Morgunblaðið - 01.12.2018, Side 39
LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2018 39
Fullveldi Íslands
1948, skömmu eftir valdarán kommúnista í
Tékkóslóvakíu:
Og ofbeldishneigðin, sem herjar á þjóðir og
lönd,
fær hvergi dulist, hve títt sem hún litum skiptir.
— í gær var hún máske brún þessi böðuls-
hönd,
sem blóðug og rauð í dag sínu vopni lyftir.
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní 1949, skömmu
eftir að Íslendingar höfðu gengið í Atlants-
hafsbandalagið til að verja fullveldi sitt, orti
Tómas:
En vit, að öll þín arfleifð, von og þrá
er áskorun frá minning, sögu og ljóðum,
að ganga af heilum hug til liðs við þá,
sem heiminn vilja byggja frjálsum þjóðum.
Tómas mælti líka fyrir andlegu frelsi á fjöl-
mennum fundi Stúdentafélags Reykjavíkur í
janúar 1950, þar sem Þórbergur Þórðarson
var til andsvara. Benti Tómas á, að nú væri
komin til sögunnar ný tegund þrælahalds, and-
leg ánauð, þar sem ríkið reyndi ekki aðeins að
stjórna gerðum manna, heldur líka hugsun.
Til varnar vestrænni menningu
Ræða Tómasar Guðmundssonar á fundinum
1950 er birt í bókinni Til varnar vestrænni
menningu, sem Almenna bókafélagið gefur út í
tilefni 100 ára fullveldis 1. desember 2018
Morgunblaðið/RAX
Icesave-samningurinn, sem gerður var
sumarið 2009, hefði haft í för með sér
fullkomið afsal fullveldisins. Hér er
honum mótmælt við Bessastaði.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi varaði við erindrekum erlends valds
í ræðu á héraðsmóti Sjálfstæðisflokksins 1958.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Tómas Guðmundsson reis upp til varnar andlegu frelsi á fundi Stúdenta-
félags Reykjavíkur 1950. Hann taldi því ógnað í ríkjum kommúnista. SJÁ SÍÐU 40