Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 31 Fullveldi Íslands É g get ekki ímyndað mér Ísland öðruvísi en frjálst og fullvalda. Samt er í raun svo stutt síðan veruleikinn var allt annar hér á landi. Margra alda undirokun er- lendra ríkja setti mark sitt á þjóðlífið og sjálfsmynd okkar, en undir því oki kraumaði samt löngunin og þörfin til að vera sjálf- stæð. Að ráða okkur sjálf, án afskipta ann- arra, sama hvað sú ákvörðun kynni að hafa í för með sér. Við vorum ein fátækasta þjóð Evrópu og bjuggum meðal annars við lélegan húsakost. Það kom ekki í veg fyrir að við byggðum vel yfir menningararf okkar, því einhvers staðar blundaði vissan um að það væri mikilvægt að „þjóðin reyni að varðveita þann andlega auð, sem hún hefir fengið í arf frá umliðnum öldum, og reyni að leiða góða andlega strauma frá umliðna tímanum inn í nútím- ann og ókomna tímann,“ eins og sagt var í umræðum á þingi þegar tillagan um að reisa Safnahúsið við Hverfisgötu var lögð fram ár- ið 1894. Tilefnið var að minnast 50 ára af- mælis endurreisnar Alþingis með myndar- legum brag. Þetta var mikið fyrirtæki og ekki óumdeilt, enda tók það tímann sinn að undirbúa bygginguna. Frá því tillagan kom fram og byggingin reis hafði Ísland fengið heimastjórn og uppkastinu, fyrsta frum- varpinu til sambandslaga verið hafnað, en þar þótti Íslendingum ekki nógu langt geng- ið við að tryggja stöðu og réttindi landsins. Nefna má, til marks um hversu stórt var hugsað á þessum tíma, að byggingarfram- kvæmdin kostaði sem svarar til um tæplega 20% af tekjum ríkissjóðs árið 1909, árið sem húsið var tekið í notkun. Ef sama hlutfalli yrði varið til byggingarinnar nú, myndi það þýða um 170 milljarða króna útgjöld. Til samanburðar má nefna að heildarkostnaður við nýjan Landspítala verður um 80-100 milljarðar. Stórhugurinn skilaði okkur lengra En sennilega hefur það verið slíkur stór- hugur sem hefur skilað okkur lengra en bú- ast mætti við, miðað við hina frægu höfða- tölu. Útlendingar furða sig nefnilega oft á því hvernig svona smáþjóð fari að því að vera sjálfri sér næg og í raun svo miklu meira en það. Ég held að enginn ætli að halda því fram að þetta átak sem við þurft- um að gera til að komast á þennan stað hafi verið auðvelt. Það var heldur ekki það sem Íslendingar í upphafi 20. aldar gerðu ráð fyrir, en vissan um að árangurinn af erfið- inu myndum við uppskera sjálf, sem þjóð meðal þjóða, hvatti áa okkar áfram. Og við höfum uppskorið. Þetta land skar- ar fram úr í lífskjörum. Okkur hefur tekist á einungis öld að fara frá því að vera bláfá- tæk í að verða ein best stæða þjóð álfunnar. Við höldum uppi þjónustu, mennta- og menningarstarfsemi sem sæmir milljóna þjóð og eigum framsækið, fjölbreytt og öflugt atvinnulíf. Þetta er ekkert minnihátt- ar afrek, þegar litið er til baka á þær að- stæður sem Íslendingar bjuggu við fyrir einungis einni öld. Atvinnuhættir voru fá- breyttir og við treystum alfarið á landbúnað og fiskveiðar. Aðrar atvinnugreinar vógu lít- ið í þjóðarbúskapnum. Gátum brugðist hratt við aðstæðum Ég hitti í vikunni erlendan fjármálaráðherra sem vildi fræðast um það hvernig Ísland hefði rifið sig upp úr kreppunni eftir fall bankanna. Ég sagði eins og er að þar hefði margt unnið með okkur, ekki síst það að hafa sjálfstæðan gjaldmiðil sem hefði aukið samkeppnishæfni landsins þegar við þurft- um mest á því að halda. Hann hefði unnið með sveigjanlegum vinnumarkaði og svo hefði ferðaþjónustan verið hvalreki. En fyrst og fremst hefði þetta snúist um það að geta brugðist hratt við aðstæðum og tekið sjálf- stæðar ákvarðanir sem á margan hátt voru þvert á ráðleggingar og kröfur stórþjóða og alþjóðastofnana. Hugsanlega má segja að það hafi ekki verið án áhættu, en það var áhætta sem við tókum sjálf ákvörðun um að axla. Rétt eins og þegar langafar og lang- ömmur okkar ákváðu í lok þessa erfiða árs, 1918, að það væri þess virði að halda út í óvissuna, frjáls og fullvalda, með lýðveldið innan seilingar. BJARNI BENEDIKTSSON, FJÁRMÁLARÁÐHERRA OG FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Frjáls og fullvalda ’ Ég held að enginn ætli að halda því fram að þetta átak sem við þurftum að gera til að komast á þennan stað hafi verið auðvelt. Það var heldur ekki það sem Íslendingar í upphafi 20. aldar gerðu ráð fyrir, en vissan um að árangurinn af erfiðinu myndum við uppskera sjálf, sem þjóð meðal þjóða, hvatti áa okkar áfram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.