Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.03.2019, Blaðsíða 32

Víkurfréttir - 07.03.2019, Blaðsíða 32
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00 facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir MUNDI S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M Ponyhestar fyrir börnin, viský fyrir mig ... og göngustafir! SKILYRÐI: • Vörulýsing á ensku • Upprunaland komi skýrt fram • Varan merkt samkvæmt íslenskri reglugerð Er varan þín góð gjöf? Pure Food Hall er verslun sem staðsett er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem sérhæfir sig í íslenskum sælkeravörum. Verslunin er vinsæll viðkomustaður ferðamanna sem vilja taka með sér íslenskt ljúfmeti út fyrir landsteinana. VIÐ ÓSKUM EFTIR ÍSLENSKRI SÆLKERAVÖRU Nánari upplýsingar veitir Ágúst Guðbjartsson, Vöru- og innkaupastjóri í gegnum tölvupóst: a.gudbjartsson@lagardere-tr.is Móttaka tillagna er til 31. mars 2019 Safnahelgi á Suðurnesjum verður haldin í ellefta sinn um helgina 9.–10. mars. Þá opna söfn í Grinda- vík, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum dyr safna sinna fyrir gestum og gangandi. Í fyrra sótti metfjöldi söfnin á svæðinu og var vel látið af fjölbreyttum sýningum og viðburðum. Frábær dagskrá fyrir alla fjölskylduna Á meðal þess sem boðið er upp á í ár er glæsilegur nýr gagnvirkur plötuspilari í Rokksafni Íslands, íbúar í Suðurnesjabæ og Vogum opna söfnin sín, stærsti slökkvibíll í heimi finnst í safnageymslum Reykjanesbæjar þar sem Slökkviliðsminjasafn Ís- lands er einnig til húsa og í Grindavík verður hægt að skoða muni sem tengast ströndum á svæðinu. Auk þess verður nóg um að vera fyrir börnin, m.a. upplestur úr Veröld vættanna bæði í Grindavík og Reykjanesbæ, ævintýraveröld í Þekkingarsetrinu og föndursmiðja og ratleikur í Duus-húsum. Tilvalið er fyrir fjölskylduna alla að taka rúnt um Suður- nesin og skoða menningu og mannlíf í bakgarði höfuðborgarinnar. Samstarf með sögu Safnahelgi á Suðurnesjum er sameiginlegt verkefni allra safna, sýninga og setra á Suðurnesjum sem liður í því að kynna menningu á heilu landssvæði fyrir landsmönnum öllum og hefur það tekist vel með aukinni aðsókn árlega auk þess sem Safna- helgi hefur fest sig í sessi í svo langan tíma eins og raun ber vitni. Dagskrá helgarinnar er aðgengileg á vefsíðunni safnahelgi.is. Flensuraunir Ég er þessi sem verð aldrei veik. Ég hef ekki fengið flensu síðan ég lét bólusetja mig, í fyrsta og eina skiptið á ævinni, fyrir örugglega meira en tíu árum. Það hefur ekki skipt neinu máli þótt allir væru veikir í kringum mig. Ég verð bara aldrei veik. Punktur. Þar til núna. Og þá kom flensan líka með dynk og stæl. Eiginmaðurinn kom með þetta ógeð heim og lagðist fyrstur, frum- burðurinn næst, svo ég, stjúpdóttirin og tengdafólkið hennar. Yngri sonurinn slapp, en nældi sér í eyrnabólgu í staðinn. Meira að segja Lubbi var hálf slappur. En við erum öll hraust að upplagi og náðum þessu úr okkur á nokkrum dögum sem betur fer. En þá lagðist pabbi gamli. Og það er aðeins meira mál að fá flensu þegar maður er að verða 88 ára. Eftir sólarhring á bráða- móttökunni í Fossvogi var búið að greina hann – hann tók þetta alla leið, fékk inflú- ensu A, súperháan hita og lungnabólgu í kaupbæti. Það þurfti að leggja hann inn á sjúkrahús og þá voru góð ráð dýr. Lands- spítalinn var stútfullur og ekkert pláss að hafa og auðvitað gekk ekki að hafa bráð- smitandi manninn liggjandi á ganginum. Okkur systrum hugkvæmdist þá að athuga hvort staðan væri eitthvað skárri hér á HSS og hvort það væri smuga að flytja hann hingað? Pabbi, sá eðal Keflvíkingur sem hann er, býr í Reykjavík þannig að við vorum nú ekkert of vongóðar. En þetta gekk allt upp og hann var boðinn innilega velkominn á HSS. Þegar þetta er skrifað er hann búinn að vera þar í viku og verður útskrifaður fyrir vikulok, ef allt gengur eftir. Og þvílíkur munur sem það var að koma hingað úr erlinum á bráðamót- tökunni – aldeilis frábærar móttökur og umönnun á heimsmælikvarða. Ég vil nota þennan vettvang til þess að hrósa þessari mikilvægu stofnun okkar og öllu því frá- bæra starfsfólki sem þar vinnur sín verk af fagmennsku með bros á vör. Takk! Ég lærði það sum sé að ég er ekki ónæm fyrir umgangspestum. Og vá hvað það er leiðinlegt að liggja í flensu, sérstaklega þegar eiginmaðurinn stingur svo af til útlanda í vinnuferð og skilur okkur hin eftir í bælinu með tóman ísskáp og engan nógu hressan til að fara í búðina. Í mókinu glumdu þá auglýsingarnar frá Nettó í höfð- inu á mér: „Smelltu til að versla í kvöldmat- inn á netinu…,“ „Vefverslun Nettó – gerðu innkaupin þegar þér hentar“. Ég man eftir litríkum og skemmtilegum auglýsingum þar sem ungur og fallegur piltur dansaði um með heimsendu vörurnar. Þarna var lausnin komin, við myndum ekki þurfa að svelta og ég smellti mér á netið. En ég hefði betur orðið veik í höfuð- borginni því ungi pilturinn með heim- sendinguna er ekki í boði hér. Ég man ekki sérstaklega eftir að það hafi verið nefnt í auglýsingunum, en Nettó finnst við Suður- nesjamenn greinilega ekkert of góð til að fara bara sjálf út í búð. Mér finnst þetta hins vegar súperléleg þjónusta og lýsa hallærislegu metnaðarleysi. Annað hvort býður maður upp á þjónustuna eða ekki. Ekki bara þegar þér hentar. LOKAORÐ RAGNHEIÐAR ELÍNAR RÓTGRÓIN SAFNAHELGI Á SUÐURNESJUM Saga skipstranda í Grindavík, stærsti slökkvibíll í heimi, ponyhestar, viský og göngustafir Tvö skipsströnd við Hópsnes í Grindavík fyrir um þremur áratugum. Til vinstri er það Hrafn Sveinbjarnarson III GK og til hægri flutningaskipið Mariane Danielsen. Því var bjargað af strandstað og dregið erlendis þar sem gert var við skipið. Myndir úr safni Víkurfrétta.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.