Morgunblaðið - 10.12.2018, Blaðsíða 26
„Listafólkið okkar er í heimsklassa, svo
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Dagana 12.-16. desember umbreytist
Reykjavík í þungamiðju norræns nú-
tímadans en þá fer fram hátíðin Ís-
heit Reykjavík (www.icehotnordicd-
ance.com). Um er að ræða tvíæring
sem ferðast hefur á milli höfuðborga
á Norðurlöndum frá árinu 2010 og er
viðburðurinn stærsta norræna sam-
starfsverkefnið af sínum toga:
„Árangurinn er slíkur að í dag er
Ísheit orðin þekkt vörumerki í dansi
um allan heim og hátíðin í hópi þeirra
mikilvægustu í alþjóðlega dansdaga-
talinu,“ segir Ása Richardsdóttir,
framkvæmdastjóri viðburðarins.
Norræna ráðherranefndin er helsti
norrænni bakhjarl Ísheitrar en
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið veitir einnig ríkulegan stuðn-
ing, auk fjölda annarra norrænna og
íslenskra aðila.
Stórri hátíð sniðinn
þröngur stakkur
Jaðrar við að viðburðurinn sé of
stór fyrir Ísland því von er á svo
miklum fjölda erlendra gesta að lítið
er eftir að miðum fyrir almenning og
uppselt á flestar sýningar hátíðar-
innar. „Vandinn er sá að dansinn á
Íslandi ræður ekki yfir neinu húsi, og
við erum upp á öll leikhús bæjarins
komin með það að fá aðstöðu fyrir
sýningar. Auðvitað hefðum við viljað
vera með öll stærstu svið höfuðborg-
arsvæðisins alla daga hátíðarinnar,
en þurfum þess í stað að hafa margar
sýninganna á tiltölulega litlum svið-
um þar sem eru einfaldlega ekki
nógu mörg sæti til að við getum haft
miða í boði fyrir íslenskan almenn-
ing,“ útskýrir Ása og bendir á að Ís-
heit sé öðru fremur kaupstefna og
vettvangur fyrir dansara og danshöf-
unda til að koma sér á framfæri við
áhrifafólk í dansheiminum. Er von á
um 500 erlendum gestum, listafólki
og stjórnendum á hátíðina. „Við
sáum það fljótt að þessi hópur áhorf-
enda myndi þurfa að hafa forgang,
enda þeir gestir sem listamönnunum
sjálfum þykir brýnast að fá á sýningar
sínar.“
Hátíðin leggur m.a. undir sig Bíó
Paradís, og er þar leitun að lausum
miðum. Aftur á móti má enn kaupa
miða á opnunarkvöld Ísheitrar sem
fer fram á öllum leiksviðum Borg-
arleikhússins, með stórsýningunni
Fórn í uppfærslu Íslenska dansflokks-
ins. Einnig eru miðar fáanlegir á sýn-
ingu í Kassa Þjóðleikhússins á sunnu-
dagskvöld og fer sala fram hjá Tix.is.
Það er kannski kvikindislegt að
segja listelskum lesendum frá því,
fyrst miðarnir eru á þrotum, en á Ís-
heitri verður borin fram dansveisla á
heimsklassa. Alls bárust 355 umsóknir
um að fá að sýna á hátíðinni og tók
sérstök dómnefnd það að sér að velja
allrabestu verkin. Segir Ása að um-
sóknirnar hafi verið hver annarri betri
og erfitt að gera upp á milli verka.
Létti það heldur ekki störf dómnefnd-
arinnar að í allri sögu tvíæringsins
hafa umsóknir hafa aldrei verið fleiri.
„Eingöngu er um að ræða nýverk sem
frumsýnd hafa verið á tímabilinu 2016
til 2018 og að auki eru nokkur verk
kynnt, í sérstakri dagskrá í Bíó Para-
dís, sem eru glæný og hafa sum hver
ekki enn verið frumsýnd,“ útskýrir
Ása og bætir því við að dagskráin
skiptist tiltölulega jafnt á milli Norð-
urlandaþjóðanna.
Er dagskrá Ísheitrar svo viðamikil
að það er varla að finna það sýningar-
rými sem ekki er nýtt. Auk Bíós Para-
dísar, Tjarnarbíós, Þjóðleikhússins og
Borgarleikhússins verða haldnar sýn-
ingar, vinnustofur og fyrirlestrar á
Dansverkstæðinu, í Hafnarhúsi, Nor-
ræna húsinu, Dansgarðinum, Gaflara-
leikhúsinu, Iðnó, og á Ægisíðu.
Kominn tími á danshús
Það væri kannski ráð, áður en röðin
kemur aftur að Reykjavík að hýsa
stórviðburð í dansi að listgreinin eign-
ist sitt eigið sýningarhús. Ása segir
það hafa verið mikið framfaraskref
þegar Dansverkstæðið var opnað í
nýju húsnæði á Hjarðarhaga fyrir
skemmstu og er þar góð aðstaða fyrir
æfingar þó rýmið henti ekki fyrir sýn-
ingar. „Dansinn er því miður alltaf
upp á aðra kominn; hann ræður ekki
yfir sínum eigin sviðum, getur ekki
ákveðið hversu mikið hann sýnir eða
hvar. Og jafnvel þó að leikhús landsins
séu mjög jákvæð í garð dansins þá er
þetta listform, hvað húsnæði snertir,
ennþá litla systirin í íslensku listalífi,
sett út í horn, og er það óþolandi.“
Forsendurnar fyrir danssýninga-
húsi eru allt aðrar í dag en þær voru
fyrir bara tíu eða tuttugu árum. Ása
bendir á að mikil bylting hafi orðið á
íslensku danssenunni; margir fram-
úrskarandi danshöfundar og dansarar
komið fram á sjónarsviðið og listunn-
endur almennt áhugasamir um dans-
sýningar. „Það er alla jafna vel mætt
þegar dansverk eru sett á svið, mikill
vöxtur í íslenska danssamfélaginu og
íslenskur nútímadans fyllilega sam-
bærilegur við það besta sem finna má
erlendis.“
Fengi Ása að ráða vildi hún að
dansinn fengi hús sem auðvelt væri að
aðlaga jafnt stórum sem smáum við-
burðum. „Þetta hús mætti ekki vera
svo fínt og flott að ekki mætti hreyfa
Stór norræn danshátíð hefur
sprengt sali borgarinnar utan af sér
Morgunblaðið/Hari
Blómaskeið Ása nefnir ýmsar ástæður fyrir þeim krafti sem einkennir íslensku dans-senuna. Ein ástæða er brenn-
andi áhugi almennings sem kann að meta listrænar gæðastundir, og horfir til listanna, enda bregðast þær ekki.
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018
Jólagjafahandbók
S4S er komin út
á skor.is
» Grýla og Leppalúði hafa mörg síðustu ár komiðvið á Þjóðminjasafni Íslands stuttu áður en jóla-
sveinarnir, synir þeirra, koma af fjöllum hver á
fætur öðrum. Tröllahjónin litu inn á safninu í gær
til að hitta spennt börn sem hlakka til jólanna. Við
sama tækifæri söng Steiney Skúladóttir úr Reykja-
víkurdætrum nokkur lög við píanóundirleik Guðna
Franzsonar. Fyrsti jólasveinninn, Stekkjarstaur,
er væntanlegur til byggða 12. desember og leggur
þá auðvitað leið sína í Þjóðminjasafnið kl. 11 til að
heilsa gestum líkt og bræður hans munu gera hver
af öðrum fram á aðfangadag. Sveinarnir klæðast
fatnaði af gamla taginu, útskýra kenjar sínar og
klæki fyrir börnunum og syngja með þeim jólalög.
Tröllahjónin Grýla og Leppalúði heimsóttu
Gaman Mikið gekk á hjá Grýlu og Leppalúða og kunnu börnin vel að meta.
Gaman er frá því að segja að
Ása mun flytjast búferlum til
Brussel í febrúar og taka þar við
einu áhrifamesta starfi lista-
heimsins. Verður hún fram-
kvæmdastjóri sviðslistasamtak-
anna IETM og gantast með að
samtökin séu nokkurs konar
Nató sviðslistaheimsins. Er ráðn-
ingin til fimm ára með möguleika
á framlengingu í fimm ár til við-
bótar.
„Þetta eru ein stærstu lista-
samtök heims, stofnuð árið 1981
og að þeim eiga aðild yfir 500
leikhús, stofnanir, hátíðir, hópar
og aðrir úr öllum kimum sviðs-
listanna, auk ráðuneyta, listráða
og annarra opinberra aðila,“ út-
skýrir Ása en IETM hefur það
meginhlutverk að liðka fyrir sam-
skiptum og samstarfi og greiða
leið sviðslista á ýmsa vegu. Að
vonum hlakkar Ása til að takast
á við nýja starfið. „Það er mikill
heiður að fá þessa stöðu og von-
andi að ég geti nýtt tækifærið
eftir bestu getu til að vinna
einnig í þágu íslenskra sviðslista
á alþjóðlegum vettvangi.“
Mun stýra „Nató sviðslistaheimsins“
Á LEIÐ TIL BRUSSEL Á NÆSTA ÁRI