Morgunblaðið - 10.12.2018, Page 25

Morgunblaðið - 10.12.2018, Page 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur reynst snúið að finna rétta svarið og stundum er ekkert einhlítt svar til við spurningum. Mundu að það þarf ekki allt að vera fullkomið fyrir jólin. 20. apríl - 20. maí  Naut Lestu vandlega öll skjöl sem þú þarft að skrifa undir, hvort sem um er að ræða einkaskjöl eða opinber plögg. Einhver er í þrjóskukasti, láttu sem þú takir ekki eftir því. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gefðu þér tíma til að íhuga lífið og tilveruna. Notaðu peningana skynsamlega, gjafir þurfa ekki að kosta hálfan handlegg- inn. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert vinsæll meðal vina þinna og þeir leita skjóls hjá þér þegar þeir þurfa á að halda. Þú færð góðar fréttir af ættingja. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Samtal við ættingja, nágranna eða fjöl- skyldu hefur jákvæð áhrif á þig. Þú ættir að slaka oftar á og það þarf ekki að taka langan tíma í daglegu amstri. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Samræður við maka og nána vini eru í alvarlegri kantinum um þessar mundir, en á sama tíma innihaldsríkar og hagnýtar. Gættu þess að taka ekki of mörg verkefni að þér í einu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ýmis tækifæri standa þér opin og það er erfitt að velja. Skoðanir þínar eiga fullan rétt á sér en þetta er ekki rétti tíminn til að halda þeim á lofti. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú leysir störf þín vel af hendi og setur öðrum gott fordæmi. Farðu varlega í samskiptum þínum við viðhlæjendur. Ekki er allt gull sem glóir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér hættir til að slá vandanum á frest en þegar til lengri tíma er litið borgar sig að leysa málin strax. Þú þarft að halda rétt á spöðunum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Blandaðu þér ekki í deilur vinnu- félaga þinna að svo stöddu. Stattu með þínu fólki og sýndu skilning þegar einhver segir frá vandamálum sínum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú neyðist til að vinna upp á nýtt hluti sem þú hélst að væru löngu tilbúnir. Kannski er erfitt að sjá fram úr óreiðunni á skrifborðinu en heiður himinn (og gott vinnupláss) eru framundan. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver snurða hefur hlaupið á þráð- inn hjá þér og gömlum vini. Jólin eru tími samveru, reyndu að vera sem mest með fjöl- skyldunni komandi daga. Ævisaga Jóns Gunnarssonar at-hafnamanns er nýkomin út. Sagan er skrifuð af Jakobi F. Ás- geirssyni og er bæði fróðleg og skemmtileg lesning. Þar segir frá því að Einar Andrésson hafi verið forfaðir Jóns, margar vísur hans hafi orðið fleygar og er nefnd sem dæmi um það vísan: Auðs þótt beinan akir veg ævin treinist meðan, þú flytur á einum eins og ég allra síðast héðan. Fram kemur í bókinni að fátt hafi varðveist af kveðskap Einars; mest af honum glatast í bruna. Í Skag- firðingabók frá 1969 er rifjuð upp hringhenda eftir Einar: Vísir hái veit af því, er varna náir meinum, hvenær dáins-akur í okkar sáir beinum. Hér er önnur staka eftir Einar: Máltak sanna sjáum vér, sitt hefur hver á prjónum. „Enginn dregur þó ætli sér annarra fisk úr sjónum.“ Einar fæddist 1814 og var kunn- ur maður á sinni tíð. Í Skagfirð- ingabók segir um hann: „Hann var vel hagmæltur og kallaður göldr- óttur, en stundaði aðeins hvítagald- ur. Þess gætti þegar á barnsárum hans, að hann hafði ófreskigáfur. Var reynt að hella messuvíni í augu honum, en kom fyrir ekki, Einar var rammskyggn eftir sem áður.“ Um hann orti Gísli Konráðsson í Helga rímum Hundingsbana sem birt var í Blöndu: Til er Einar ungur reynir letra, nokkrar kviður ortar á Andrés niður Bakka frá. Einar bjó að Bólu í Blönduhlíð 1851-1864 og var jafnan kenndur við þá jörð. Í Skagfirðingabók seg- ir: „Þegar hann fluttist þaðan, var bústofn hans „tvær kýr, ellefu hross, tuttugu sauðir og allmargar ær“ – og þrjár klyfjar af bókum.“ Þessi vísa er eftir dótturdóttur Ein- ars, Þóru Jónsdóttur frá Kirkjubæ: Ýmsir fást þar um og slást, elska, þjást og dreyma; rúnir mást, er ristir ást; ráð er skást að gleyma. Símon Dalaskáld orti um Einar í Bólu: Engan hræðist eg í kvæðadeilum nema Einar Andrésbur, er mun skeinuhættastur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Einari Andréssyni í Bólu „ÞEGAR ÞÚ SAGÐIST VILJA FARA ÚT AÐ BORÐA HÉLT ÉG AÐ ÞÚ MEINTIR UNDIR BERU LOFTI.” „VIÐ ERUM Í VANDRÆÐUM MEÐ AÐ FINNA TÓLF FYRRVERANDI FJÁRGLÆPAMENN Í KVIÐDÓMINN.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þú færð mig til að trúa á himnaríki. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÞÚ SPYRÐ HVORT ÉG HAFI ÁNÆGJU AF SAMRÆÐULISTINNI ERU OLN BOGARNIR Á MÉR SAMSTÆÐIR? KEMUR LÍKLEGA ALDREI Í LJÓS HÚ GETUR EKKI FARIÐ INN SVONA ÚTLÍTANDI! LAFÐI GODÍVA! KOMDU MEÐ OKKUR Á KRÁNA! HANN HEFUR RÉTT FYRIR SÉR. MÁ ÉG FÁ LÁNAÐA GREIÐU! Listir og menning eiga að gleðja ogfegra mannlífið og ekki er verra ef kúnstverkið fær okkur til þess að sjá tilveruna í nýju ljósi. Svo má ræða út í það óendanlega hvernig upp tekst hjá listamönnum, sem með verkum sínum hafa að nokkru það hlutverk að skapa umræður og skoð- anaskipti. Að við deilum viðhorfum okkar hvert með öðru er súrefni lýð- ræðisins og í krafti þess veljum við okkur alþingismenn. Á þingi situr fólk sem til dæmis velur hverjir skuli fá heiðurslaun listamanna, en á hverjum tíma njóta alls 25 manns þeirrar náðar. Fyrr á þessu ári myndaðist skarð í hópinn og í síðustu viku ákváðu þingmenn að taka Bubba Morthens nýjan inn á listann, sem er gott mál að mati Víkverja. x x x En lítum aðeins á listann yfir heið-urslistamenn sem eru þegar að er gáð allt um kring í tilveru okkar. Nú um helgina sat Víkverji með góð- um vini á veitingahúsi í Reykjavík þar sem á vegg er eftirprentun af mynd Errós, sem er á listanum fyrr- nefnda. Yfir borðum spannst samtal um hver skilaboðin í verkum málar- ans mikla væru, hvernig hann ynni og svo framvegis. Á nytjamarkaði þar sem Víkverji kom við síðdegis sama dag voru frammi bækur eftir Matthías Johannessen og Guðrúnu Helgadóttur; höfund barnabóka sem Víkverji las ungur og höfðu til lengri tíma mótandi áhrif á viðhorf hans til lífs og tilveru. x x x Þegar var svo litið á Facebook hafðieinhver smellt þar inn myndbroti af skemmtistað hvar sungið var há- stöfum og á gítarinn spilaði Gunnar Þórðarson; tónskáld, útsetjari og höf- undur ótalmargra laga sem eru fyrir löngu orðin almenningseign. Sama má segja um lög Megasar; við útför góðs vinar í síðustu viku voru flutt mörg falleg lög og alla snart þegar Valdimar Gunnarsson flutti lagið Tvær stjörnur eftir meistara Megas, sem er meðal okkar góðu heiðurs- listamanna. Eru þá ónefndir margir snillingar, svo sem Atli Heimir Sveinsson, Hannes Pétursson, Jónas Ingimundarson og Kristbjörg Kjeld. vikverji@mbl.is Víkverji Daníel tók til máls og sagði: Lofað sé nafn Guðs um aldir alda því að hans er viskan og mátturinn. (Daníel 2.20) Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.