.00. Leikfimi er komin í jólafrí. Myndlist kl.
12.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10:30. Leikskólabörn frá Álftaborg syngja jólalög kl. 10:15. Leikfimi kl.
12:50-13:30. Litlu jólin kl. 13:45-15:30. Bútasaumshópur kl. 13:00-
16:00. Opið kaffihús kl. 14:30-15.
Dalbraut 18-20 Brids kl.13.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun 8:30-12:30, hjúkrunarfræð-
ingur 10-11:30, Handaband 13-15:30, bókabíllinn 13:10-13:30,
jólatónleikar nemenda úr Tónmenntaskóla Reykjavíkur kl. 14:30,
jólatónleikar með kvennakórnum Senjórítum kl. 16:00. Verið öll hjart-
anlega velkomin. Ókeypis aðgangur á alla tónleikana hjá okkur. Vita-
torg, Lindargata 59, sími 411-9450.
Garðabæ Vatnsleikf. Sjál. kl.7:30 /8:15 /15:00. Kvennaleikf. Sjál. kl.
9:30. Liðstyrkur. Sjál kl. 10:15. Kvennaleikf. Ásg. Kl.11:15. Gönguhópur
fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00.
Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 9.00 boccia, kl. 9.30 postulínsmál-
un, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 canasta, kl. 16.30 kóræfing Söngvina, kl.
19.00 skapandi skrif.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30. Sögustund kl 13-14.
Jóga kl. 14.15-15.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls
spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30
og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfa Hugleiðsla og létt yoga kl. 9, ganga kl. 10 frá Borgum,
Grafarvogskirkju og í Egilshöll. Prjónað til góðs kl. 13 í Borgum.
Félagsvist kl. 13 í Borgum og tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum.
Kóræfing Korpusystkina kl. 16:00 í Borgum.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8:30, leikfimi 2. hæð kl. 9:45, lesið úr
blöðum kl. 10:15, bókmenntahópur kl. 11, trésmiðja kl. 13-15, ganga
m/starfsmanni kl. 14, bókabíllinn kl. 14:15-15:00, bíó á 2. hæð kl.
15:30. Uppl. í síma 4112760
Seltjarnarnes Gler neðri hæð Félagsheimilisins kl 9. og 13. Leir
Skólabraut kl.9. Billjard Selinu kl.10. Krossgátur og kaffi í króknum kl.
10.30. Jóga með Öldu í sanum á Skólabraut kl.11. Handavinna/jóla-
föndur í salnum á Skólabraut kl.13. Vatnsleikfimi í sundlauginni
kl.18.40. Munið hangikjötsveisluna í kirkjunni á morgun og ferðina í
Listasafnið nk. fimmtudag. Skráning nauðsynleg í hvort tveggja.
S:8939800.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
LOK
Á POTTA
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKA 1
SÍMI 777 2000
Ýmislegt
Bátar
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Atvinnublað Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í Mogganum, á mbl.is og finna.is
vissum af dúfum í skemmu uppi á
Nesi sem voru í eigu karls sem
þar var með einhverja aðstöðu.
Það var kolniðamyrkur en Kiddi
átti stórt og gott vasaljós sem
hjálpaði okkur að rata. Kiddi átti
að standa vörð meðan ég klifraði
upp á þverbita í skemmunni eftir
dúfunum og træði þeim inn á mig.
Allt í einu kallar Kiddi „kallinn er
að koma“ og svo hleypur hann út í
myrkrið. Ég hleyp á eftir Kidda,
sem hljóp beint á gaddavírsgirð-
ingu og reif buxurnar og úlpuna.
Þegar heim var komið var engin
ánægja með útganginn á okkur
og leið, að okkur fannst, dágóður
tími þar til við fengum að fara aft-
ur saman út að leika um kvöld.
Að koma heim til Kidda og fara
í bílaleik var ævintýri líkast.
Kiddi átti flotta bíla sem var
snyrtilega raðað upp í hillu með
jöfnu millibili. Kiddi hefur alltaf
haft áhuga fyrir bílum og var allt-
af að spyrja um heiti og tegundir
bíla, hver væri framleiðandinn.
Kiddi var með allt svona á hreinu,
hann vissi hverjir ættu helstu
drossíur bæjarins eða bílnúmerið
á þeim sem ýmist byrjaði á G, R
eða Y. Kiddi var nákvæmnismað-
ur og handlaginn. Er mér sér-
staklega minnisstætt hversu fal-
lega rithönd hann hafði. Hann
skrifaði manna best með blek-
penna í skólanum.
Kiddi var traustur vinur og var
umhugað um líðan vina sinna.
Mér er minnisstætt þegar ég
vaknaði á gjörgæslu eftir brun-
ann heima, þá var Kiddi mættur
fyrstur manna til að athuga
hvernig ég hefði það. Ekki þótti
okkur leiðinlegt að ljósmyndari
Morgunblaðsins smellti mynd af
okkur félögunum á sjúkrahúsinu
sem birtist í blaðinu daginn eftir.
Þessi mynd er vel varðveitt.
Árin liðu og við vorum í minna
sambandi en vináttan engu að
síður sterk. Þegar við hittumst
eða heyrðumst spurði Kiddi alltaf
um Steinar son minn og fylgdist
náið með honum.
Kiddi var einstaklega bóngóð-
ur og alltaf til í að veita aðstoð.
Hann flísalagði baðið á fyrstu
íbúð okkar hjóna og leiðbeindi
mér um hvernig ætti að leggja
parket. Hann hefur sennilega
flísalagt hjá flestum vinum sín-
um. Það var alltaf gaman að fá
Kidda og hundinn hans í heim-
sókn.
Það er sárt að þurfa að kveðja
Kidda. Þvílíkur meistari og vinur
sem hann var. Hugur minn er hjá
Grétu og fjölskyldu Kidda. Minn-
ing um góðan vin lifir áfram.
Ólafur Ingimarsson.
Í dag kveð ég kæran vin,
Kristbjörn Hauksson. Kiddi lést
að morgni 1. desember sl. eftir
stutta baráttu við illkynja sjúk-
dóm. Við sem eftir lifum látum
hugann reika og minnumst sam-
verustunda og drúpum höfði í
sorg og söknuði.
Það var fyrir algera tilviljun að
leiðir okkar Kidda lágu saman
fyrir hartnær 40 árum. Kiddi
hafði fyrir einhverja óheppni ekki
náð beygjunni af Túngötu inn í
Garðastrætið á leið sinni á „rúnt-
inn“ með þeim afleiðingum að
bíllinn sem hann ók hafnaði á
ljósastaur. Engin meiðsl urðu þó
á fólki. Skömmu síðar kom ég að
og tókum við spjall saman, þessar
undarlegu aðstæður urðu upp-
hafið að óslitnum vinskap okkar
Kidda og vina hans af Seltjarn-
arnesinu. Seinna höguðu örlögin
því þannig að ég kynntist æsku-
vinkonu Kidda og eignaðist ég
með henni þrjú börn. Kiddi var á
þessum árum hluti af fjölskyld-
unni og mikill heimilisvinur og
tók að vissu leyti þátt í uppeldi
þriggja elstu barna minna og hef-
ur verið þeim góður vinur allar
götur síðan.
Hæfileikar Kidda þegar kom
að húsbyggingum og húsavið-
gerðum leyndust engum, og hef
ég fengið að njóta þeirra ítrekað í
gegnum árin enda hjálpsemi hon-
um í blóð borin.
Margs er að minnast þegar
maður lítur til baka, skemmtileg-
ir tímar og samverustundir í
gegnum þessi 40 ár. Fjöldi ferða-
laga, bæði innan- og utanlands.
Sérstaklega eru mér minnisstæð-
ar ferðir sokkabandsáranna,
tjaldferðir í Húsafell og utan-
landsferðir vinanna til Kaup-
mannahafnar og seinna til New
York. Fjölskylduferðirnar með
vinahópnum um landið urðu
margar. Þegar þessara ferða er
minnst þá er ekki hægt að sleppa
því að minnast á hvað Kiddi gat
verið snöggur að koma sér í vand-
ræði, eins og berlega kom í ljós
eitt sinn á leið okkar úr Þórsmörk
yfir Steinholtsá á leiðinni heim
eftir helgarútilegu. Miklar leys-
ingar höfðu verið og Kiddi vildi til
öryggis kanna vaðið, snaraði sér í
vöðlur og óð út í straumvatnið,
ekki mátti miklu muna en allt fór
þó vel að lokum, þó ekki væri
þurr þráður á honum eftir baðið.
Kiddi hafði sérstakt lag á
börnum og þau hændust auðveld-
lega að honum enda átti hann
margar skemmtilegar sögur í
pokahorninu, svo var nú heldur
ekki ónýtt að eiga vin sem keyrði
um á gömlum sjúkrabíl sem
spennandi var að fá að sitja í.
Aldrei var myndavélin langt und-
an og oft kom það fyrir á ferða-
lögum okkar að Kiddi þurfti að
skreppa frá til að taka myndir af
gömlum bílum, sem hann hafði
frétt af í geymslum bænda og
brunaliða. Þótti börnunum sér-
staklega gaman að fá að fara með
í þessar fjársjóðsleitarferðir.
Margt var brallað og margar
eru þær góðu minningarnar sem
við vinir Kidda getum yljað okkur
við og glaðst yfir að hafa átt sam-
an með honum.
Kiddi minn, innilegar þakkir
fyrir skemmtilega og trausta vin-
áttu við mig, fjölskyldu mína,
börnin mín og foreldra. Hafðu
hugheila þökk fyrir allt og allt.
Hvíl í friði, kæri vinur, guð
geymi og verndi þig, þangað til
við hittumst á ný.
Móður, systrum og fjölskyld-
unni allri votta ég mína dýpstu
samúð.
Minningin um góðan dreng lif-
ir.
Vilhjálmur Skúlason.
Elsku vinur.
Það er sárt að setjast niður og
skrifa minningargrein um þig,
svona óvænt og alltof snemma.
Þú varst einstakur í alla staði
og ég held að þú hafir aldrei gert
þér grein fyrir því hversu mörg-
um þótti vænt um þig. Þú snertir
ekki aðeins okkur vini þína með
þinni einstöku hjálpsemi, æðru-
leysi og umhyggju, heldur einnig
börn okkar vinanna.
Dýrin okkar náðir þú líka að
heilla, svo mikið að heimilishund-
urinn valdi þig og að flytja til þín.
Þið voruð eitt, þú og hann. Ég get
séð þig fyrir mér núna, kominn
með Frosta þinn í fangið.
Mér þykir einstaklega verð-
mætt að hafa náð að segja þér
hversu mikið mér þótti vænt um
þig og okkar vináttu áður en yfir
lauk. Fyrir það verð ég ævinlega
þakklát.
Takk fyrir allar góðu heim-
sóknirnar, útilegurnar, utan-
landsferðirnar og ekki síst fyrir
alla hjálpina í gegnum árin.
Mig langar að ljúka kveðjunni
til þín með erlendu ljóði í þýðingu
Erlends Jónassonar, sem á við
um mig og kannski marga aðra
sem hættir til að gleyma því sem
mikilvægast er í þessum heimi í
dagsins önn.
Ég bið Guð að geyma þig,
elsku Kiddi minn, og votta allri
þinni fjölskyldu og vinum mína
dýpstu samúð. Lífið verður aldrei
eins án þín.
Í grenndinni veit ég um vin, sem ég
á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans
er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við
ná
og hóflausan lífróður rérum.
„Ég hringi á morgun,“ ég hugsaði þá,
„svo hug minn fái hann skilið“,
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli’ okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég
gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum
send
er sannur og einlægur vinur.
Þín
Sigríður (Sigga).
Vinir rata stundum til manns
eftir skrítnum leiðum. Kiddi varð
vinur okkar í gegnum hundinn
okkar, hann Hektor, þegar við
bjuggum hlið við hlið á Selvogs-
grunni. Hann var einstakur
hundavinur, hálfgerður hunda-
hvíslari, og Hektor tók hann
strax í guðatölu. Kiddi bauðst til
að passa hann hvenær sem við
þyrftum á því að halda, og tók
okkur til bæna einhvern tímann
þegar við skildum hann eftir á
hundahóteli. „Hektor er ekki
þannig hundur,“ sagði hann
þungur á brún. „Þið talið við mig
næst þegar þið farið til útlanda.“
Við hlýddum því, og þessi tilhög-
un reyndist öllum vel. Kiddi og
Mikki litli urðu fljótt hluti af öll-
um okkar ferðaáætlunum, og
sambandið hélst þótt bæði þeir
og við flyttum burt úr götunni.
Það varð nánara eftir því sem á
leið, þótt Kiddi væri dulur og lítið
fyrir að tala um sína persónulegu
hagi. Við skynjuðum þó að hann
var náinn fjölskyldu sinni, og tal-
aði um foreldra sína og systkini af
mikilli hlýju og væntumþykju.
Við hittum hann síðast fyrir
örfáum vikum. Hann kom til að
skila Hektori, sem kvaddi hann
með hefðbundnum gleðilátum.
Engin leið að fá hann til að þiggja
kaffibolla, hann var á hraðferð, í
vinnugallanum, Mikki beið hans
úti í bíl. Það var glettni í augun-
um, faðmlagið var þétt og hlýtt,
engin merki sjáanleg um sjúk-
dóminn sem lagði hann að velli
svo ótrúlega, óskiljanlega fljótt.
Við syrgjum Kidda og þökkum
fyrir vináttuna og hjálpina. Fjöl-
skyldu hans vottum við samúð
okkar.
Sigríður Hagalín Björns-
dóttir, Guðmundur Örn
Guðmundsson og fjölskylda.
Þú valdir þér daginn til að
kveðja kæri vinur … sjálft af-
mæli lýðveldisins.
Það er fyrir margt að þakka,
góðan vinskap í hartnær 31 ár …
það hvað þú varst alltaf góður við
strákana mína og pabba
þeirra … og einnig við mig, það
var ómetanlegt.
Þú varst þverhaus með fangið
fullt af réttlætiskennd, nokkuð
góð blanda satt best að segja,
dýravinur og mannvinur.
Ég keypti stundum 3 Muske-
teers-súkkulaði handa þér í Am-
eríku… uppáhaldið þitt með
kaldri kók … og eins og þér ein-
um var lagið tókst þér að láta mig
trúa því síðustu ár að þú vissir
ekki að þetta góðgæti fengist á
Íslandi, allt til þess að gleðja mig
við það eitt að reyna að gleðja
þig.
Ég er svo glöð að hafa náð að
hitta þig tvisvar áður en þú
kvaddir, geymi þau stuttu augna-
blik vel.
Farðu í friði kæri vinur og
takk fyrir góðan vinskap.
Sigrún Jónsdóttir.