Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.12. 2018
HEILSA
Litið um öxl við áramót. Mörg skref aðbaki á liðnu ári. Flest þeirra gleymd ogþað er erfitt að greina einn dag frá öðr-
um nema helst þá þar sem miklir atburðir urðu
eða eitthvað alveg einstakt gerðist. Og það er
eins með skrefin og ákvarðanirnar. Fæstar
þeirra minnisstæðar. Og kannski sem betur
fer. Rannsóknir sýna að meðalmaðurinn tekur
um 35 þúsund ákvarðanir á dag eða um 2.000
ákvarðanir á hverri klukkustund í vöku. Það
væri vont ef maður minntist þeirra allra um
áramót.
Örlagarík skref
En sumar ákvarðanir eru þess eðlis að maður
gleymir þeim ekki svo auðveldlega. Oftast
tengist það röngum ákvörðunum. Stundum
geta þær, þegar frammi fyrir þeim er staðið,
virst léttvægar eða litlu skipta en þegar frá líð-
ur kemur í ljós að hið þveröfuga átti við.
Um þá staðreynd orti Árni Grétar Finnsson
eitt sinn og eftirminnilega:
Þörf er á varúð víðar en margur skeytir.
Víxlspor eitt oft öllu lífi breytir.
Þá áhættu samt allir þurfa að taka
og enginn tekur mistök sín til baka.
En rétt eins og rangar ákvarðanir geta haft
mjög afdrifaríkar afleiðingar á það einnig við
um hinar góðu og réttu.
Almáttugur minn hvað þær eru fáar ákvarð-
anirnar sem ég man frá liðnu ári. En ég man
þó nokkrar og ein þeirra hefur orðið mér efni-
viður í pistla hér á þessum vettvangi síðast-
liðnar 17 vikur. Það var ákvörðunin um að
snúa við blaðinu og taka heilsuna fastari
tökum.
Og við áramót er gott að rifja þetta upp.
Horfa yfir farinn veg. Ekki aðeins að telja til
kílóin sem horfin eru á braut eða lækkandi
fituprósentu heldur einnig ákvarðanatökuna
sem slíka og hvaða áhrif hún hefur haft.
Í tengslum við þær vangaveltur hefur skotið
niður í kollinn á mér, trekk í trekk, setningu úr
Gróugaldri, fornri kviðu sem varðveitt er í Sæ-
mundar-Eddu. Í sjötta erindi hennar er að
finna orðin sem eru í fyrirsögn þessa pistils:
„Sjálfur leið þú sjálfan þig.“
Hver taki ábyrgð á sjálfum sér
Þótt efni kviðunnar sem slíkrar eigi ekki er-
indi í umfjöllun um heilsu og líkamsrækt eiga
þessi tilteknu orð einstaklega vel við. Þau
minna reyndar á þá staðreynd að hver og einn
einstaklingur ber ábyrgð á sér og sínum
gjörðum, bæði í stóru og smáu. Í velferðar-
samfélagi nútímans virðist oft skorta nokkuð
á skilning á þeirri staðreynd og sífellt kallað
eftir því að hið opinbera hlaupi til og „reddi
málunum“. En þannig er það ekki og það á
m.a. við þegar kemur að heilsu fólks. Vissu-
lega hefur hið opinbera stóru hlutverki að
gegna gagnvart þeim sem veikjast eða eiga
við heilsubrest að stríða vegna öldrunar eða
slysa. En við sem teljumst þokkalega heil-
brigð höfum þá ábyrgð á eigin herðum að
hlúa að eigin heilsu. Kostnaður heilbrigðis-
kerfisins af lífsstílstengdum sjúkdómum á
borð við sykursýki 2 og offitu fer sífellt vax-
andi og þar eru á ferðinni vandamál sem þeir
einstaklingar sem eru að kljást við þau hefðu
getað, ef ráð hefðu verið í tíma tekin, komið í
veg fyrir þjáningu sína og gríðarlegan kostn-
að samfélagsins.
Nýtt ár – alvöru tækifæri
Það er stundum sagt vera klisja þegar fólk
ræðir um áramótaheit og fyrirheit um að bæta
þetta eða hitt í eigin lífi. En áramótin eru í
raun mjög góður tími til þess að taka hluti til
endurskoðunar og endurmats. Heilsan er í því
sambandi upplagt viðfangsefni. Hver og einn
þarf að leiða sjálfan sig af stað á þeirri braut.
Og þótt ég hafi lagt af stað út á nýjar brautir
nú í haust og einhverjum árangri náð, þá hyggst
ég nýta áramótin til að endurstilla þá stöðu og
vonandi gefst þá tækifæri til að ná markmiðum
sem ég hef sett til skemmri og lengri tíma litið.
Sjálfur leið þú
sjálfan þig
Áramótin gefa tækifæri til að horfa um öxl en einnig fram á
veginn. Árangur liðins árs er kominn í hús og hann getur gefið
fyrirheit um skrefin fram undan. En þar er líka að finna lær-
dóm sem ætti að gera nýtt ár mjög spennandi.
Nýtt ár og nýr dagur. Það er gott en ekki klisja að setja sér verðugt mark og mið við áramót.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ef orkuþörf mín fyrir hvern sól-
arhring er í kringum 2.400 hita-
einingar mun ég þurfa að inn-
byrða 876 þúsund slíkar á árinu
2019. Ætli ég að hreyfa mig
mikið mun sú þörf aukast en ef
nýi sófinn dregur mig í óhófi að
sér gæti þörfin minnkað. Ætli
ég að léttast frekar þarf ég að
hreyfa mig meira og velja
orkuna rétt. En eflaust eru 876
þúsund hitaeiningar nærri lagi.
Það hafði mjög jákvæð áhrif á
átakið hjá mér að ég skyldi taka
snjallforritið Myfitnesspal (Æf-
ingafélagann) í mína þjónustu.
Það hefur kennt mér að mæla
betur það sem ofan í mig fer og
fylgjast með inntökunni á hverj-
um tíma.
Og nú er það nýársheit að
vera duglegri að nýta þetta forrit
sem mest. Af þeim sökum leyfði
ég mér þann munað að kaupa
mér Premium-áskrift að því en
það kostar ríflega 5 dollara á
mánuði. Þá get ég betur greint
það sem ég er að setja ofan í mig
og þá hef ég einnig aukið að-
gengi að upplýsingum sem for-
ritið vinnur úr því sem ég skrái
inn hvað varðar mataræðið.
Markmiðið á nýju ári er að
skrá allt sem ég læt ofan í mig
og ef vel gengur gæti ég fengið
heildstætt yfirlit yfir mataræðið
á árinu 2019. Það væri gaman
að geta sest niður eftir 365
daga og séð nokkuð óbjagað
hvernig ég hef staðið mig yfir
árið.
Ég hvet fólk eindregið til að
halda matardagbók af þessu
tagi, með snjallforriti eða upp á
gamla mátann. Það eitt og sér
er hvetjandi og stuðlar að ár-
angri.
GAMAN AÐ FYLGJAST MEÐ FRÁ UPPHAFI
Að mæla heilt ár
18. júlí síðastliðinn færði ég fyrst
inn upplýsingar í Æfingafélagann.
Pistill
Stefán Einar
Stefánsson
ses@mbl.is
ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR
92,9 kg
85,4 kg
85,3 kg
Upphaf:
Vika 15:
Vika 16:
25.923
19.259
13.569
14.112
3 klst.
4 klst.
HITAEININGAR
Prótein
26,7%
Kolvetni
36,4%
Fita
36,9%
HÁVAÐI SKAÐAR HEYRNINA
...líka flugeldar
Verndaðu heyrnina
á meðan þú hefur hana
Bjóðum fjölbreytt úrval bæði af stöðluðum og sérsmíðuðum heyrnarsíum
sem dempa hávaða og hlífa heyrninni án þess að breyta blöndun og
tónblæ hljóðsins.
VERÐ FRÁ
3.800 KR.
Hlíðasmára 19, 2. hæð • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is