Morgunblaðið - 10.12.2018, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Laserlyfting
Þéttir slappa húð á andlit og hálsi
Árangur af Laserlyftingu er sambærilegur við árangur af andlitslyftingu
með skurðaðgerð en það sem laserlyfting hefur fram yfir andlitslyftingu
er að einstaklingur getur farið í vinnu beint eftir meðferð.
15% afsláttur af gjafabréfum hjá Húðfegrun
Bylting ímeðferð á línum, hrukkumog slappri húð.
Ég er stödd í Nikósíu á Kýpur hjá dóttur minni sem flutti þangaðfyrir ári. Við ætlum út að borða í kvöld en ég held ekki upp á af-mælið að öðru leyti. Þess vegna fór ég út á þessum tíma, til að
vera í ró og næði,“ segir Dominique Plédel Jónsson, sem á 70 ára afmæli í
dag.
„Dominique fæddist og ólst upp í París og lauk doktorsprófi í landfræði
frá Háskólanum í París-Nanterre. „Það var landfræðin sem dró mig til Ís-
lands. Ég fluttist hingað 1970 en bjó í millitíðinni í Noregi og Danmörku í
tíu ár.“ Dominique er þó þekktust fyrir störf sín sem tengjast mat.
„Þetta er allt ein heild, matvæli, matvælaframleiðsla og umhverfismál.
Ég hreifst af hugsjónum „slow food“ fyrir 20 árum hef verið að reyna að
koma þeim skilaboðum í samfélagið sem er í raun það sem allur heimur-
inn er að reyna að gera í dag. Það er að búa til og borða hreinan mat sem
þarf ekki að fara langar leiðir og passa upp á að framleiðandi fái sann-
gjarnt verð fyrir sínar vörur og neytandinn borgi sanngjarnt verð fyrir
það sem hann fær. Við eigum að reyna að framleiða eins mikið og við get-
um hér á landi og það verður mjög slæmt ef bændur hverfa. Kaupmenn
munu ekki brauðfæða okkur.“
Höfuðstöðvar Slow food-hreyfingarinnar eru í Tórínó og á tveggja ára
fresti er haldin heilmikil matarhátíð þar sem fólk hvaðanæva úr heim-
inum kynnir vörur sínar og hefur Dominique farið þangað í hvert skipti
síðan 2008 að einu ári undanskildu.
Dominique hefur mikinn áhuga á tónlist og var í tvö og hálft ár með
þætti á Rás 1 um heimstónlist. Hún hefur einnig starfað sem fararstjóri,
meðal annars í Marokkó og á Madagasgar.“
Eiginmaður Dominique er Jón Jónsson, menntaður loftskeytamaður,
og börn þeirra eru Eymar og Marína Dögg og þau eiga þrjú börn hvort.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Matar- og vínsérfræðingur Dominique hefur rekið m.a. Vínskólann.
Hreinn matur
úr heimahéraði
Dominique Plédel Jónsson er sjötug í dag
H
refna Kristjánsdóttir
fæddist á Búðum í
Fáskrúðsfirði 10.12.
1928 og ólst upp á Fá-
skrúðsfirði til ellefu
ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan suð-
ur til Reykjavíkur, árið 1939, þar
sem Hrefna ólst upp í Skuggahverf-
inu og í Þingholtunum, við Hverfis-
götu, Þórsgötu og Grundarstíg.
Að loknu námi í Miðbæjarbarna-
skólanum fór Hrefna í Verzlunar-
skóla Íslands og útskrifaðist þaðan
árið 1947.
Hrefna var flugfreyja um skeið á
námsárunum en að námi loknu hóf
hún störf á skrifstofu Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga við Sölv-
hólsgötu og starfaði þar til ársins
1953, að undanskildum níu mán-
uðum er hún stundaði nám við Riis-
by-húsmæðraskóla í Noregi 1950.
Hrefna Kristjánsdóttir, fv. framkvæmdastj. og húsmóðir – 90 ára
Með vænan lax Hrefna og Kjartan við Laxá í Kjós en þangað fóru þau gjarnan í veiði sem og í Norðurá.
Kattavinur sem rak
bílaþvottastöð í 37 ár
Sest í helgan stein Kjartan og Hrefna á pallinum hjá Arndísi dóttur sinni.
Hafnarfjörður
Marinó Elí
Björnsson fædd-
ist 3. febrúar
2018 kl. 7.06.
Hann vó 3.622 g
og var 52 cm
langur. Foreldrar
hans eru Rebekka
Þórisdóttir og
Björn Clifford
Alexandersson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is