Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 9

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 9
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 http://www.ætt.is aett@aett.is9 Fornólfskver útg. 1959 bls. 23 neðanmáls (úrdráttur) Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar er frásögn um að maður sá er fá vildi Margrétar Bogadóttur, áður en séra Jón Þorláksson fékk hennar, hafi þegar honum var synjað hennar, haft í heitingum og hann skyldi sjá svo um að Margrét hefði ekki of mikla ánægju í því hjónabandi. Hafði hann þá magnað tófu og sent að Galtardal til þess að spilla samförum séra Jóns og Margrétar. Þetta getur enginn hafa átt að vera annar en Snæbjörn Stadfeldt (vonbiðill Margrétar). Tófa þessi varð síðan erfðafé og kynfylgja niðja séra Jóns og Margrétar, og einbirni þeirra var einmitt Guðrún amma mín – segir dr. Jón Þorkelsson. Og bætir við: – var tófunni gefið nafnið Galtardalstófa. Þegar ég var að alast upp eystra (þ.e. í Skaftártungu) trúði fólk þar að hún hefði fylgt föður mínum (Þorkeli Eyjólfssyni) þar eð hann hefði sjálfur alltaf lokað síðastur bænum á kvöldin, áður en hátt- að væri, til þess að loka tófu úti. Hann brosti að og kvað það jafnan hafa verið vanda sinn, í öllum sínum búskap, að hafa gætur á því áður en gengið væri til rekkju á kvöldum hvort bænum væri lokað eða eldur falinn til hlítar. Annars var tófan ekki nein óheillafylgja niðjum séra Jóns Þorlákssonar og Margrétar Bogadóttur held- ur einmitt verndarvættur – heldur dr. Jón Þorkelsson áfram, og hefur eftir Ragnheiði móður sinni að meðan þau séra Þorkell bjuggu á Borg á Mýrum (1859-1875) hafi aldrei komið fyrir að fé kæmi dýrbitið af fjalli. Tófan varði fé húsbænda sinna fyrir aðskotadýrum, var mál bænda á svæðinu. Sjálfur lét dr. Jón merkja gripi hjá sér með mynd af tófunni og einnig handa Guðbrandi syni sínum. Einnig er mynd af dýrinu á Fornólfskveri er kom út 1923 og var myndskreytt af Birni Björnssyni. Ýmsir hafa gaman af sögunni um tófuna en öðr- um finnst hún algjör bábilja. Óskar Clausen, sonur Guðrúnar Þorkelsdóttur Clausen, hefur oft haft ætt- arfylgjuna á orði og skrifað sögur af henni. Af vonbiðli Margrétar Bogadóttur er það að segja, þá honum var synjað konunnar af Boga föður hennar, að hann eirði ekki á landinu. Fór Snæbjörn Ásgeirsson Stadfeldt til Danmerkur og las þar lög. Komst til álita og gegndi háum embættum; hann var tvíkvæntur þarlendum konum og eru af honum ættir ytra. Barn hans og Margrétar Bogadóttur, Þrúður, fædd- ist 1772. Tekið saman af Björgu Einarsdóttur í febrúar 2015 Galtardalstófan Litli-Galtardalur á Fellsströnd. Séra Jón Þorláksson sálmaskáld bjó um tíma í Galtardal með konu sinni Margréti, dóttur Boga Benediktssonar. Ljósmynd Ósk Guðfinnsdóttir frá Litla-Galtardal.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.