Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 16

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 16
16http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 aett@aett.is hana öllu ráða. Var hjónaband þeirra hið bezta, þótt þau væru í mörgu ólík. Hún var fljóthuga, en hann frekar seinlátur og sírólegur á hverju sem gekk og gerði tíðum gaman úr öllu. Bæði voru þau vinnusöm, sparsöm og nýtin. Sannaðist þar, að hvert land bjargast við sín gæði, ef rétt er á haldið. Guðrún hafði mikinn áhuga á garðrækt og hafði ætíð meiri jarðávöxt en þá tíðk- aðist. Oft fengu þau góðan hlut frá sjó, eins og þá gerð- ist. Eins fór Ögmundur margar ferðir inn á fjöll, tíndi grös og gróf hvannarætur, en þetta þótti hvortveggja gott til manneldis í þá daga. Þó að búið væri ekki stórt, oftast þrjár kýr, um hundrað fjár og fimmtán til tuttugu hross, en heimilisfólk margt, var þó aldrei bjargarlaust í Auraseli. Jafnan var eitthvað fyrir hendi til að miðla gestum og gangandi, en margir áttu leið þar um, eins og áður segir, þeir er yfir vötnin þurftu að fara. En gestrisin voru þau hjón bæði um veitingar og annan fararbeina. Ósýnilegt Margar sögur hafa gengið um Ögmund í Auraseli og kunnáttu hans, en sennilega eru þær flestar eitthvað ýktar eða úr lagi færðar. Saga sú er hér fer eftir mun þó vera að einhverju leyti sönn. Þegar síra Skúli Gíslason var prestur á Breiðabólsstað í Fljótshlíð var hann vanur að gefa kirkjugestum kaffi eftir messu. Einn sunnudag sem oftar var setustofa full af gestum og spjölluðu menn um ýmislegt, svo sem veðurfar og nýtingu sláttarins, því þetta var að áliðnu sumri. Loks barst talið að hinni ósýnilegu tilveru. Þar var staddur meðal annarra utansóknarmaður einn, Jón Einarsson að nafni, undan Eyjafjöllum. Hann aftók alveg að til væri nokkuð nema það sem allir sæju. Þarna var Ögmundur í Auraseli. Hann hélt fram hinu gagnstæða, og harðnaði nokkuð ræðan, þangað til Ögmundur sagði að hollt væri fyrir Jón að kynnast öðru en hann hefði þekkt, enda mundi skammt til þess að hann skipti um skoðun. Jón tók því mjög fjarri og skildu þeir við það. Fór Ögmundur heim til sín en Jón reið inn í Hlíð og hafði tvo til reiðar. Morguninn eftir laust eftir fótaferðartíma var Auraselsfólkið að slá útsetublett við túnið. Sér það þá að maður kemur gangandi austan Aura og ber hnakk sinn á bakinu. Þarna er þá kominn Jón Einarsson sem um var getið. Heilsast þeir Ögmundur, en Jón segir sínar farir ekki sléttar, og kvaðst hafa verið að vill- ast á Aurunum alla nóttina. Sagðist honum svo frá, að þegar hann kom suður yfir Þverá hefði orðið næstum aldimmt. Þá kom til hans stór hópur af ríðandi fólki, sem hann þekkti ekki, en hinsvegar virtist þekkja hann. Það var honum samferða nokkurn spöl, hló og masaði, en gerði honum ekkert. Nokkru seinna kom annar hópur og svo hver af öðrum og allt fór á sömu leið. Seinast fór hann af baki til að reyna að átta sig á þessu. En þá fór hið ókunna fólk líka af baki, söng og dansaði í kring um hann, og klappaði honum og gerði dátt við hann. Loksins kvaddi það, þakkaði hon- um fyrir samveruna, sté á bak og reið burt. Ætlaði hann þá að taka hesta sína og halda heim, en þá voru þeir farnir og hnakkurinn lá eftir. Verst fannst Jóni sér þykja með hestana, því tvíteimingsbeizli hafði ver- ið á öðrum þeirra, en mikið í vötnunum og sennilega hefðu þeir lagt í þau. „En nú hefi ég skipt um skoðun“, bætti hann við, „það er áreiðanlega fleira til en ég hafði hugmynd um eða trúði“. „Það er ekki ólíklegt, að svo sé Jón minn, en komdu nú heim og hlýjaðu þér á heitum dropa“, sagði Ögmundur, en það var orðatiltæki hans er hann bauð gestum góðgerðir. Eftir að Jón hafði þegið mat og brennivínskaffi í Auraseli, hélt hann heim til sín á reiðhesti Ögmundar gamla. Hestar Jóns voru komnir heim til sín á undan honum, báðir með beizlum. En af þeim Jóni og Ögmundi er það að segja, að þeir urðu mestu kunn- ingjar eftir þetta. ------ „andans vandræði“ Elsti sonur Ögmundar í Auraseli hét Guðmundur. Hann fluttist út í Vestmannaeyjar og bjó lengi í Borg sem var tómthúskot í Stakkagerðistúni. Eitt af börnum Guðmundar hét Ásgeir. Hann ólst upp í Auraseli hjá afa sínum og ömmu. Snemma var hann hneigður til smíða og varð hinn mesti smiður. Smíðaði hann mörg áraskip og þiljubáta. Hann átti Kristínu Magnúsdóttur frá Berjanesi í Landeyjum. Þau bjuggu í Litlabæ í Vestmannaeyjum og áttu margt afkomenda. Ásgeir dáði mjög fósturforeldra sína og sagð- ist víða hafa notið þeirra, en hvergi goldið. Kunni hann mörg dæmi þess, þótt hér verði eigi talin. Sagði hann, að þau hefðu verið nægjusöm og ánægð með hlutskipti sitt, en vorkunnlát og hjálpsöm við aðra sem eitthvað áttu erfitt. Mjög tók hann fyrir það að Ögmundur hefði farið með kukl og aðra forneskju, hann hefði verið bænrækinn og trústerkur. Blótsyrði hefði hann ekki viljað heyra og aldrei notað stóryrði sjálfur. Ekki æðraðist hann, þótt á móti blési, en þegar hann heyrði aðra fárast yfir einhverju, var orðtæki hans þetta: „ja hvaða andans vandræði eru þetta, tetrið mitt“. Reglusemi var mikil á heimilinu og hver hlutur á sínum stað og hvert heimilisverk unnið á sama tíma, ef unnt var að koma því við. Tálguhnífurinn Svo sagði Ásgeir að bæði hefðu þau hjón sýnt sér hina mestu ástúð, uppfrætt sig vel og veitt sér hið bezta uppeldi. Þó dáði hann afa sinn meira. „Hún amma var mér góð“, sagði Ásgeir, „þó ég væri hneigðari fyrir smíðaföndur en snúninga. En hann afi var alltaf sam-

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.