Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.12.2018, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 35 Fullveldi Íslands Þ rátt fyrir framfarir á ótal sviðum eiga Vesturlönd í sögulegum vanda sem sér ekki fyrir endann á. Stoð- irnar sem árangurinn var reistur á eru nú vanræktar. Ástæðurnar eru margar en meginskýringin gæti verið sú að of margir Vesturlandabúar líti á þau lífsgæði sem fólk býr við sem sjálfsögð og sjálfgefin. Þekkt er að lærdómur kynslóða af reynslu forver- anna er jafnan minni en æskilegt væri. Hættan sem mörg velmegandi samfélög standa nú frammi fyrir stafar ekki hvað síst af því að of lítill gaumur er gefinn að því að aðstæðurnar sem við búum nú við eru afleiðing aldalangrar þróunar. Löng saga og viðburðarík Samfélög Vesturlanda og flest það sem bætir líf íbúa þeirra er afsprengi af aldalöngu sam- spili ýmissa þátta, stjórnkerfa, trúarbragða, heimspeki, vísinda o.s.frv. Það hvernig til tókst er síður en svo sjálfgefið. Þegar litið er yfir söguna eru lýðræði og almenn mannréttindi undantekning frekar en regla og enn býr mikill minnihluti mannkyns við það sem við teljum full réttindi og viðunandi kjör. Nú þegar við fögnum 100 ára afmælinu er við hæfi að leggja mat á eðli fullveldisins og hlutverk og huga að því hversu mikið það hefur veitt okkur sem þjóð. Um leið og við minnumst þess að fullveldið kom ekki af sjálfu sér er mik- ilvægt að muna að það er ekki sjálfgefið að það viðhaldist. Minnumst þess líka að fullveldið er nátengt lýðræðishugsjóninni. Þeirri hugmynd að fólk eigi að ráða samfélögum sínum sjálft. Samhliða því að standa vörð um fullveldið ættum við að efla lýðræðið fremur en að draga úr mætti þess með því að fela ólýðræðislegu stjórnkerfi hér á landi eða erlendis sífellt meiri völd. Það er eins með fullveldið og lýðræðið að árang- urinn sem af því hlýst helgast af því hvernig með það er farið. En ef lýðræðið fær að virka sem skyldi ráða þó samfélög eigin örlögum. Vörn í krafti fullveldis Þótt hin miklu áhrif fullveldis blasi e.t.v. ekki við dags daglega eru ekki mörg ár síðan það reyndi á fullveldið og Íslendingar fengu að kynnast því hversu miklu máli það skiptir að við höfum eigin örlög í hendi okkar. Erlend ríki og fjölþjóðastofnanir reyndu að innheimta af íslenskum almenningi skuldir sem einkarekin fyrirtæki höfðu stofnað til utan lögsögu Íslands. Meðal þeirra sem harðast gengu fram við innheimtu voru fulltrúar ríkja sem höfðu aukið á tjónið sem íslenskum al- menningi var ætlað að greiða fyrir. Það var eingöngu í krafti fullveldis Íslands sem þeim tilraunum var hrundið. Sókn í krafti fullveldis Baráttan um hvert skyldi stefnt hélt áfram innan lands en sú barátta fór fram milli ís- lenskra stjórnmálaflokka og -manna og niður- staðan varð sú að gripið var til efnahagsað- gerða sem eiga sér enga fyrirmynd og skiluðu fordæmalausum árangri. Hinar fortakslausu aðgerðir sem gripið var til á árunum 2013-16 til að endurreisa efnahag landsins og bæta lífskjör landsmanna hefðu ekki verið mögulegar nema vegna þess að við réðum okkur sjálf og gátum tekið þær ákvarð- anir sem við töldum best til þess fallnar að verja hagsmuni samfélagsins. Áhugavert er að bera þróunina á Íslandi undanfarin ár saman við þróunina í löndum sem hafa gefið eftir meira af fullveldi sínu en við. Grikkland var til að mynda látið leggja óvið- ráðanlegan skuldaklafa á almenning til fram- tíðar og ráðast í aðgerðir sem hafa ekki skilað öðru en ávinningi fyrir alþjóðlega banka og niðurskurði, atvinnuleysi og viðvarandi lífs- kjaraskerðingu fyrir grískan almenning. Á sama tíma náði Ísland hraðasta efnahags- lega viðsnúningi sem sögur fara af og gerði það í krafti fullveldisins. Árangur í 100 ár Engin þjóð hefur náð viðlíka framförum á sviði lífskjara og samfélagsinnviða undanfarin 100 ár og Íslendingar. Áhrifin birtust fljótt og tengingin við fullveldið var augljós. Á undanförnum árum hefur að vísu borið á tilraunum til að gera minna úr árangri Íslend- inga og miklum afrekum 20. aldarinnar. Þeir sem upplifðu breytingarnar voru hins vegar ekki í nokkrum vafa um áhrif fullveldisins og þegar kom að því að taka ákvörðun um hvort því skyldi fylgt eftir með lýðveldisstofnun var niðurstaðan nánast samhljóða. Þjóðríki sem lýtur lýðræðislegri stjórn hefur reynst betur en nokkurt annað stjórn- kerfi mannkynssögunnar. Ekkert lýðræðisríki hefur háð stríð við annað lýðræðisríki. Þó ber á því nú að grafið sé undan hugmyndinni um þjóðríki af þeim sem hallir eru undir vald al- þjóðastjórnkerfa. Með því er um leið grafið undan lýðræðishugsjóninni. Þeir sem vilja lúta vilja almennings og verja fullveldi eru upp- nefndir, jafnvel leitast við að rugla þeim saman við einangrunarsinna og poppúlista. Í hinni ósvífnu baráttu „alþjóðasinnanna“ hafa orðið til óvenju sérkennileg og áhrifamikil bandalög. Þar á bæ virðist lýðræði jafnvel talið varasamt fyrirbæri. Meira en 1.000 ára saga Fullveldið var afleiðing 1.000 ára sögu. Þótt hin eiginlega sjálfstæðisbarátta hafi orðið til á 19. öld, m.a. vegna áhrifa af hugmyndafræði- legri þróun á Vesturlöndum, hafði þrautseigja landsmanna öldum saman skapað jarðveginn sem réð úrslitum um að fullveldi náðist. Sagan, minningin um að Íslendingar hefðu eitt sinn verið sjálfstæð þjóð sem unnið hafði merkileg afrek, var ómetanleg hvatning í baráttunni fyrir endurheimt sjálfstæðis. Ekki er gott að segja hvernig sú barátta hefði gengið ef sögu- skýringar samkvæmt tísku samtímans hefðu ráðið för. Sagan og menningin hafði líka úrslitaáhrif á að fullveldið nýttist eins vel og raun bar vitni. Áhersla á bókmenntir og lestrarkunnáttu frá upphafi Íslandsbyggðar varð til dæmis til þess að þjóðin var í stakk búin til að nýta tækifærin þegar þau gáfust. Við eigum forystumönnum sjálfstæðis- baráttunnar og fyrri kynslóðum Íslendinga mikið að þakka. Við þessi tímamót sýnum við þakklætið best með því að meta virði full- veldisins og átta okkur á því að það kom ekki af sjálfu sér og því að það er ekki sjálfgefið að það varðveitist. Fullveldið þarf að verja og það er sannar- lega þess virði að verja það. SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON, FORMAÐUR MIÐFLOKKSINS Morgunblaðið/Hari Raunveruleg áhrif fullveldisins ’ Við eigum forystumönnum sjálf- stæðisbaráttunnar og fyrri kyn- slóðum Íslendinga mikið að þakka. Við þessi tímamót sýn- um við þakklætið best með því að meta virði fullveldisins og átta okkur á því að það kom ekki af sjálfu sér og því að það er ekki sjálfgefið að það varðveitist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.