Morgunblaðið - 10.12.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.12.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2018 Lífleg jólasýning á annað hundrað listamanna opnuð í Ásmundarsal Margmenni Fjöldi fólks leit við á sýningunni um helgina í Ásmundarsal enda fjölbreytt 300 verk til sýnis eftir yfir hundrað listamenn. Ígrundun Það tekur tímann sinn að skoða slíkan fjölda verka sem raun ber vitni og sum krefjast meiri íhugunar en önnur. Skeggrætt, spáð og spekúlerað Gestir tóku tal saman, sum- ir glugguðu í gögn á meðan aðrir gáði í síma sína. Líf og fjör Gestalistamenn vinna að grafíkverkum í Gryfjuna og eru þau líka til sölu og var fólk mjög áhugasamt. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ós Pressan býður í dag, mánudag, kl. 19 til útgáfuhófs til að fagna þriðja tölublaði Ós – The Journal, árlegs fjöltyngds bókmenntasafns sem inniheldur verk eftir rithöf- unda, skáld og listafólk. Höfund- arnir eru af ólíkum uppruna, hafa mismunandi bakgrunn og skrifa fjölbreytta texta á ýmsum tungu- málum. Það sem sameinar þá er tengingin við Ísland. Í þessu þriðja tölublaði eru 45 verk eftir 30 höf- unda, skáld og listafólk á fimm tungumálum: ensku, íslensku, hol- lensku, spænsku og finnsku. Á upphaflegu tungumáli Bókmenntatímaritið Ós – The Journal er, samkvæmt tilkynningu, eina ritið gefið út á Íslandi sem birtir verk á mörgum tungumálum. Fyrstu tvö tölublöðin fengu mikla athygli og umfjöllun, í fjölmiðlum og meðal bókmenntaunnenda hér á landi. Nú þegar hefur verið birt efni eftir 82 höfunda frá ólíkum löndum, sem skrifa á hinum ýmsu tungumálum. Sum verkanna í ritinu voru þýdd á ensku eða íslensku, en öll birtast á upprunalegu tungumáli. Ós Pressan eru sjálfstætt starf- andi félagasamtök rithöfunda sem hafa það að leiðarljósi að styðja við nýja rithöfunda og koma þeim fram á sjónarsviðið. Auk þess vilja að- standendur skapa fjölbreytt rithöf- undasamfélag og ögra hefðbundinni bókaútgáfu á Íslandi. Með auknum áhuga á tímaritinu var ákveðið að sjónljóð og myndlist yrðu einnig birt. Meðal þeirra sem eiga efni í nýja tölublaðinu eru Ann- ija Orbante, Kári Tulinius, Wiola Ujazdowska, Karítas Hrund Páls- dóttir, Helen Cova, Sverrir Norland, Áslaug Hrefna Thorlacius, Johnny Atlas, Sébastien Nouat, Marloes Robijn og Yoav Tirosh. 45 verk eftir 30 ólíka höfunda víða að  Útgáfuhóf Ós Pressunnar í kvöld Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Margir skrifa Kári Tulinius er einn höfunda efnis í tölublaðinu nýja. Holtagörðum-Lóuhólum-Akureyri-Selfossi- Bolungarvík-Vestmannaeyjum ÞÚ FÆRÐ HJÁ OKKUR! S; 537-5000 dyrarikid@dyrarikid.is ICQC 2018-20 » Á annað hundraðmyndlistarmenn af ólíkum kynslóðum, ís- lenskir og erlendir, lítt þekktir sem mjög þekktir, eiga verk á Jólasýningu Le Grand Salon de Noël sem var opnuð í Ásmundarsal á laugardag. Fjöldi gesta leit við um helgina en um 300 verk þekja alla veggi og geta gestir keypt myndverk og tekið með sér, og eru þá önnur sett upp í stað- inn. Alla daga fram að jólum vinna gestalista- menn að grafíkverk- um í Gryfjuna og eru þau líka til sölu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.