Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.12.2018, Qupperneq 41
Umbra útgáfutónleikar í Listasafni Íslands. bbbbm Flytjendur: Alexandra Kjeld, Arngerður María Árnadóttir, Guðbjörg Hlín Guð- mundsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir auk Kristófers Rodriguez Svönusonar. 12. apríl 2018. Ljóst er að áreynsluleysi, jafnvægi, vinátta og traust ríkir meðal meðlima bandsins. Hljómbreið altrödd Lilju Daggar sem og óhvikult fas gefur Umbru sterk sérkenni. Annað kennimerki er hljóðfæraleikur Arngerðar Maríu sem spilar á lítið og fornt, að sögn fágætt, ferðaorgel með angur- værum hljómi sem og keltneska hörpu. (IB) Í dagsljósið Budapest Festival Orchestra, hljóm- sveitarstjóri Iván Fischer, einleikari Dénes Várjon. Eldborg í Hörpu. bbbbb Verk eftir J.S. Bach, Beethoven og Rachmaninoff. 17. janúar 2018. Einstök sýn Fisch- ers og nálgun á hvort heldur tónverk eða hljóm, leik- gleði og leiðsögn, er stórbrotin upplifun líkt og tón- leikagestir fengu að heyra […] Samheldni og þéttleiki eru orð sem koma upp í hugann svo gerlegt sé að lýsa þessum makalaust samhenta anda og bræðralagi […] Nú er komin á hefð hjá hússtjórn Hörpu að færa okkur heimsklassahljómsveitir […] hafi þau þakkir fyrir, að hafa flutt inn til landsins með ærinni fyrirhöfn stærðarinnar sinfóníuhljómsveit af nánast yfirnáttúru- legum gæðum sem á sér fáa, ef þá nokkra líka, í heim- inum! (IB) Afburðaviðmið Útgáfutónleikar Víkings Heiðars Ólafssonar píanóleikara, Eldborg í Hörpu. bbbbb Verk eftir J.S. Bach og Beethoven. 14. október 2018. Dagskipunin var öðrum þræði að brjóta á bak aftur múra, normin, helgisiðina kringum klassíska tónlist og tón- leika; að undirstrika erindi tónlistar við samtímann, svo úr varð ein allsherjar alltumlykjandi excel-heimsmynd með tilheyrandi afleiðum og andhverfum falla svo við reiknings- skil mátti skilja að tónlist Bachs er ekki klassísk heldur samtímalist; Bach er stærri en Bach! (IB) Fríríkið Bach Sinfóníuhljómsveit Gautaborgar, einleikari: Hélène Grimaud á píanó, Stjórnandi: Santtu- Matias Rouvali. bbbbm Verk eftir Richard Strauss, Beethoven og Sibelius. 18. mars 2018. … man undirritaður ekki í fljótu bragði eftir annarri eins snerpu. Ofursamtaka strengjahljómurinn var smellandi þéttur í heilsteyptri gæðablöndun við glampandi lúðralöll og kliðfagran tréblástur. Hið magnaða samspil krafts og mýktar var sannarlega fyrirmynd til eftirbreytni og lýsti norrænum metnaði á heimsmælikvarða … Þetta var eftirminnileg heimsókn. Þó eyða mætti mörg- um orðum í nákvæmari útlistun á flutningi Gautaborgar- anna nægir að segja að túlkun þeirra var stórkostleg. Hvílík spilamennska – og hvílíkir kostagestir! (RÖP) Sænskir kostagestir 30.12. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Klassískir tónleikar ársins Gagnrýnendur blaðsins sem fjalla um klassíska tónlist, Ríkarður Örn Pálsson og Ingvar Bates, upplifðu á árinu fjölbreytilegar óperusýningar og tónleika ólíkra hljómsveita, kóra og flytjenda. Þetta eru viðburðirnir sem þeir telja hafa staðið upp úr. Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands með Mótettukór Hallgrímskirkju og einsöngvurunum Christiane Karg og Sasha Cooke í Eldborg í Hörpu bbbbb Sinfónía nr. 2. eftir Mahler. Stjórn- andi: Osmo Vänskä. 6. júní 2018. „… frá upphafi [var] auðheyrt að hér fór ósvikin upplifun af æðstu sort – meistaraverk í meistarahöndum sem naut sín til botns í óvenju innlifaðri meðferð hljómsveitar allra landsmanna, svo verði jafnvel að leita nokkur ár aftur í tíma eftir öðru eins […] hlust- endum risu hvað eftir annað hár og sperrtust eyru í einhverjum stórbrotnasta flutningi sem ég man eftir í Hörpu, og jafnvel frá síðustu árum Háskólabíós … Sem sagt: frábær spilamennska í alla staði. […] náðu þær Karg og Cooke að skila sínu af stakri vandvirkni, og framlag hins stækkaða Mótettukórs Hallgrímskirkju var eftirminnilegt fyrir jafnt dulúðugt upphaf sem sigri hrósandi niðurlag í trúverðri tónun efsta dags – svo vægt sé til orða tekið. (RÖP) Meistaraverk í meistarahöndum Brothers, ópera eftir Daníel Bjarnason. Íslenska óperan í sam- starfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og Jósku óperuna. Hljóm- sveitarstjórn: Daníel Bjarnason. Leikstjórn: Kasper Holten. Listahátíð í Reykjavík í Hörpu 19. júní 2018. bbbbm Uppfærslan á Brothers var fyrst og síðast framúrskarandi vel og fagmannlega flutt í alla staði […] Stórathafnamaðurinn Daníel Bjarnason er orðinn sér-fenómen í tónlistarheiminum […] Tónlistin í Brothers – þéttofinn innblásinn vefur, fullur af tjáningu og þján – stendur hæglega ein og óstudd. Maður eiginlega gapir yfir þessari ótrúlegu framleiðslu, þessum þroska og afköstum í hæstu hæðum hjá einum manni, og ekki eldri manni! (IB) Óperuhelvíti Sinfóníuhljóm- sveit Norður- lands, einsöngv- arar, Hymnodia, Kammerkór Norðurlands og Barna- og ung- lingakór Hall- grímskirkju fluttu Matteus- arpassíu eftir J.S. Bach í Hallgríms- kirkju. bbbbn Hljómsveitarstjóri: Hörður Áskels- son. 30. apríl 2018. Eftir stendur magnþrunginn og eftirminni- legur viðburður sem […]mun sitja í minningu margra þeirra sem fylltu Hallgrímskirkju þennan fagra en tilfinningaþrungna dag. (IB) Himnaríki á jörðu Sinfóníuhljóm- sveit Íslands, Eld- borg í Hörpu. bbbbm Verk eftir Bern- stein, Tsjajkovskíj og Shostakovitsj. Einleikari á fiðlu Sayaka Shoji, hljómsveitarstjóri Klaus Mäkelä. 11. október 2018. Flutningurinn er án efa meðal þess eftirminni- legra sem hljómsveitin hefur glímt við í seinni tíð úr ranni Shostakovitsj. Hljómsveitarstjórinn ungi hlýtur að teljast sér- fenómen innan fagsins. Það er með ólíkindum að einungis 22 ára maður búi yfir jafn mikilli einbeitni og sjálfstrausti, og kunnáttu til verka líkt og hann sýndi á tónleikunum… (IB) Ráðasmiður finnskur Kammertónleikar Kammermúsíkklúbbsins í Norðurljósum í Hörpu. bbbbm Sigrún Eðvaldsdóttir, Bryndís Halla Gylfa- dóttir og Domenico Codispoti léku tríó eftir Brahms og Sjostakovitsj. 18. febrúar 2018. Það kastaði exótískum tólfum í lokaþættinum um rússneskt gyðingastef og kraftbirti í senn þrúgandi kringumstæður almenns samtíma og persónulega áþján snillingsins undir harðstjórn Stalíns. En líka mús- íkalska innsýn sem hlaut að heilla alla upp úr skónum í drífandi innlifun þeirra þremenninga. (RÖP) Mölur og ryð Kammer- tónleikar í Salnum. bbbb Ásdís Valdi- marsdóttir á víólu og Mar- cel Worms á píanó fluttu verk eftir Mendelssohn, Weinberg, Kattenburg og Sjostakovitsj. 20. janúar 2018. … innbyggð hljómfegurð hljóðfærisins skil- aði sér að fullu þetta kvöld í magnaðri tjáningu Ásdísar, er spannaði nærfellt alla hugsanlega liti og kenndir með jafnt dramatískri spennu og snerpu sem syngjandi angurværð, leiftrandi gáska og nærri draugalegri dulúð … (RÖP) Sál strengja og anda

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.