Morgunblaðið - 27.12.2018, Page 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. DESEMBER 2018
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé
hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og
sérfræðingar í heimilistækjum keppast
við að hanna hágæða eldhús sem
standast tímans tönn, með virkni, gæði
og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið
er fjárfesting til framtíðar - tryggðu þér
raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Átta ára innflytjendapiltur frá Gvatemala lést aðfara-
nótt þriðjudags eftir að hafa greinst með háan hita.
Drengurinn var handsamaður ásamt föður sínum 18.
desember síðastliðinn í El Paso í Texas eftir að þeir
höfðu komið ólöglega inn í Bandaríkin á landamær-
unum við Mexíkó.
Vörður tók eftir sjúkdómseinkennum hjá drengnum
á mánudagsmorgun og var hann færður undir lækn-
ishendur. Drengurinn var greindur með kvef og gefið
parasetamól, og síðar sýklalyf og íbúprófen þegar hann
mældist með 39,4°C hita. Þegar leið á kvöldið virtist
drengurinn rænulítill og var fluttur aftur á sjúkrahús
en kastaði upp og missti meðvitund á leiðinni, að því er
BBC greinir frá. Ekki tókst að koma drengnum aftur
til meðvitundar og lést hann skömmu eftir miðnætti.
Fyrr í mánuðinum lést annað barn sem komið hafði
ólöglega til Bandaríkjanna. Jakelin Caal var sjö ára
gömul og einnig frá Gvatemala. Landamæraverðir
stöðvuðu för stúlkunnar og föður hennar í El Paso og
þar lést hún á spítala 8. desember af völdum hás hita
sem olli hjartaáfalli, bólgu í heila og lifrarbilun.
Jakelin var borin til grafar á jóladag í heimabæ sín-
um San Antonio Secortez í Gvatemala en faðir hennar
er enn í haldi í Bandaríkjunum. ai@mbl.is
Annað barn deyr í vörslu
landamæravarða í desember
AFP
Leiðarlok Ástvinir kveðja Jakelin Caal litlu, sem fékk hita og lést í miðstöð fyrir ólöglega innflytjendur í Texas.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
greindi frá því á miðvikudag að her
landsins mundi á næsta ári taka í
notkun nýja gerð skotflauga sem
gætu borið kjarnaodd og ómögulegt
yrði að stöðva með hefðbundnum
eldflaugavarnarkerfum. Skot-
flaugin, sem fengið hefur nafnið
Avangard, getur ferðast á marg-
földum hljóðhraða, og á auðveldlega
að geta breytt um stefnu á flugi til
að forðast varnarbúnað. ai@mbl.is
Rússar smíða kjarnorkuflaug
sem nær margföldum hljóðhraða
AFP
Sprengja Pútín fylgdist með prófun
á Avangard-flaug fyrr í vikunni.
RÚSSLAND
Leit að eftirlifendum stendur enn yfir í Banten- og Lampung-héraði í
Indónesíu þar sem flóðbylgja skall á á laugardag. Á miðvikudag var stað-
fest að 430 manns hefðu látið lífið í hamförunum og að a.m.k. 159 væri enn
saknað. Þá eru nærri 1.500 slasaðir og um 21.000 manns hafa þurft að yfir-
gefa heimili sín vegna þeirra skemmda sem flóðbylgjan olli og vegna hætt-
unnar á annarri flóðbylgju.
Mikið úrhelli hefur verið á svæðinu undanfarna daga og gert björg-
unarsveitum erfitt um vik að athafna sig og koma vinnuvélum á vettvang.
Að sögn Reuters þykir núna ljóst að flóðbylgjan hafi stafað af risaskriðu
neðansjávar. Á svæði á stærð við 90 knattspyrnuvelli að hafa runnið af stað
og framkallað fimm metra háa flóðbylgju sem skall á ströndinni 24 mín-
útum síðar. Kerfi sem vara átti við mögulegum flóðbylgjum fór ekki af stað
þar sem skriðan greindist ekki á jarðskjálftamælum. ai@mbl.is
Úrhelli hamlar björgunarstarfi
AFP
Áfall Stúlka ber eigur sínar burt úr rústum heimilis síns á flóðbylgjusvæðinu.
INDÓNESÍA