Morgunblaðið - 27.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.12.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018 Holtagörðum-Lóuhólum-Akureyri-Selfossi- Bolungarvík-Vestmannaeyjum ÞÚ FÆRÐ HJÁ OKKUR! S; 537-5000 dyrarikid@dyrarikid.is Jón Gnarr, fyrrverandi leppurDags B. Eggertssonar í stóli borgarstjóra, leit stuttlega upp úr önnum sínum við að skrifa skaupið til að verja þennan velgjörðarmann sinn. Jón hefur ekki breytt háttum sínum og tekur því fram að hann hafi ekki lesið braggaskýrsluna, en heldur því samt fram að Dagur hafði orðið fyrir aðför í málinu og að ekki sé við hann að sakast.    Jón segir að það séekki „spilling eða vanhæfni“ sem valdi gegndarlausum fjár- austri borgarinnar heldur sé þetta „kerfislægur vandi“.    Og af því að Íslendingar eru meðsvo „stjarnfræðilega lélegt regluverk“, að mati Jóns, þá ber yfirmaðurinn enga ábyrgð.    En þetta er ekki það eina semleppurinn fyrrverandi nefnir. Hann kýs líka að draga veikindi Dags inn í málið og finnst „soldið sérstakt“ að í „korterslöngu Kast- ljósviðtali“ sé „ekki vikið einu orði að veikindum hans“.    Getur verið að það sé vegna þessað Dagur var ekki í veikinda- leyfi þegar fjárausturinn átti sér stað og hefur ekki skýrt fram- úrkeyrsluna með veikindum?    Ekki er ljóst hvað leppurinn fyrr-verandi er að fara með því að blanda sér inn í braggamálið á svo undarlegum forsendum.    Hitt er ljóst að skaupið verðurforvitnilegra eftir þessa inn- komu. Jón Gnarr Leppurinn leit upp úr skaupskrifunum STAKSTEINAR Dagur B. Eggertsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kolbeinn Aron Arnar- son, markmaður ÍBV í handbolta, er látinn. Hann var fæddur 30. nóvember 1989 og varð bráðkvaddur á heimili sínu á að- fangadag, 29 ára að aldri. Móðir Kolbeins Arons er Ingibjörg Kolbeinsdóttir. Kolbeinn Aron gekk í Grunnskóla Vest- mannaeyja og síðar í Fjölbrautaskólann í Vestmannaeyjum. Á starfsferli sínum starf- aði hann hjá Eimskip, Godthaab í Nöf og á Hótel Vestmannaeyjum. Í tilkynningu á heimasíðu ÍBV segir að Kolbeinn Aron hafi verið einn af lykilmönnum í uppbyggingu og velgengni handboltans í Vest- mannaeyjum undanfarin ár. Eftir að hafa æft og leikið með yngri flokkum ÍBV hafi hann 17 ára gamall leikið sinn fyrsta leik með meist- araflokki árið 2006. Kolbeinn Aron spilaði alls 279 leiki fyrir fé- lagið og er hann fjórði leikjahæsti maður félagsins frá upphafi. „Kolbeinn Aron átti stóran þátt í því er liðið varð eftir- minnilega Íslands- meistari í fyrsta skipti árið 2014 og bikarmeistari ári síðar. Fráfall Kolbeins Arons er öll- um sem þekktu hann mikið áfall. Hjá okkur sem vorum með honum í handboltanum situr eftir sorg og söknuður; þakklæti og virðing,“ segir í tilkynningu ÍBV. Andlát Kolbeinn Aron Arnarson handknattleiksmaður Eldra fólki í Grímsnes- og Grafn- ingshreppi býðst frá og með áramót- um að koma í hádegismat í Kerhóls- skóla sér að kostnaðarlausu, rétt eins og að fara í sund og nýta sér aðra íþróttaaðstöðu á svæðinu. „Okkur finnst mikilvægt og gaman að koma til móts við þennan hóp, en þetta eru um 70 manns en í sveitarfé- laginu öllu búa um 480 manns,“ segir Ása Valdís Árna- dóttir, oddviti sveitarstjórnar, í samtali við Morgunblaðið. Kerhólsskóli, sem er við félags- heimilið á Borg í Grímsnesi, er í sveitarfélaginu miðju og þarna eru leik- og grunnskóladeildir undir sama þaki. Nemendur eru alls um 70 talsins og fá þeir ásamt eldri borgurunum há- degisverðinn ókeypis. Kostar 6 millj. kr. á ári „Máltíðir í skólanum kosta sveitarsjóð tæpar sex milljónir króna á ári og þó að eldra fólkið bæt- ist við eykst kostnaður sáralítið. Með þessu móti fær fólkið góða næringu, hittir mann og annan og getur stund- að íþróttir. Hér fara því saman holl- usta, hreyfing og hamingja svo þetta er satt að segja alveg rakið dæmi,“ segir Ása Valdís. sbs@mbl.is  Nýtt í Gríms- nesi  Frítt í sund Ljósmynd/Aðsend Kerhólsskóli Miðstöð samfélagsins í Grímsnes- og Grafningshreppi. Ása Valdís Árnadóttir Eldri borgarar fá ókeypis hádegismat Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.