Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Qupperneq 18

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Qupperneq 18
18http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 aett@aett.is Hér segir nokkuð af Einari Jónssyni í Götuhúsum og hans fólki. Skal nú nefndur til sögunnar forfað- ir minn einn úr Skagafirði er settist að í Víkinni. Bjó hann fyrst í Götuhúsum í Grjótaþorpi. Af hon- um var amma mín, Sigurlaug Lárusdóttir komin í móðurætt. Einar Jónsson hét hann, fæddur fyr- ir norðan árið 1760 en lést í Reykjavík 1834. Um hann er ort í bók minni, Vökuborg og draums undir titlinum Götuhúsaslarkarinn. Ekki fer af Einari annað sagna en kotungshok- ur í Götu, ölæðisinnrás í Múrinn og landnám í Þingholtunum. Nú jæja, það skilar hver sínu þótt ax- arsköft sumra rati í sagnir meðan tíðindaleysið tryggir öðrum eilífa þögn. Um ástæðu þess að forfaðir minn varð mér að yrk- isefni með þessum hætti, má lesa í Reykjavíkursögu Klemensar Jónssonar, en þar segir: „Um áramótin 1789—90 var svo mikið drykkjuslark og óspektir í Reykjavík að stiftamtmanni ofbauð. Hann lagði því fyrir Skúla landfógeta að hafa þar duglegan mann í sinn stað, sem „pólití“. Hann neitaði því, þareð sér bæri engin skylda til þess; þetta var rétt, því það heyrði undir sýslumann. Kjaftshögg Á aðfangadagskvöldið komu þeir bræður Einar Jónsson og Jón Dúkur með fleirum upp í tukthúsið drukknir, og vildu komast inn, og er dyravörður varði þeim inngöngu, sló Einar dyravörð. Skipaði þá stipt- amtmaður Sigurði Pjeturssyni sýslumanni að hafa lögreglueptirlit í bænum.“ Ég get því stoltur sagt, að kjaftshögg, sem drukk- inn forfaðir minn allra náðarsamlegast skenkti kóngs- ins tugthúsvaktara, sé upphaf nútíma löggæslu í Reykjavík og raunar á landinu öllu. Ég er því maður af brautryðjandakyni. Liðu svo árin, uns þar kom, að Lárus G. Lúðvíksson skósmiður og sonarsonur Alexíusar Árnasonar pólitís, gekk að eiga Málfríði Jónsdóttur afkomanda Einars í Götuhúsum í þriðja lið. Segi menn svo, að ekki geti fylgt nokkur kímni þeim örlögum er leiða saman mann og konu. Áður en skilist er við Einar í Götuhúsum skal þess getið, að einhvern tíma á árunum 1800 til 1803 settist hann að í Þingholtunum ásamt konu sinni, Málmfríði Einarsdóttur frá Neðstalandi í Öxnadal og börnum þeirra. Segir í sumum heimildum, að þau hafi fyrst manna byggt í Þingholtunum. Þarna í Þingholtunum og þar um slóðir, bjó margt afkomenda þessara norð- lensku hjóna fram undir lok síðustu aldar. Sjálfsagt búa einhverjir þeirra þar enn. Dæturnar þrjár Þau Einar og Málmfríður gengu í hjónaband árið sem Reykjavík öðlaðist formlega kaupstaðarréttindi, þann 21. nóvember 1787 og segir Espólín þau hafa gifst syðra. Þeim varð, hvað ég best veit, þriggja dætra auðið. Sú í miðið, Bergþóra, er formóðir mín, fædd árið 1795, en yngst var Guðríður, sem fæddist árið 1800. Fer af þeim litlum sögum. Þeim mun meira seg- ir af elstu systurinni, Guðrúnu, en hún var í heiminn borin á því herrans ári 1790. Skal nú nokkuð frá henni sagt. Guðrún er sögð hafa verið með fádæmum glæsileg kona. Það er því síst að undra, að karlmenn löðuðust að henni, en lítt virðist það hafa orðið henni til gæfu. Hún mun hafa verið ástkona Jörundar hundadagakon- ungs meðan stóð á hans stuttu en viðburðaríku Íslandsdvöl sumarið 1809. Einvígi Einn af félögum Jörundar í Íslandsævintýri hans, var enski kaupmaðurinn Savignac. Hann kom aftur hing- að til lands, eftir handtöku Jörundar og verslaði hér. Árið 1811 virðist hann hafa verið farinn að gera hos- ur sínar grænar fyrir Guðrúnu Einarsdóttur. Skal nú vitnað í Árna Óla, það er, í þátt hans, „Brautryðjendur íslenzkrar verzlunar“, sem birtist í bókinni Gamla Reykjavík 1954. Þar segir: „Þetta sumar (1811) varð sá atburður í Reykjavík, að Savignac hinum enska og Gísla Símonarsyni bar til. Brá Gísli honum um þernu hans, er áður hafði ver- ið með Jörgensen, Guðrúnu, dóttur Dúks-Einars, er kallaður var, en Savignac bauð honum til einvígis og gekkst hann undir. Savignac var karlmannlegur maður að sjá, en ekki sterkur. Og eitt sinn, er Gísli var inni hjá biskupi, kom hann þangað og hélt á tveimur pístólum og fékk Gísla aðra, reyndist síðar að sú var tóm, en Savignacs pí- stóla hlaðin, með svo miklu falsi var það gert. Síðan spenntu þeir báðir, en biskup þreif til þeirra og setti þá niður hjá sér báða, og gat talað niður með þeim, svo að þeim var óhætt hvorum fyrir öðrum að kalla.“ Gísli Símonarson, sá er hér um ræðir var merkur kaupmaður á sinni tíð og kemur hann víða við sögu. Þótt svo sé látið heita, í frásögninni hér að ofan, að Guðrún hafi verið þerna hans, verður að teljast hæpið, að hann hafi verið tilbúinn til hólmgöngu fyrir hana, hafi samband þeirra ekki verið nánara en gengur og gerist milli húsbænda og hjúa. Pjetur Hafstein Lárusson: Af brautryðjandakyni

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.