Víkurfréttir - 07.03.2019, Blaðsíða 10
Miðvikudaginn 13. mars kl. 8:30
í útibúi Íslandsbanka, Reykjanesbæ
Hvaða kostir eru í boði og hvernig er best að undirbúa sig?
Gagnlegur fræðslufundur þar sem meðal annars verður rætt um
undirbúning lánsumsóknar, afgreiðsluferlið og hentuga fjármögnun.
Skráning og frekari upplýsingar eru
á islandsbanki.is/fyrirtaekjafraedsla
Fjármögnun
fyrirtækja
Fyrirtækjafræðsla Íslandsbanka
is
la
nd
sb
an
ki
.is
@
is
la
nd
sb
an
ki
4
4
0
4
0
0
0
Föstudaginn 8. mars verður frumsýnd ný revía hjá Leikfélagi Keflavíkur þar sem tekið er á mönnum
og málefnum sem hafa vakið athygli á undanförnum mánuðum og jafnvel árum. Í ár eru 30 ár
liðin frá fyrstu revíu félagsins sem sýnd var í Félagsbíói og sló aðsóknarmet félagsins á þeim tíma.
Síðan þá hafa verið sýndar nokkrar revíur með góðri aðsókn bæjarbúa og þær hlotið mikið lof.
Revíur taka púlsinn á því sem hefur verið að
gerast á Suðurnesjum og málefnum sem hafa
verið umfjöllunarefni á kaffistofum vinnustaða,
rifist hefur verið um, skrifað o.fl. Pólitíukusar,
menningarmál, fjölmenning, kísilver, Ljósanótt
og svo mætti lengi telja eru meðal þess sem viðrað
er í þessu verki.
Að þessu sinni er revían samin af leikfélags-
meðlimum sem allir hafa reynslu af skrifum.
Leikstjóri verksins er leikkonan Björk Jakobs-
dóttir en hún hefur áralanga reynslu af leikstjórn
ýmissa leikverka og hefur bæði sem leikkona og
leikstjóri góða innsýn í leikhúsvinnu bæði með
áhugaleikhúsum og atvinnuleikhúsum. Björk
ber Leikfélagi Keflavíkur góða sögu og segir að
hér sé um að ræða frábæran leikhóp sem sýnir
sitt besta í virkilega vel skrifuðu verki. Söngur,
gleði og grín sem svo sannarlega kemur til með
að kitla hláturtaugar gesta, kannski hneyksla
einhverja en gleðja aðra. Allt er þetta gert með
það að markmiði að skemmta leikhúsgestum.
Leikfélag Keflavíkur er eitt af öflugustu áhuga-
leikfélögum landsins og er þess skemmst að
minnast að sýning félagsins Mistery boy var
valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins
síðasta leikár og var sýnd fyrir fullu Þjóðleik-
húsi við mikinn fögnuð. Höfundur þess verks
var ungur áhugaleikari og tónlistarmaður, Smári
Guðmundsson en þar sannaði leikfélagið enn og
aftur hversu öflugt það er og að félagið er til í að
fara óhefðbundnar leiðir í verkefnavali. Sú sýning
sem sló öll aðsóknarmet er Dýrin í Hálsaskógi
sem sýnd var haustið 2017 í leikstjórn Gunnars
Helgasonar og enn eru leikarar að koma fram á
hinum ýmsu skemmtunum með persónum úr
Dýrunum. Gríðarleg vinna liggur að baki svona
uppsetningu og það er því frábær viðurkenning
til allra þeirra sem að sýningunni koma ef fólk
leggur leið sína í Frumleikhúsið. Öflugt starf hjá
öflugu Leikfélagi Keflavíkur.
Eins og fyrr segir verður frumsýning revíunnar
föstudaginn 8. mars kl. 20.00 en allar nánari
upplýsingar um sýningatíma og verð má finna
á lk.is. Sjáumst í Frumleikhúsinu!
ALLIR Á TRÚNÓ!
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir nýja revíu
Tvær sjálfstæðar
nefndir taka við um-
hverfis- og skipulags-
málum í Vogum
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga
hefur afgreitt breytingu á sam-
þykktum um stjórn sveitarfélagsins.
Í þeirri breytingu fólst sú megin
breyting að umhverfis- og skipulags-
nefnd af aflögð í núverandi mynd,
en í hennar stað settar á stofn tvær
sjálfstæðar nefndir, umhverfisnefnd
og skipulagsnefnd.
Að aflokinni afgreiðslu bæjarstjórnar
á breytingu samþykktanna voru
erindisbréf hinna nýju nefnda sam-
þykkt. Að því loknu var síðan kosið
í nefndirnar. Nefndirnar munu nú í
kjölfarið hefja störf, og sinna þeim
mikilvægu málaflokkum sem undir
þær heyra.
Undirgöng undir
Grindavíkurveg
við Suðurhóp
Skipulagsnefnd Grindavíkur lýsir
ánægju sinni með að Vegagerðin
vill fara í framkvæmd á undir-
göngum við Grindavíkurveg rétt
norðan Suðurhóps. Nefndin felur
sviðsstjóra skipulags- og umhverfis-
sviðs að vinna fjárhagsáætlun við
stígagerð að göngunum.
Þá leggur nefndin til við bæjarstjórn
Grindavíkur að samþykkt verði að
fara í framkvæmdina. Skipulagsnefnd
skorar jafnframt á bæjarstjórn að
skipa nýja umferðaröryggisnefnd.
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. mars 2019 // 10. tbl. // 40. árg.