Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 28
Anda- bringa Fyrir 4 2-4 stk andabringur, eftir stærð 1 stk fersk rósmaríngrein 2 stk hvítlauksgeirar 1 stk appelsína 1 msk smjör 1 msk hunang 2 stk bökunarkartöflur 1 stk epli 3 stk ferskar timían greinar 16 rósakálshausar 100 gr beikon 1 stk laukur 3 stk hvítlauksgeirar 1 líter nautasoð (hægt að kaupa tilbú- ið í t.d. Kjötkompaníinu) 40 gr smjör Skerið laukinn og hvítlaukinn fínt niður og setjið í pott með smá olíu og léttsteikið, hrærið reglulega í pottinum á meðan. Þegar lauk- urinn er orðinn glær má setja nautasoðið út í. Sjóðið niður um ca. 1/3 eða þar til sósan er búin að þykkna vel, takið hana þá af hit- anum og setjið smjörið út í og hrærið vel þar til smjörið er alveg bráðnað. Takið börkinn utan af appelsínunni og setjið 2 bita af berkinum í sósuna sem verður veitt úr henni áður en hún er borin fram. Skerið appelsínuna í litla bita og kreistið safann úr afgangnum út í sósuna. Geymið appelsínubitana þar til öndin er tilbúin og setjið þá appelsínubitana út í sósuna rétt áð- ur en hún er borin fram. Skrælið bökunarkartöflurnar og rífið í rifjárni ásamt eplinu og legg- ið í vatn í ca. 30 mín. Sigtið þá vatn- ið frá og leggið á þurrt stykki og vindið allan vökva frá, rífið laufin af timíaninu og setjið í kartöflurnar og blandið saman. Mótið fjórar kökur úr kartöflunum og pressið vel. Steikið kökurnar upp úr olíu á vægum hita þar til þær eru fallega brúnaðar, bætið þá 2 msk af smjöri út á pönnuna og snúið kökunum varlega við og brúnið þar til fal- legur litur er kominn. Kryddið með salti og pipar og setjið á bökunar- plötu og hellið smjörinu yfir kök- urnar. Klárið svo inni í ofni við 180°C í 10-12 mín, eftir þykkt á kökunum. Setjið beikonið á bökunarplötu og bakið þar til stökkt, leggið þá á þurrt stykki og kælið. Brjótið það svo niður og geymið. Skerið rósakálið í tvennt og tak- ið ystu laufin af, steikið á pönnu á vægum hita með 2 msk af smjöri. Snúið kálinu við þegar það er farið að brúnast og stráið beikoninu yfir og leyfið kálinu að malla í smjörinu þar til eldað í gegn. Kryddið með salti. Hreinsið andabringurnar og skerið í fituna. Setjið á kalda pönnu og leyfið hitanum að koma hægt upp. Brúnið þar til fitan er orðin gullin og bætið þá við 2 laufum af appelsínuberkinum. Kremjið hvít- laukinn og setjið á pönnuna ásamt rósmaríngreininni og smjöri. Snúið öndinni við og steikið hina hliðina og setjið svo andabringurnar í eld- fast mót og hellið smjörinu yfir, penslið hunangi á fituna og eldið í ofni þar til kjarnhitinn er kominn í 60°C. Leyfið öndinni að hvíla í u.þ.b. 10 mín áður en hún er skorin í þunnar sneiðar. 28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018 MATUR segir Gústav Axel Gunnlaugsson, kokkur og eigandi. Aðspurður segist Bjarni sjálfur vera með einfalda rétti um áramótin. Sitt sýnist hverjum um hvað þykir einfalt! „Ég er svo einfaldur, ég er með fylltar kalkúnabringur, lambalæri og hamborgarhrygg. Við erum með sextán manns í mat, þannig að það verður hlaðborð,“ segir hann. Gústav segist ætla að vera með fylltan kalkún og Well- ington-nautalund. Blaðamanni verður á orði að þeir ráðist ekki á garðinn þar sem hann sé lægstur en fyrir atvinnukokka þykir þetta ekki mikið mál. „Maður verður að vera með eitthvað fyrir alla, þetta er dagur þar sem allir eiga að vera sáttir,“ segir Gústav og hlær. Það er hátíðleg stemning á Sjávargrillinu á Skóla-vörðustíg þegar blaðamann ber að garði. Kokk-arnir þar eru í óða önn að matreiða áramótamat sem hentar öllum venjulegum heimiliskokkum. „Við bjóðum lesendum upp á bland af réttum; for- réttum, aðalrétti og eftirmat. Við setjum það þannig fram að fólk geti eldað þetta heima hjá sér. Svo er einn græn- metisforréttur sem alveg væri hægt að stækka og hafa sem aðalrétt,“ segir kokkurinn Bjarni Viðar Þorsteinsson. Hann nefnir að rétturinn geti jafnvel orðið vegan ef ost- inum er sleppt. „Í aðalrétt er svo einföld útgáfa af hunangsgljáðri anda- bringu sem er tilvalinn áramótamatur,“ segir Bjarni. „Það er fjölbreyttur matseðill, eitthvað fyrir alla,“ Morgunblaðið/Ásdís Áramótamatur kokkanna Bjarni Viðar Þorsteinsson og Gústav Axel Gunnlaugsson bjóða upp á einfalda og ljúf- fenga áramótarétti. Kokkarnir á Sjávargrillinu á Skólavörðustíg hafa sett saman áramóta- matseðil sem hver heimiliskokkur ætti að ráða vel við. Hægt er að koma fjölskyldunni skemmtilega á óvart með nýjum eðalréttum á áramótunum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Forréttur fyrir 4-6 12 stk humarhalar 4 stk tortillur, hver kaka dugar fyrir þrjár litlar kökur 1 dós hvítlauksmajónes 20 gr spínat 20 gr döðlur ½ stk rauðlaukur safi úr einni sítrónu 10 gr flórsykur kóríander parmesanostur Setjið döðlur í pott ásamt vatni og látið fljóta vel yfir þær. Sjóðið þar til mjúkar og hellið þá öllu í mat- vinnsluvél og maukið vel. Þynnið maukið með vatni eftir þörfum. Skerið laukinn í þunnar ræmur og setjið í skál, kreistið sítrónusafann yfir og stráið flórsykrinum yfir. Geymið við stofuhita þar til lauk- urinn mýkist upp. Stingið út tortillurnar í hæfileg- ar hringlaga stærðir (þrjár litlar kökur úr einni stórri) og hitið lítil- lega á pönnu. Steikið humarinn á pönnu upp úr olíu þar til fallega brúnaður og setjið smjör á pönn- una og lækkið undir, kryddið með salti, pipar og hvítlauksolíu og leyfið honum að malla í smjörinu þar til eldaður í gegn. Sprautið hvítlauksmajónesi á tortillurnar, raðið svo spínati ofan á og rauð- laukssultunni. Leggið humarinn ofan á rauðlaukinn og svo döðlu- maukið þar ofan á. Raðið kórían- derlaufum ofan á og rífið parmes- anost yfir. Gott er að kreista limesafa yfir rétt áður en borið er fram. Humar- taco 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.