Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Síða 7

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Síða 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 http://www.ætt.is aett@aett.is7 vegna reksturs þeirra jarða er heyrðu undir þá staði er hann sat, en einnig til skyldra og vandalausra. Hann greinir frá afkomu fólks í sveitum og landshlutum þar sem hann þekkir til eða í hans nágrenni og lýsingar á veðurfari oftlega glöggar. Á þeirri tíð var hart í ári á Vesturlandi og ýmsar hjáleigur fóru í eyði. Forskrift Bjargarskortur gat verið yfirvofandi þegar „sigling- unni“ með vörur erlendis frá seinkaði eða brást alveg í kjölfar harðindavors. Bændur gátu þurft að skera af bústofni sínum til að halda fólkinu við lýði. Rithönd Þorkels er stöðug og læsileg og hann er orðvar í riti sem tali. Í endurminningum Snæfellings nokkurs kemur fram að vorið 1874 er Þorkeli var veittur Staðarstaður kom hann í fardögum með sína stóru og glæsilegu fjölskyldu. Fljótt heimsótti hann hjáleigurnar og spurðist fyrir um fornar venjur. Þegar Þorkell varð prestur á Staðarstað, kom hann því til leiðar að sókn- arbörn hans yrðu sæmilega skrifandi. Hann gaf sjálf- ur forskrift sem hann lét hvert heimili hafa þar sem fólk var illa skrifandi eða óskrifandi. Meðan hann var þjónandi prestur í Skaftártungu stuðlaði hann einn- ig að skriftarkunnáttu sóknarbarna sinna og gaf þar skriftarforrit heim á bæina. Þegar Þorkell hló, segir í endurminningum Snæfellings, var ekki annað hægt en hlæja með, hann var raddmaður og auðfundið að hlátur hans var ekki hæðnishlátur. Þorkell tónaði og söng mjög vel og hvatti fólk til þess að syngja í kirkjunni; ræður hans voru langar en efnisríkar og vel uppbyggðar. Gestanauð Þegar Þorkell flutti að Staðarstað frá Borg á Mýrum var vinnumaður hjá honum sem Vigfús hét Jónsson. Hann hafði góða söngrödd og hafði lært að lesa nót- ur. Þegar hætt var að syngja í Grallaranum og nýja sálmabókin kom út voru ný lög við suma sálmana og þau lög hafði Vigfús lært og kenndi fólki þau. Þessi maður settist að á Snæfellsnesi og munu afkomendur hans ýmsir hafa búið þar. Snæfellingurinn heldur áfram endurminningunum og bætir við um kornmölun: Eftir að bændur fóru með ull í kaupstað byrjaði malverkið og venjulega var því lokið í sláttarbyrjun. Bændur komu sjálfir með korn- ið, sem var rúgur og bankabygg; þeir sem efnaminni voru biðu meðan malað var. En stórbændurnir og séra Þorkell fóru venjulega að Lýsuhóli til þess að baða sig í lauginni þar. Presturinn reið síðan að Búðum til þess að kaupa eitthvað og kom við á heimleið að sækja mjölið og færði þá húsmóðurinni alltaf kaffipund, segir þar. Maddama Ragnheiður fór sjaldan út af heimilinu, enda var hennar staða erfið og hún útslitin kona þeg- ar hún hætti búskap. Heimilið var mannmargt og Foreldrar Bjargar Einarsdóttur greinarhöfundar, Einar Þorkelsson skrifstofustjóri Alþingis og Ólafía Guðmundsdóttir húsmóðir.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.