Fréttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara - 20.11.1996, Page 10
Frá Landlækni vorum
--------------------------------- LANDLÆKNIR
Til heilbrigðisstarfsfólks Reykjavík, 18.10.1996
Tilvísun okkar
Vl/ÓÓ/hþ
Tilvísun yðar
DREIFIBRÉF LANDLÆKNISEMBÆTTISINS
NR. 8/1996
um upplýst samþykki fyrir þátttöku í vísindarannsóknum
Leiðbeiningar varðandi samþykki til þátttöku í visindarannsókn byggt á vitneskju um
rannsóknina.
Ein af forsendum þess aö framfarir eigi sér stað innan heilbrigðisþjónustunnar er að gerðar séu
vísindarannsóknir.
Flestar vísindarannsóknir hafa það markmið að auka skilning á orsökum, meingerð og þróun
sjúkdóma og annarra vandamála sem heilbrigðisþjónustan fæst við svo og að bæta aðferðir við
vamir þeirra, greiningu og meðferð. I slíkum rannsóknum er þátttaka sjúklinga, skjólstæðinga
heilbrigðisþjónustunnar eða aðstandenda þeirra oft nauðsynleg.
I því skyni að vemda rétt og hagsmuni þátttakenda í vísindarannsóknum hafa verið settar
ýtarlegar siðareglur sem byggja að nokkm leyti á siðareglum sem samþykktar voru í Numberg
árið 1947. Má þar nefna Helsinkiyfirlýsingu Alþjóðafélags lækna frá 1964 með áorðnum
breytingum og “Ráðleggingar ráðherranefndar Evrópuráðsins til aðildarríkjanna um
læknisfræðilegar vísindarannsóknir á mönnum” frá 1990.
í vísindarannsóknum verða hagsmunir einstaklings alltaf að ríkja yfir þörfum vísinda og
samfélags. Höfuðatriði til vemdar hagsmunum einstaklings sem þátt tekur í rannsókn er að
hann veiti formlegt samþykki sitt til þátttöku eftir að hafa fengið og skilið upplýsingar sem lúta
að rannsókninni og þátttöku hans í henni.
Siðaráð landlæknis hefúr á síðustu ámm unnið Leiðbeiningar varðandi þátttöku í
vísindarannsókn byggt á vitneskju um rannsóknina.
Landlæknisembættið fer þess á leit við heilbrigðisstarfsmenn að þeir kynni sér þær
leiðbeiningar sem hér fylgja og styðjist við þær þegar leitað er samþykkis einstaklings fyrir
þátttöku í vísindarannsóknum.
Umræddur leiðbeiningabæklingur er fáanlegur hjá Landlæknisembættinu og er
einnig til á skrifstofu FÍSÞ.
Afrit bréfsins var einnig sent Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.
Landlæknir
10
í-réttabréf Félags íslenskra sjúkraþjálfara - áttundi árgangur