Víkurfréttir - 07.03.2019, Blaðsíða 12
Vinsælar gellur á KEF
– Nýr veitingastaður á Hótel Keflavík sem býður fjölbreyttan matseðil og boltafjör
Miklar breytingar hafa nú staðið yfir á veitingastaðnum KEF við Hótel Keflavík. Keflvíkingurinn
Magnús Ólafsson er nýr veitingastjóri hótelsins en hann segist spenntur fyrir komandi tímum
og er sáttur með viðtökurnar. KEF leggur nú áherslu á smárétti og margar nýjungar hafa bæst
við það sem af er ári.
Blaðamaður Víkurfrétta hitti nýja veitingastjórann á KEF og ræddi komandi tíma.
„Ég kom til starfa núna í febrúar og er mjög
spenntur fyrir þessu. Við höfum fengið rosalega
góðar viðtökur og ég finn það að heimafólkið
vill fá meiri fjölbreytni á Suðurnesin,“ segir
Magnús en hann starfaði sem kokkur á Hótel
Keflavík fyrir um tuttugu árum síðan og er nú
kominn aftur til baka á hótelið. „Við erum núna
að leggja áherslu á smáréttina okkar. Fólk getur
þá komið hingað og fengið sér til dæmis tvo, þrjá
smárétti, hvítt eða rautt að drekka og jafnvel
eftirrétt í lokin. Það verður alltaf eitthvað að
gerast hérna hjá okkur á næstunni, ekki bara
um helgar.“
Gellurnar aðal málið hjá KEF
„Signature“-smárétturinn á KEF um þessar
mundir er djúpsteiktar gellur með kartöflu,
lárperu og salati en Magnús segir þá, sem þorað
hafa að panta réttinn, orðið ástfangna af honum.
„Svo erum við líka með til dæmis carpaccio,
lambatarta og fleira. Við ætlum að bæta við
á næstunni og verðum með fleiri smárétti en
aðalrétti.“
Smáréttirnir eru þó ekki eina breytingin sem
átt hefur sér stað á veitingastaðnum. Fótbolta-
áhugamenn hér á svæðinu geta nú komið á
hótelið þegar stórleikir eru sýndir og fylgst
með boltanum. „Ég held að langflestir hér á
Suðurnesjum séu annað hvort United- eða Liver-
pool-menn. Við ákváðum að nýta morgunverðar-
salinn á hótelinu betur og bjóða þeim að koma
hingað og horfa á leiki. Það er gott að geta nýtt
salinn fyrir meira en morgunmatinn en hér er
gott hljóðkerfi og flott aðstaða,“ segir Magnús
en á meðan leikjunum stendur geta gestir fengið
sér bjór og hamborgara, natchos og flott tilboð.
„Þetta hefur gengið vel og á stórleikjunum hafa
mætt hingað yfir tuttugu manns. Ég kvarta ekki
yfir því og þetta er bara á leiðinni upp á við.“
Nóg til staðar á Suðurnesjum
Það er algengur misskilningur að veitingastaðir
hótela séu einungis fyrir þá gesti en hver sem
er getur pantað sér borð á KEF, bæði í gegnum
Facebook-síðu veitingastaðarins og símleiðis.
„Þetta er kósý staður og hér situr fólk oft í tvo,
þrjá tíma. Hótelgestir koma alltaf en það er líka
mikilvægt að fá heimamenn hingað. Suðurnesin
eru orðin svo stór og ég held það sé markaður
fyrir okkar frábæra stað. Fólk þarf ekki alltaf
að hoppa upp í bíl og keyra til Reykjavíkur til
að fara út að borða,“ segir Magnús.
KEF býður upp á Happy Hour alla virka daga
og um helgar er Late Happy Hour í boði fyrir
þá sem vilja jafnvel kíkja út á lífið eftir góða
heimsókn á veitingastaðnum. „Við erum þá
með tilboð á kokteilum og tveir fyrir einn af
bjór. Hér er alltaf eitthvað um að vera.“
Samstilltur hópur skilar frábærri gagnrýni
KEF hefur ráðið til sín nýjan yfirmatreiðslu-
mann en það er Óli Már Erlingsson. „Óli er
frábær kokkur. Þú þarf að hafa góðan stjóranda
í eldhúsinu þar sem þetta er mjög krefjandi.
Með góðum og samstilltum hópi er hins vegar
allt hægt.“
Magnús, sem er búsettur í Keflavík, sér nú um
rekstrarhlið staðarins en hann hefur verið við-
loðinn veitingabransann í um tuttugu ár og er
viðskiptafræðingur að mennt. „Ég startaði til
dæmis sportbar í Reykjavík sem heitir Úrilla
Górillan og var á Austurvöllum. Svo var ég fram-
leiðslustjóri fyrir Icelandair Flugeldhús og hef
unnið við ýmis önnur störf,“ segir Magnús en
hann lærði kokkinn á Glóðinni árið 1997 undir
meistara sínum, Erni Garðarssyni. „Hérna tek ég
á móti gestum, sé um starfsmannamál og fleira.
En maður gerir allt til að hjálpa til, hvort sem
það er að vaska upp eða að fara út með ruslið.
Ég hef verið mjög sáttur við fyrsta mánuðinn
og við höfum hingað til fengið mjög góða dóma
fyrir bæði þjónustuna og matinn. Þetta helst
allt saman í hendur.“
Nóg af nýjungum á næstunni
Með stækkandi sveitarfélagi þarf meiri fjöl-
breytni og valmöguleika á hinum ýmsu sviðum,
þar með talið í veitingageiranum. „Hér á svæð-
inu er nóg af pizzu- og hamborgarastöðum.
Þannig þessi viðbót er bara góð. Heimafólkið
hefur tekið okkur ótrúlega vel. Fólk er hins vegar
ennþá að frétta af þessu. Við stefnum svo á það
á næstunni að bjóða upp á hádegismat líka. Fólk
hefur stuttan tíma til að borða í hádeginu og
við erum núna að smíða matseðil fyrir hádegin
hjá okkur sem mun innihalda fáa rétti sem
við munum breyta reglulega. Svo verður nóg
af nýjungum hjá okkur í sumar. Við ætlum að
nýta pallinn hérna fyrir utan og gestir geta þá
komið og setið úti, þegar það fer að hlýna,“
segir Magnús og hlær.
Hann hvetur Suðurnesjamenn og aðra til að
koma og prófa. „Þú þarft ekkert að fara langt. Við
höfum verið ótrúlega ánægð með viðtökurnar
og horfum bara upp á við hér á KEF.“
Sólborg Guðbrandsdóttir
vf@vf.is
VIÐTAL
Magnús Ólafsson er spenntur fyrir komandi tímum.
Óli Már er nýr yfirmatreiðslumaður KEF.
12 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. mars 2019 // 10. tbl. // 40. árg.