Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Qupperneq 14

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Qupperneq 14
14http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 aett@aett.is ir hestarnir fallnir og skildu þau eftir mikið af dóti sínu. Kvöldið eftir komu þau að Sólheimum í Mýrdal. Þar var þeim mjög vel tekið og hlynnt að Guðrúnu sem bezt mátti verða. Þar dvöldust þau nokkurn tíma því Guðrún var sárlasin og ekki ferðafær. Mun það hafa verið Valgerður gamla frá Skál sem þau gistu hjá, þá nýflúin af sinni eigin jörð undan sama voða og skildi því vel aðstöðu þessa fólks, sem misst hafði aleigu sína að heita mátti. Markarfljótið Það mun hafa verið komið undir veturnætur, þegar þau Páll tóku sig upp frá Sólheimum. Þeim var fylgt út yfir Jökulsá, og gekk ferðin slysalaust og farsællega út með Fjöllunum, en ekki munu þau hafa haft lang- ar dagleiðir. Um miðjan dag í skuggalegu veðri komu þau að Markarfljóti. Voru þau þá ein með þrjú börn, sem áttu að flytjast yfir á einum farkosti ásamt trúss- um er í var nauðsynlegasti farangur þeirra. Páll lét Guðrúnu fara á bak hryssunni og reiða yngsta dreng- inn, en eldri drengina lét hann bíða hjá farangrinum. Fóru þau nú í fljótið. Hann óð á undan og kannaði fyr- ir þeim og gekk allt slysalaust vestur yfir. Svo fór hann aftur austur yfir og sótti eldri dreng- ina og flutninginn. Allt þetta staulaðist sú skjótta með yfir um án þess að neitt vöknaði að ráði, en folaldið sparaði sér snúninginn og beið fyrir utan hjá konunni á meðan. En nú tók veður að versna og hvessti af hafi með mikilli rigningu. Samt mjökuðust þau áfram og komust út yfir Ála og Affall. Svöng, þreytt og illa til reika röltu þau áfram í ill- viðrinu og myrkrinu án þess að vita hvert þau færu eða hvað við tæki. Öðru hvoru kveinuðu börnin af kulda og vanlíðan, en þess á milli störðu þau þögul út í myrkrið og tóku á öllu sínu viljaþreki til að vera róleg. Loksins varð fyrir þeim húskofi nokkur og urðu þau harla fegin að finna þar skýli. Þetta var fjárhús, en fullt af for og bleytu upp í ökla. Þó létu þau börn- in í jötuna og ætluðu að hafast þarna við þar til veð- ur skánaði. Hryssan horfin Þegar Páll kom út aftur og ætlaði að taka af hryss- unni var hún horfin og fer hann þá að leita. Í myrkr- inu rekst hann þá á annað hús skammt frá og stendur hryssan þar í skjóli við dyrnar. Páll fer inn í húsið og finnur að það er þurrt og þokkalegt. Tekur hann þar ofan baggana og sækir svo konuna og börnin. Innar í húsinu finna þau hlóðir, sýrukagga og loks hurð á járnum krækta aftur. Opna þau hurðina og koma í lítið afhýsi, súglaust og þurrt. Þar fundu þau rúmbálka með hvorum vegg og tóku þeir gafla á milli, en voru ekki nema meðalmanns rúmstæði og gólfrúm fremur lítið. Þóttust þau sjá að þarna mundi vera haft í seli um sumarið, en hitt húsið með forinni í mundi hafa verið notað fyrir kvíar. Á rúmbálknum voru gæruskinn og einhverjar við- leguflíkur. Bjuggu þau nú um sig í fletunum sem bezt þau gátu, lásu bænirnar sínar og lofuðu guð fyrir handleiðslu hans og vernd yfir hættuleg vatnsföll og óþekktar vegleysur. Að því loknu sofnuðu þau svefni hinna réttlátu án alls ótta eða áhyggju, því að í selkofa þessum fannst þeim þau vera búin að finna sitt eigið heimili eftir langa og lýjandi ferð. Síra Stefán Um þessar mundir var síra Stefán Högnason prestur að Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Átti hann hús þau sem Aurasel. Teikning eftir Ragnar Lár.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.