Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 8
VETTVANGUR 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018 595 1000 Bir tm eð MIKIÐÚRVALSÓLARÁFANGASTAÐA SUMARIÐ2019 Verð m.v. 9. júní á Almería í 7 nætur á Estrella de Mar fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur ra Frá kr. 86.495 Frá kr. 76.995 Spánn - Tyrkland - Grikkland - Ítalía - Króatía - Slóvenía Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða. ENZYMEDICA býður gleðilegt ár! DIGEST öflugustu meltingarensmín á markaðnum, henta öllum aldurshópum ACID SOOTHE náttúruleg lausn gegn brjóstsviða og nábít sem virkar nánast samstundis Fæst nú á 25% afsl ætti á flestum sölustöðu m GLEÐILEGT ÁR Eggert Það er merkilegur siður að strengja áramóta-heit. Við upphaf nýs árs fær fólk einhverjaundarlega þörf til að breyta lífi sínu og koma skikk á hluti. Bara af því að ártalið breytist. Sjálfur er ég ekki saklaus af þessu. Ég hef heitið því að hætta öllu mögulegu og byrja á ýmsu betra. Það hefur sjaldnast gengið vel. Áramótaheit eru eins og ofsafenginn megrunar- kúr. Skyndilega á allt að breytast til hins betra og það á einmitt að gerast á þeim degi sem er verst til þess fallinn: Nýársdegi. Látum liggja á milli hluta að stór hluti þjóðarinnar vaknar með margvíslega timburmenn eftir áramótafögnuð, uppþembdur af hátíðarmat og með óþægindi í lungum eftir rakettur, sem hafa mögulega kostað miklu meira en til stóð og týndust svo bara á himninum með öðrum rakettum, sem voru aðeins stærri og dýrari. Sem að sjálfsögðu bætir við smá minnimáttarkennd. Við vöknum semsagt, á fyrsta degi nýs árs. Myrkrið er nánast í hámarki, það er langt í næsta frí og hátíðirnar með gjöfum og góðum mat eru að baki. Það er eiginlega allt sem segir að þetta sé alls ekki tíminn til að ákveða meiriháttar breytingar á lífinu. Það eru sennilega álíka miklar líkur á að áramóta- heit gangi almennilega eftir og að hljómsveit lag- lausra manna sem stofnuð er á fylleríi slái í gegn. Sumir fara þetta á hnefanum, enda kannski ekki búið að leggja neinn grunn að því að hætta að reykja eða drekka, borða vitlaust eða byrja í ræktinni. Það er bara búið að fresta því aftur og aftur þartil kemur að þessum degi, 1. janúar. Einsog hann sé svarið við öllum vandamálum okkar og þá muni, á einhvern ótrúlegan hátt, allt verða betra og auðveldara. Sumir falla strax í janúar. Hella sér aftur í brauðið, fara að tala um að þeir hafi mætt í ræktina einn dag í röð og fá sér kannski bara einn og einn vindil þegar þeir fá sér í glas. Sem gerist æ oftar. Febrúar verður þá jafnvel mánuður afneitunar og svo kemur að því í byrjun mars að menn horfast í augu við að þeir líta ekki út eins og Aquaman eða Rúrik Gíslason og eru farnir að reykja pakka á dag, sléttmildir og jafnbúttaðir og í desember. Og eru klárlega ekki besta útgáfan af neinum. Þá upplifa margir þá stund að játa fyrir sjálfum sér að þetta sé tómt klúður, sætta sig við það og segja: „Ég geri þetta bara um næstu áramót,“ sem er ekkert líklegra til að skila árangri. Þessi áramóta- heit snúast nefnilega svo auðveldlega upp í áramóta- hate. Nú geri ég gjarnan grín að sjálfshjálparbókum sem ætla að leysa öll heimsins vandamál fyrir mann, þannig að mér finnst pínu óþægilegt að setja sjálfan mig í þá stöðu að ætla að fara að gefa fólki ráð um hvernig það eigi að haga lífi sínu. En ef ég hef lært eitthvað í þessum fræðum, þá er það sennilega þetta: Lífið er ekki átak. Það er löng leið sem við förum. Við breytum okkur ekki með því að skipta um gír á fyrsta degi ársins. Við breytum okkur með því að haga okkur að jafnaði öðruvísi og reyna að vera betra fólk. Og ef við viljum breyta okkur þá verðum við fyrst að vilja það. Ef við svo breytum til er ekki gott að nota rífaafplásturinn-aðferðina. Hún virkar eiginlega bara við að rífa af plástur. Reyndu frekar að bæta þig hægt og rólega. Byrja kannski að skokka, draga úr namminu, minnka reyk- ingar. Búðu þig undir að hætta hlutum eða gera stór- ar breytingar. (Líkurnar eru nokkurn veginn 1/365 að nýársdagur sé akkúrat dagurinn sem það gerist.) Sjálfur ætla ég á næsta ári að vera meira með börnunum mínum, rækta vini mína betur og taka til í þessum bölvaða bílskúr. Einn ganginn enn. Það ger- ist bara þegar það gerist. Gleðilegt nýtt ár. Áramótahate ’Febrúar verður þá jafnvel mánuður afneitunar og svo kemur að því í byrj-un mars að menn horfast í augu við að þeir líta ekki út eins og Aquamaneða Rúrik Gíslason og eru farnir að reykja pakka á dag, sléttmildir og jafn-búttaðir og í desember. Og eru klárlega ekki besta útgáfan af neinum. Á meðan ég man Logi Bergmann logi@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.