Víkurfréttir - 07.03.2019, Blaðsíða 21
Á Safnahelgi Suðurnesja mun Rokksafn Íslands opna nýtt sýningaratriði
sem unnið hefur verið að í samstarfi við margmiðlunarfyrirtækið Gagarín.
Sýningaratriðið sem nefnt hefur verið „Plötuspilarinn“ er afrakstur hug-
myndavinnu starfsmanna Hljómahallar/Rokksafns Íslands og Gagaríns
en markmið hópsins var að gera Rokksafnið gagnvirkara og upplifunar-
ríkara fyrir alla.
Sýningaratriðið hylur stærsta vegg
Rokksafnsins sem er um 12 metra
breiður og er þar hægt að framkalla
fjölmargar tímalínur með upplýs-
ingum um einstaka tónlistarmenn
sem sett hafa svip á tónlistarsögu
Íslands.
Tilgangur plötuspilarans er að gera
safngestum kleift að kafa enn dýpra
í sögu listamannanna sem til um-
fjöllunar eru, en á tímalínunni er
textum, ljósmyndum, myndböndum
og tónlist blandað saman í eina ríka
og spennandi frásögn sem gestirnir
stjórna sjálfir.
Plötuspilarinn er í raun einstakt atriði
án fyrirmyndar og enn ein spennandi
viðbótin í Rokksafn Íslands.
Plötuspilarinn opnar
í Rokksafni Íslands
ROKKSAFN ÍSLANDS OPNAR NÝTT SÝNINGARATRIÐI Í SAMSTARFI VIÐ GAGARÍN
Sumarstörf í flugskýlinu í Keflavík
Icelandair óskar eftir að ráða til sín öfluga, hressa og jákvæða einstaklinga í
fjölbreytileg og skemmtileg sumarstörf í flugskýlinu í Keflavík.
Við leitum að fólki í mötuneyti, í hreinsun og í skrifstofustörf.
Sumarstörfin byrja í maí og eru út ágúst.
Hæfniskröfur:
| Góð samskiptahæfni
| Rík þjónustulund
| Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
| Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu
| Lágmarksaldur umsækjanda er 18 ár
Nánari upplýsingar veitir Sveina Berglind Jónsdóttir,
mannauðsstjóri, sveinaj@icelandair.is
Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Icelandair,
www.icelandair.is/umsokn, eigi síðar en 17. mars 2019.
Rokksafn Íslands, sem staðsett er í Hljómahöll í Reykjanesbæ, hlaut á
dögunum Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun 2019 frá Ferðaþjónustu
Reykjaness. Safnið var stofnað í apríl 2014 og fagnar því fimm ára afmæli
í ár, en Tómas Young, framkvæmdastjóri Hljómahallar og Rokksafnsins,
segir þrónunina í gegnum árin hafa verið talsverða og að stefnt sé að því
næstu misseri að gera safnið gagnvirkara og færa það nær nútímanum.
„Þetta var mjög skemmtileg viður-
kenning. Viðbrögð gestanna hafa
verið góð og fólk er almennt mjög
ánægt með sýningarnar. Áður héldu
margir að hér væri bara sýning um
Bítlabæinn Keflavík, en hér eru í
rauninni allir með jafn stóran sess í
sýningunni, enda heitir þetta Rokk-
safn Íslands en ekki Poppsafn Reykja-
nesbæjar,“ segir Tómas.
Stefnt að stafrænna rokksafni
Til að byrja með var Rokksafn Íslands
grunnsýning um rokksöguna hér-
lendis en fljótlega kom í ljós að bæta
þyrfti við til að fá gestina aftur í heim-
sókn á safnið. Þá var fleiri sýningum
bætt við, um tónlistarmennina Pál
Óskar og Björgvin Halldórsson, og
urðu þær gífurlega vinsælar. „Í dag
erum við komin í samstarf við marg-
miðlunarfyrirtækið Gagarín sem er
skref í áttina að því að gera safnið
gagnvirkara. Fyrst var þetta kannski
svolítið hefðbundið en nú erum við að
færa okkur svolítið nær nútímanum
í þessu samstarfi.” Stefnt er að því að
safnið verði mun stafrænna og að
lögð verði meiri áhersla á upplifun
gestanna með hjálp nútíma tækni.
Stapinn fengið endurnýjun
Fyrir utan Rokksafn Íslands er nóg
annað um að vera í Hljómahöll enda
starfsemi hússins margs konar. Þar
er Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
starfræktur í topp aðstöðu og þar
fyrir utan eru salir leigðir út fyrir alls
kyns viðburði, svo sem árshátíðir, ráð-
stefnur og slíkt. „Svo er tónleikahaldið
náttúrulega mjög fyrirferðarmikið
hjá okkur líka. Við flytjum til dæmis
inn erlenda tónlistarmenn og höldum
stórtónleika í Stapa. Þetta sögufræga
félagsheimili hefur fengið endurnýjun
lífdaga, ef svo má að orði komast, og
það er búið að byggja mjög stóra bygg-
ingu hérna við sem telur yfir fimm
þúsund fermetra og þjónar hlutverki
sem svona hálfgerð tónlistarmiðja
Reykjanesskagans.”
Viðskiptavinir flestir
erlendir gestir
Viðskiptavinir Rokksafnsins eru í dag
um 80% útlendingar en svoleiðis var
það ekki til að byrja með. „Þegar við
opnuðum fyrst voru gestirnir sirka
80% Íslendingar og 20% útlendingar
en nú hefur þetta eiginlega alveg snú-
ist við. Við auglýsum ekkert svakalega
mikið í samanburði við aðra risa eins
og til dæmis Bláa lónið eða Reykjavík
Excursions. Við höfum fengið góð
viðbrögð á netinu, eins og á til dæmis
Trip Advisor og Facebook og ég held
að það sé ástæðan fyrir því að fólk sé
að koma hingað aftur. Ef sýningin er
flott þá munu gestir koma. Það virðist
hafa spurst út á meðal útlendinga og
ferðaþjónustuaðila að safnið sé flott
og gott,” segir Tómas.
Stefnt er að því á næstunni að gera
safnið, eins og áður kom fram, staf-
rænna. „Ég hef hugmyndir um það
að snúa áherslunni við, að við förum
að sanka að okkur fleiri munum. Við
erum ekki með það sem ég myndi
kalla reglulega söfnunarstarfsemi.
Við vöknum ekki hérna á daginn og
hringjum í Mugison eða Björgvin Hall-
dórsson til að spyrja hvað þeir geti
gefið okkur, heldur höfum við svona
verið að taka á móti munum sem hafa
lent hjá okkur. En mig dreymir um
að við förum að safna munum úr
rokksögunni áður en það verður of
seint og snúum áherslunni kannski
svolítið við.”
Allir með jafn stóran sess á Rokksafni Íslands
Frá afhendingu Nýsköpunar- og hvatningarverðlauna ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2019,
t.v. Daníel Einarsson frá Reykjanes Geopark, Tómas Young framkvæmdastjóri Hljómahallar
og Rokksafns Íslands og Þuríður Aradóttir Braun frá Markaðsstofu Reykjaness.
Ljósm. Markaðsstofa Reykjaness.
21MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. mars 2019 // 10. tbl. // 40. árg.