Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Síða 20
20http://www.ætt.is
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015
aett@aett.is
Kristín Jónsdóttir.
Þegar Þórður Kárason var að safna myndum í
Hjarðarfellsættina hringdi hann í Hólmfríði
Gísladóttur og bað hana um myndir m.a. af
Kristínu. Hólmfríður átti erfitt með að nálgast
myndirnar og sleppti því að láta hann fá mynd-
ir af sínu fólki. Nóttina eftir dreymdi hana Stínu
frænku sína í fyrsta og eina sinnið. Í draumnum
gekk Stína til hennar og rak henni löðrung. Þessi
draumur varð henni minnisstæður og rifjaðist
upp þegar ritstjóri bað hana um mynd af Stínu til
þess að birta með greininni. Hún lét sig hafa það
að grafa upp myndina, vildi ekki eiga á hættu að
fá annan löðrung!
aðist son, Aðalstein, með Jóhanni Hjálmarsen; hann
var uppeldissonur Kristjáns Jörundssonar, bónda á
Þverá. Því hvíslaði almenningur að Aðalsteinn væri
sonur Kristjáns bónda. En Stína beið þess aldrei bæt-
ur að eignast þennan son, fæðingin gekk erfiðlega.
Það var sóttur læknir í Borgarnes og þegar hann loks
kom, var hann ekki fær um að taka á móti barninu.
Hún fæddi barnið með harmkvælum, en hún var biluð
á báðum mjöðmum upp frá því.
Kristín Jónsdóttir kom inn í Eyrarsveit, að
Arnarhóli 1909, með Aðalstein son sinn í reifum.
Guðrún, systir hennar, bjó þá á Arnarhóli. Hjá henni
og Jóni Kristjánssyni manni hennar, er Aðalsteinn
til 1916. En þá sjö ára, fer hann að Þverá og er þar
í hreppnum eftir það. Hann dó í Reykjavík 1989,
ókvæntur og barnlaus.
Eftir að Stína kom aftur til Eyrarsveitar var hún
vinnukona í Framsveit á ýmsum bæjum. En hún var
ekki til allrar vinnu, svo fötluð sem hún var, enda
vann hún innanhússverk og tóvinnu. Hún var nokkur
ár milli 1920 og 1930 á Naustum hjá Kristjáni Hirti
Skúlasyni og Steinunni Jónsdóttur. Eftir 1930 á hún
alltaf lögheimili í Vindási hjá Guðrúnu systur sinni,
en var á ýmsum bæjum í vinnu.
Á árunum 1938 og 1939 var Stína á Grund hjá Gísla
Karel, sem var búinn að missa konuna. En 1940 var
hún í Suður-Bár, en kom að Vindási 1941 og fór það-
an ekki aftur. Þá bjuggu í Vindási systursonur Stínu,
Nói Jónsson og kona hans Svanborg Kjartansdóttir.
Stína gerði eldhúsverk í Vindási, þvoði allan leir
og skúraði gólfin niðri. Það er minnisstætt hvern-
ig hún rúllaði eldhúskollinum með vaskafatinu á að
eldavélinni og jós í það heitu vatni, ýtti svo stólnum
að eldhúsborðinu, setti mjöðmina að borðinu sér til
stuðnings meðan hún lyfti fatinu upp á borðið. Ég hef
stundum hugsað hvað nútíma göngugrind hefði hjálp-
að henni vel.
Hún skúraði gólfin á fjórum fótum og gekk vel.
Eitt verka Stínu var að reyta lundakofu sem tekin var
í Melrakkaey. Hún sat úti í fjárhúsum og reitti, allt
vannst þetta með þögn og þolinmæði.
Stína kvartaði aldrei, var ánægð ef einhver vék
hlýlegu að henni. Stína hafði gaman af að hlusta á
útvarp, en það var bara eitt útvarp uppi á lofti. Hún
kom upp til að hlusta á barnatímann, t.d. Hjalta litla
og svo hlustaði hún á Bör Börsson. Þannig var það 7.
mars 1948, að hún kom upp til að hlusta, hún var búin
að skríða upp stigana og komin á efri ganginn, að hún
hné fram fyrir sig og lést stuttu seinna. Hennar erfiða
dagsverki var lokið.
Vantar þig aðstoð við
ættfræðina?
Oft væri gott að geta fengið smá aðstoð við ætt-
rakningarnar og heimildirnar að ekki sé talað um
tölvuna og tæknina og allt sem í boði er á netinu.
Stjórnin hefur ákveðið að hafa opið á skrifstof-
unni tvo daga í vor þar sem leitast verður við að
veita félögum okkar aðstoð. Þessir dagar verða
miðvikudagarnir 15. apríl og 13. maí. Opið verð-
ur á skrifstofu félasins í Ármúla 19 á 2. hæð frá
klukkan 13:00 til 16:00. Allir velkomnir. Til að-
stoðar verður Kristinn Kristjánsson.
Finnið nýja félaga!
Ættfræðifélagið hvetur félaga sína til þess að safna
nýjum félögum. Meðalaldur félagsmanna hækkar
stöðugt og margir falla frá. Við þufum nýja félaga
og áhugasama, sem eru reiðubúnir að leggja sitt
af mörkum til þess að halda Ættfræðifélaginu
gangandi og virku.