Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Qupperneq 19

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Qupperneq 19
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 http://www.ætt.is aett@aett.is19 Gæfusnauð Hvað sem því líður, þá náði Savignac ástum Guðrúnar og elti hún hann til Englands, enda mun hjónaband hafa verið fastmælum bundið þeirra í millum. Sú var í það minnsta trú Guðrúnar. En þegar út kom, varð hún þess vísari, að þar átti ástmaður hennar konu og börn. Varð það endir þeirra skipta. Guðrún stóð nú uppi slypp og snauð á enskri grund. Leitaði hún þá ásjár hjá þeim kunna velgjörðarmanni Guðrún Einarsdóttir, dóttir „Dúks-Einars“, mun hafa verið ástkona Jörundar hundadagakonungs sumarið 1809. Einn af félögum Jörundar í Íslandsævintýri hans var enski kaupmaðurinn Savignac. Hann náði síðar ástum Guðrúnar og elti hún hann til Englands. Teikning Jörgen Jörgensen. Íslendinga, sir Joseph Banks og mun hann hafa greitt götu hennar. Frá Englandi lá leið þessarar glæsilegu en gæfusnauðu konu aftur til Reykjavíkur. En að þessu sinni dvaldi hún þar skamma hríð, uns hún flutti til Danmerkur. Þar giftist hún og eignaðist að minnsta kosti eitt barn. Má því vel vera, að hún eigi afkomendur í Danmörku og jafnvel víðar. Um örlög hennar þar úti er það eitt vitað, að hún lést um fimmtugt, í sárri fátækt. Hólmfríður Gísladóttir: Stína frænka Kristín Jónsdóttir var fædd á Kothrauni í Helga- fellssveit, 7. nóvember 1875. Hún var ömmusystir mín. Foreldrar hennar voru Jón Jónsson og Guðrún Guðmundsdóttir. Jón var þriðji maður Guðrúnar; hún missti hina báða. Stína ólst upp á Kothrauni hjá for- eldrum sínum og Guðrúnu, alsystur sinni, og þremur hálfbræðrum. Þegar hún var 17 ára, 1892, flytja foreldrar henn- ar og þær systur að Hjarðarbóli í Eyrarsveit til Jóhannesar Þorsteinssonar, hálfbróður hennar og var Stína þar vinnukona. Foreldrar hennar dóu bæði á Hjarðarbóli. Hún 1894 og hann 1900. Stína var vinnukona á Hjarðarbóli, þar til faðir hennar andaðist, þá fer hún að Naustum og er þar í eitt ár. Árið 1901, fór hún suður í Eyjahrepp og gerðist vinnukona á Þverá. Að Þverá kom Símon Dalaskáld og orti þá til Stínu. Kristín mín er hörundsheit, heldur nett að spanna. Utan er komin úr Eyrarsveit, auðnafögur nanna. Stína var vinnukona á Þverá til 1909 að hún eign-

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.