Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 33
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 33 Fullveldi Íslands Ljósmynd/Hörður Sveinsson Gæfusmiðir S káldið Einar Bragi orti í Báruljóði: Lítill kútur – lék í fjöru – og hló, báran hvíta – barnsins huga – dró. Langrar ævi – yndi og vos – á sjó, báran svarta – bylti líki – og hló. Í þessu áhrifaríka ljóði lýsir skáldið vel nöprum veruleika Íslendinga langt fram á okkar daga og sýnir hvað við erum lítil og máttvana gagnvart náttúruöflunum; jafnvel þeim sömu og eru undirstaða lífsafkomu okk- ar. Á sama tíma og þau fæða okkur, klæða og seiða til sín í fegurð sinni, geta þau breyst í ófreskju í einu vetfangi, hrifsað til sín líf okkar eða kvalið seigdrepandi dauðdaga; skilið ást- vini eftir berskjaldaða og agnarsmáa. Með tímanum hefur mannskepnan lært að búa í haginn; hagnýta tækni, þannig að náttúr- an fer ekki jafn óblíðum höndum um okkur í amstri dagsins; en um leið höfum við gengið svo nærri þolmörkum hennar á mörgum svið- um að risastór skuggi hvílir yfir öllu mannkyn- inu. Eitt brýnasta verkefni okkar er að endur- skoða algerlega umgengni um náttúruna, þannig að við stefnum ekki tilvist mannkyns og lífríkis, eins og við þekkjum, í voða. Við Íslendingar þurfum að afla nýrrar þekk- ingar, vera varkár, nýta landið okkar skyn- samlega með sjálfbærum hætti. En einnig að búa þannig um hnútana að við getum tekið þátt í verkefnum, sem eðli þeirra vegna krefj- ast fjölþjóðlegs samstarfs. Það er nauðsynlegt til að tryggja fullveldi okkar og styrkja það til framtíðar. Getum tryggt mannsæmandi lífskjör En á meðan náttúran getur verið duttlunga- full og stundum miskunnarlaus er menningin verk okkar sjálfra. Skipting efnahagslegra og félagslegra gæða, skólar, öruggt húsnæði og heilbrigðisþjónusta eða auðlindastýring eru t.d. ekki náttúrulögmál – þar erum við sjálf okkar gæfu smiðir. Við verðum því að hafa getu til að takast á við grundvallarverkefni samtímans. Með skynsamlegri samneyslu getum við tryggt hverjum einasta íbúa landsins mannsæmandi lífskjör og með nýrri stjórnarskrá fest þessi og önnur grundvallarréttindi enn betur í sessi. Við þurfum líka að gangast við ábyrgð okk- ar sem manneskjur og muna hvaðan við kom- um. Það er of stutt síðan að Íslendingar gátu ekki brauðfætt börn sín og flúðu þúsundum saman vestur um haf í leit að betra lífi, til þess að við getum litið undan nú, þegar milljónir manna eru á flótta undan fátækt, stríði og loftslagsógnum. Enn mikið verk að vinna Hundrað ára afmæli fullveldis Íslands er vissulega merkilegur áfangi í sögu þjóðar sem lifði í árhundruð, ekki aðeins af náttúrunni heldur einnig þrátt fyrir hana. Það er full ástæða til að fagna þessum merku tímamótum og hugsa hlýtt til forfeðra okkar sem hafa með fórnfýsi, ódrepandi baráttuanda og bjartsýni að vopni gert okkur kleift að búa við þær að- stæður sem við gerum í dag. Jafnframt hvílir á okkur sú skylda að skila komandi kynslóðum landinu í jafn góðu, og helst betra ástandi en við tókum við því. Nú þegar við höfum komið ár okkar vel fyrir borð verður nánasta framtíð að snúast um að tryggja öllum réttmæta hlutdeild í gæðum landsins. Þrátt fyrir að Ísland sé í dag 11. auð- ugasta þjóð í heimi hefur okkur ekki tekist það. Við lifum hvorki á meðaltölum né vísitöl- um og á meðan þúsundir barna lifa enn við skort og stórir hópar eiga erfitt með að ná endum saman er mikið verk að vinna. Fullveldi þjóðar er vissulega dýrmætt og eitthvað til að gleðjast yfir en fölnar óneitan- lega ef við getum ekki sýnt hvoru öðru virð- ingu og traust og tryggt öllum möguleika á að lifa við öryggi og reisn alla ævi. LOGI EINARSSON, FORMAÐUR SAMFYLKINGARINNAR ’ Nú þegar við höfum komið ár okkar vel fyrir borð verður nánasta framtíð að snúast um að tryggja öllum réttmæta hlutdeild í gæðum landsins. Greinin er unnin úr ræðu sem flutt var á hátíðarfundi Alþingis 18. júlí.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.