Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 17

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 http://www.ætt.is aett@aett.is17 ur og jafn, þó komu bernskubrek mín oft niður á hon- um“. Ögmundur geymdi smíðatól sín í skáp sem negldur var innan á smiðjuþilið. Þar á meðal var mjög góður tálguhnífur, sem hann var búinn að eiga lengi og vildi helst ekki lána neinum. Stundum tók Ásgeir hann í leyfisleysi. Loksins tókst svo illa til, að hann var að tálga með honum harða spýtu, að hnífurinn hrökk í sundur. Var strákur nú í öngum sínum og vissi ekki, hvað til bragðs skyldi taka. Það varð fangaráð hans að hann faldi brotin undir skánarkökkum á bak við smiðjubelginn, þar sem skugga bar á, og fór svo að tálga með öðrum hníf, eins og ekkert hefði í skorist. Skömmu seinna kom Ögmundur inn í smiðju og ætlaði að taka hnífinn. Þegar hann fann hnífinn ekki í skápnum leit hann á drenginn en sagði ekkert, fór svo að leita einmitt þar sem Ásgeir hafði falið hann og fann hann fljótlega, eins og honum hefði verið vísað á hann. Drengurinn fór að gráta, en Ögmundur klapp- aði á kinnina á honum og sagði: „Þú áttir að fá mér brotin barnið mitt. Skaftið var svo skrambi gott”. En einu sinni sá Ásgeir að Ögmundi mislíkaði. Ásgeir var þá 8 – 10 ára gamall. Kom hann inn í bað- stofu og sagðist hafa fundið músaholu inni í högum, grafið hana upp og ungarnir hefðu þotið í allar átt- ir. Þóttist drengurinn hafa unnið mikið afreksverk. En þá varð gamli maðurinn þungbrýnn og sagði að þetta væri ljótur leikur, sem enginn ætti að iðka, því það væri varhugavert að særa þá sem hefðu ekkert gert á hlut manns. Veslings skepnurnar vildu líka lifa og sjá afkvæmum sínum borgið engu síður en mennirnir. Þessum áminningarorðum afa síns gleymdi Ásgeir aldrei. Marka má það af því að frostaveturinn 1918 er mikill músagangur var í hrófinu hjá honum, þar sem hann var að smíða, gaf hann músunum iðulega brauðmola og annað hnossgæti, en þær urðu svo spakar, að þær átu úr lófa hans. Allir góðir Ögmundi í Auraseli er svo lýst, að hann hafi verið í meðallagi hár, þrekinn á vöxt, dálítið lotinn í herð- um, höfuðstór, skolhærður og varð snemma sköllótt- ur, nokkuð stórskorinn, með blá augu, skegg á efri vör og kraga sem kallað er, en rakaði hökuna. Sterkur var hann talinn, kvikur á fæti og góður göngumaður, öruggur á sjó og landi, hægur í framgöngu, orðvar og óáleitinn. Þungur þótti hann í orðaskiptum, ef að hon- um var kastað, en það gerðu fáir, því hann var góðvik- inn og greiðasamur og fannst allir vera góðir. Á gamals aldri fluttust þau Ögmundur og Guðrún að Berjanesi í Landeyjum og bjuggu þar til æviloka. Þar andaðist Ögmundur 25. maí 1890 á 87. aldursári. Hann hafði bannað börnum sínum að láta heita eft- ir sér. Útaf því var þó brugðið, en það þótti eigi vel gefast. (Eftir handriti Valdimars bónda Guðmundssonar í Kílhrauni á Skeiðum, að mestu eftir sögn föður hans, Guðmundar Vigfússonar í Kílhrauni, sem var dótt- ursonur Ögmundar og sögn Ásgeirs Guðmundssonar í Litlabæ í Vestmannaeyjum, sem var sonarsonur Ögmundar og fóstursonur, eins og getið er í þætt- inum) *************************************** Skyldleiki Guðjóns Þórs Valdimarssonar og Guðrúnar Þorsteinsdóttur húsfreyju í Auraseli og Ögmundar Ólafssonar, fyrri manns hennar. Guðrún bjó í Auraseli með Páli Eyjólfssyni seinni manni sín- um. Guðrún Þorsteinsdóttir Ögmundur Ólafsson 1749-28. júlí 1818 1726-19. september 1780 Guðni Ögmundsson 1778-1850 Guðríður Guðnadóttir 1819-1877 Guðríður Þorsteinsdóttir 1856-1944 Þórunn Ólafsdóttir 1889-1978 Valdimar Guðjónsson 1918-2002 Guðjón Þór Valdimarsson 1946 Athugasemd ritstjóra: Samkvæmt Íslendingabók var Arndís, barnsmóð- ir Ögmundar Pálssonar, Bjarnadóttir, ekki Jónsdóttir, og það sama kemur fram í Austur-Landeyingabók. Arndís var fædd 1779 og lést 21. júlí 1843. Í mt 1801 er Arndís vinnukona á Núpi í Breiðabólsstaðarsókn í Fljótshlíð. Í mt 1835 er hún í Auraseli hjá Ögmundi syni sínum, þá um 57 ára. Millifyrirsagnir og myndatexti eru ritstjóra. Stóri-Dímon og Markarfljót. Páll selflutti fjölskyld- una, konu sína og þrjú lítil börn, á einum hesti, yfir Markarfljót ásamt nauðsynlegasta farangrinum. Hann óð á undan, kannaði fyrir þeim og gekk allt slysalaust vestur yfir. Ljósmynd Björn Jónsson.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.