Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.03.2019, Qupperneq 21

Víkurfréttir - 07.03.2019, Qupperneq 21
Á Safnahelgi Suðurnesja mun Rokksafn Íslands opna nýtt sýningaratriði sem unnið hefur verið að í samstarfi við margmiðlunarfyrirtækið Gagarín. Sýningaratriðið sem nefnt hefur verið „Plötuspilarinn“ er afrakstur hug- myndavinnu starfsmanna Hljómahallar/Rokksafns Íslands og Gagaríns en markmið hópsins var að gera Rokksafnið gagnvirkara og upplifunar- ríkara fyrir alla. Sýningaratriðið hylur stærsta vegg Rokksafnsins sem er um 12 metra breiður og er þar hægt að framkalla fjölmargar tímalínur með upplýs- ingum um einstaka tónlistarmenn sem sett hafa svip á tónlistarsögu Íslands. Tilgangur plötuspilarans er að gera safngestum kleift að kafa enn dýpra í sögu listamannanna sem til um- fjöllunar eru, en á tímalínunni er textum, ljósmyndum, myndböndum og tónlist blandað saman í eina ríka og spennandi frásögn sem gestirnir stjórna sjálfir. Plötuspilarinn er í raun einstakt atriði án fyrirmyndar og enn ein spennandi viðbótin í Rokksafn Íslands. Plötuspilarinn opnar í Rokksafni Íslands ROKKSAFN ÍSLANDS OPNAR NÝTT SÝNINGARATRIÐI Í SAMSTARFI VIÐ GAGARÍN Sumarstörf í flugskýlinu í Keflavík Icelandair óskar eftir að ráða til sín öfluga, hressa og jákvæða einstaklinga í fjölbreytileg og skemmtileg sumarstörf í flugskýlinu í Keflavík. Við leitum að fólki í mötuneyti, í hreinsun og í skrifstofustörf. Sumarstörfin byrja í maí og eru út ágúst. Hæfniskröfur: | Góð samskiptahæfni | Rík þjónustulund | Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð | Hafa gott vald á íslenskri og enskri tungu | Lágmarksaldur umsækjanda er 18 ár Nánari upplýsingar veitir Sveina Berglind Jónsdóttir, mannauðsstjóri, sveinaj@icelandair.is Umsóknir óskast fylltar út á heimasíðu Icelandair, www.icelandair.is/umsokn, eigi síðar en 17. mars 2019. Rokksafn Íslands, sem staðsett er í Hljómahöll í Reykjanesbæ, hlaut á dögunum Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun 2019 frá Ferðaþjónustu Reykjaness. Safnið var stofnað í apríl 2014 og fagnar því fimm ára afmæli í ár, en Tómas Young, framkvæmdastjóri Hljómahallar og Rokksafnsins, segir þrónunina í gegnum árin hafa verið talsverða og að stefnt sé að því næstu misseri að gera safnið gagnvirkara og færa það nær nútímanum. „Þetta var mjög skemmtileg viður- kenning. Viðbrögð gestanna hafa verið góð og fólk er almennt mjög ánægt með sýningarnar. Áður héldu margir að hér væri bara sýning um Bítlabæinn Keflavík, en hér eru í rauninni allir með jafn stóran sess í sýningunni, enda heitir þetta Rokk- safn Íslands en ekki Poppsafn Reykja- nesbæjar,“ segir Tómas. Stefnt að stafrænna rokksafni Til að byrja með var Rokksafn Íslands grunnsýning um rokksöguna hér- lendis en fljótlega kom í ljós að bæta þyrfti við til að fá gestina aftur í heim- sókn á safnið. Þá var fleiri sýningum bætt við, um tónlistarmennina Pál Óskar og Björgvin Halldórsson, og urðu þær gífurlega vinsælar. „Í dag erum við komin í samstarf við marg- miðlunarfyrirtækið Gagarín sem er skref í áttina að því að gera safnið gagnvirkara. Fyrst var þetta kannski svolítið hefðbundið en nú erum við að færa okkur svolítið nær nútímanum í þessu samstarfi.” Stefnt er að því að safnið verði mun stafrænna og að lögð verði meiri áhersla á upplifun gestanna með hjálp nútíma tækni. Stapinn fengið endurnýjun Fyrir utan Rokksafn Íslands er nóg annað um að vera í Hljómahöll enda starfsemi hússins margs konar. Þar er Tónlistarskóli Reykjanesbæjar starfræktur í topp aðstöðu og þar fyrir utan eru salir leigðir út fyrir alls kyns viðburði, svo sem árshátíðir, ráð- stefnur og slíkt. „Svo er tónleikahaldið náttúrulega mjög fyrirferðarmikið hjá okkur líka. Við flytjum til dæmis inn erlenda tónlistarmenn og höldum stórtónleika í Stapa. Þetta sögufræga félagsheimili hefur fengið endurnýjun lífdaga, ef svo má að orði komast, og það er búið að byggja mjög stóra bygg- ingu hérna við sem telur yfir fimm þúsund fermetra og þjónar hlutverki sem svona hálfgerð tónlistarmiðja Reykjanesskagans.” Viðskiptavinir flestir erlendir gestir Viðskiptavinir Rokksafnsins eru í dag um 80% útlendingar en svoleiðis var það ekki til að byrja með. „Þegar við opnuðum fyrst voru gestirnir sirka 80% Íslendingar og 20% útlendingar en nú hefur þetta eiginlega alveg snú- ist við. Við auglýsum ekkert svakalega mikið í samanburði við aðra risa eins og til dæmis Bláa lónið eða Reykjavík Excursions. Við höfum fengið góð viðbrögð á netinu, eins og á til dæmis Trip Advisor og Facebook og ég held að það sé ástæðan fyrir því að fólk sé að koma hingað aftur. Ef sýningin er flott þá munu gestir koma. Það virðist hafa spurst út á meðal útlendinga og ferðaþjónustuaðila að safnið sé flott og gott,” segir Tómas. Stefnt er að því á næstunni að gera safnið, eins og áður kom fram, staf- rænna. „Ég hef hugmyndir um það að snúa áherslunni við, að við förum að sanka að okkur fleiri munum. Við erum ekki með það sem ég myndi kalla reglulega söfnunarstarfsemi. Við vöknum ekki hérna á daginn og hringjum í Mugison eða Björgvin Hall- dórsson til að spyrja hvað þeir geti gefið okkur, heldur höfum við svona verið að taka á móti munum sem hafa lent hjá okkur. En mig dreymir um að við förum að safna munum úr rokksögunni áður en það verður of seint og snúum áherslunni kannski svolítið við.” Allir með jafn stóran sess á Rokksafni Íslands Frá afhendingu Nýsköpunar- og hvatningarverðlauna ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2019, t.v. Daníel Einarsson frá Reykjanes Geopark, Tómas Young framkvæmdastjóri Hljómahallar og Rokksafns Íslands og Þuríður Aradóttir Braun frá Markaðsstofu Reykjaness. Ljósm. Markaðsstofa Reykjaness. 21MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. mars 2019 // 10. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.