Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Page 10

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Page 10
10http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 aett@aett.is Í niðjaskrá hjónanna Þorsteins Þorsteinssonar, fæddum á Öxnhóli í Hörgárdal 17. ágúst 1828, og Kristínar Kristjánsdóttur, fæddri á Nýjabæ Hörgárdal 25. nóvember 1827, búandi hjóna á Öxnhóli, kem- ur fram að átta af þrettán börnum þeirra hjóna bera nöfn sem tengjast Þorsteinsnafninu: Þau hétu sem hér segir: A) Kristján, bjó í Hörgárdal, niðjar 1234. B) Þorsteinn, dó ungur, einkasonur hans fór til Noregs og átti tvær dætur. C) Sigríður, bjó á Akureyri, niðj- ar 515. D) Steinunn Kristín, átti börn en enga aðra afkomendur. E) Rósa, bjó á Dalvík, niðjar að minnsta kosti 603. F) Steinþór, bjó á Hömrum við Akureyri, niðjar 785. G) Steinmóður, bjó á Akureyri, óg. bl. H) Jóhanna Margrét, bjó í Öxnadal, 557 niðjar. I) Ingunn Arnfríður, dó nýfædd. Í) Sigursteinn, dó nýfædd- ur. J) Erlendur Aðalsteinn, dó 10 ára. K) Halldór Steinmann, óg og bl. á ýmsum stöðum í Eyjafirði. L) Erlendur Aðalsteinn fór til Ameríku, deyr þar, líklega ungur, hef ekki fundið niðja. Í nöfnunum barnanna koma fram hinar ýmsu útgáfur af Þorsteinsnafninu, þar sem STEINN kem- ur fyrir, ýmist sem fyrri eða seinni hluti í samsettu nafni. Nöfnin eru: Þorsteinn, Steinunn, Steinþór, Steinmóður, Sigursteinn, Aðalsteinn og Steinmann. En alls kemur Þorsteinn fyrir 47 sinnum hjá afkom- endunum, Aðalsteinn 19 sinnum, Steinþór 16 sinnum, Steinar 10 sinnum, Sigursteinn 8 sinnum, Steindór 6 sinnum, Steinmann 5 sinnum, Hafsteinn 5 sinnum, Steinberg þrisvar sinnum, Steingrímur þrisvar sinn- um, Steinmóður tvisvar sinnum, Guðsteinn einu sinni, Eysteinn einu sinni, Bergsteinn einu sinni, Gunnsteinn einu sinni, Freysteinn einu sinni og Hólmsteinn einu sinni. Sé litið til kvenmannsnafnanna hef ég fundið fimmtán Steinunnir og eina Steinu. Ekki hef ég neitt fyrir mér í því að verið sé að skíra í höfuðið á ættföðurnum Þorsteini, en freistandi er að ætla það. „Fyrsti“ Þorsteinninn er Þorsteinn Ásmundsson (1742-1815) bóndi í Lönguhlíð, dóttursonur hans er Þorsteinn „elsti“ Sigurðsson (1794-1867) bóndi og hreppstjóri á Öxnhóli, „efnamaður, vel met- inn og menntaður“. Sonur hans var Þorsteinn „mið“ Þorsteinsson (1828-1868), bóndi og hreppstjóri á Öxnhóli, sem í upphafi var nefndur. Þorsteinn son- ur hans var Þorsteinn „yngsti“ Þorsteinsson (1852- 1882) bóndi á Öxnhóli,en Ólafur sonur hans flutti til Noregs. Kristinn Kristjánsson: „Steinn“ í bak og fyrir Mikill fjöldi barna og afkomenda hjónanna Þorsteins Þorsteinssonar og Kristínar Kristjánsdóttur, á Öxnhóli bera „Stein“ í nafninu sínu, ýmist sem forlið eins og Steinmann eða seinni lið eins og Sigursteinn. Hér má sjá handrit frá Halldóri Steinmann syni þeirra hjóna. Nýir félagar Þórunn Einarsdóttir kt. 150531-7999 Reynivöllum 12, 800 Selfoss netfang: jongudb@simnet.is Ragnheiður S Helgadóttir grunnskólakennari 240343-4369 Garðhúsum 2 112 Reykjavík netfang: ragnheidurh43@mail.com Gleðilegt sumar

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.