Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.03.2019, Síða 10

Víkurfréttir - 07.03.2019, Síða 10
Miðvikudaginn 13. mars kl. 8:30 í útibúi Íslandsbanka, Reykjanesbæ Hvaða kostir eru í boði og hvernig er best að undirbúa sig? Gagnlegur fræðslufundur þar sem meðal annars verður rætt um undirbúning lánsumsóknar, afgreiðsluferlið og hentuga fjármögnun. Skráning og frekari upplýsingar eru á islandsbanki.is/fyrirtaekjafraedsla Fjármögnun fyrirtækja Fyrirtækjafræðsla Íslandsbanka is la nd sb an ki .is @ is la nd sb an ki 4 4 0 4 0 0 0 Föstudaginn 8. mars verður frumsýnd ný revía hjá Leikfélagi Keflavíkur þar sem tekið er á mönnum og málefnum sem hafa vakið athygli á undanförnum mánuðum og jafnvel árum. Í ár eru 30 ár liðin frá fyrstu revíu félagsins sem sýnd var í Félagsbíói og sló aðsóknarmet félagsins á þeim tíma. Síðan þá hafa verið sýndar nokkrar revíur með góðri aðsókn bæjarbúa og þær hlotið mikið lof. Revíur taka púlsinn á því sem hefur verið að gerast á Suðurnesjum og málefnum sem hafa verið umfjöllunarefni á kaffistofum vinnustaða, rifist hefur verið um, skrifað o.fl. Pólitíukusar, menningarmál, fjölmenning, kísilver, Ljósanótt og svo mætti lengi telja eru meðal þess sem viðrað er í þessu verki. Að þessu sinni er revían samin af leikfélags- meðlimum sem allir hafa reynslu af skrifum. Leikstjóri verksins er leikkonan Björk Jakobs- dóttir en hún hefur áralanga reynslu af leikstjórn ýmissa leikverka og hefur bæði sem leikkona og leikstjóri góða innsýn í leikhúsvinnu bæði með áhugaleikhúsum og atvinnuleikhúsum. Björk ber Leikfélagi Keflavíkur góða sögu og segir að hér sé um að ræða frábæran leikhóp sem sýnir sitt besta í virkilega vel skrifuðu verki. Söngur, gleði og grín sem svo sannarlega kemur til með að kitla hláturtaugar gesta, kannski hneyksla einhverja en gleðja aðra. Allt er þetta gert með það að markmiði að skemmta leikhúsgestum. Leikfélag Keflavíkur er eitt af öflugustu áhuga- leikfélögum landsins og er þess skemmst að minnast að sýning félagsins Mistery boy var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins síðasta leikár og var sýnd fyrir fullu Þjóðleik- húsi við mikinn fögnuð. Höfundur þess verks var ungur áhugaleikari og tónlistarmaður, Smári Guðmundsson en þar sannaði leikfélagið enn og aftur hversu öflugt það er og að félagið er til í að fara óhefðbundnar leiðir í verkefnavali. Sú sýning sem sló öll aðsóknarmet er Dýrin í Hálsaskógi sem sýnd var haustið 2017 í leikstjórn Gunnars Helgasonar og enn eru leikarar að koma fram á hinum ýmsu skemmtunum með persónum úr Dýrunum. Gríðarleg vinna liggur að baki svona uppsetningu og það er því frábær viðurkenning til allra þeirra sem að sýningunni koma ef fólk leggur leið sína í Frumleikhúsið. Öflugt starf hjá öflugu Leikfélagi Keflavíkur. Eins og fyrr segir verður frumsýning revíunnar föstudaginn 8. mars kl. 20.00 en allar nánari upplýsingar um sýningatíma og verð má finna á lk.is. Sjáumst í Frumleikhúsinu! ALLIR Á TRÚNÓ! Leikfélag Keflavíkur frumsýnir nýja revíu Tvær sjálfstæðar nefndir taka við um- hverfis- og skipulags- málum í Vogum Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur afgreitt breytingu á sam- þykktum um stjórn sveitarfélagsins. Í þeirri breytingu fólst sú megin breyting að umhverfis- og skipulags- nefnd af aflögð í núverandi mynd, en í hennar stað settar á stofn tvær sjálfstæðar nefndir, umhverfisnefnd og skipulagsnefnd. Að aflokinni afgreiðslu bæjarstjórnar á breytingu samþykktanna voru erindisbréf hinna nýju nefnda sam- þykkt. Að því loknu var síðan kosið í nefndirnar. Nefndirnar munu nú í kjölfarið hefja störf, og sinna þeim mikilvægu málaflokkum sem undir þær heyra. Undirgöng undir Grindavíkurveg við Suðurhóp Skipulagsnefnd Grindavíkur lýsir ánægju sinni með að Vegagerðin vill fara í framkvæmd á undir- göngum við Grindavíkurveg rétt norðan Suðurhóps. Nefndin felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfis- sviðs að vinna fjárhagsáætlun við stígagerð að göngunum. Þá leggur nefndin til við bæjarstjórn Grindavíkur að samþykkt verði að fara í framkvæmdina. Skipulagsnefnd skorar jafnframt á bæjarstjórn að skipa nýja umferðaröryggisnefnd. 10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. mars 2019 // 10. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.