Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 http://www.ætt.is aett@aett.is21 Það styttist í að liðin séu þrjú hundruð ár síðan móð- urætt mín settist að á Hömrum. Það var árið 1726 sem Jón Ólafsson 48 ára gamall flytur að Hömrum ásamt konu sinni Þórunni Freysteinsdóttur og fjór- um börnum þeirra, það elsta var rétt 11 ára. Tvíbýli var á Hömrum næstu árin því Bjarni Axelsson lög- réttumaður bjó þar eftir föður sinn. Þetta var óbreytt 1735. Árið 1752 var einbýli á Hömrum og Guðmundur sonur Jóns Ólafssonar var tekinn við búi og kvænt- ur Hallgerði Magnúsdóttur. Tvíbýli verður aftur þeg- ar Þórður Jónsson, áður stofubryti í Skálholti, sest að á Hömrum ásamt konu sinni Guðrúnu Þorleifsdóttur sem ættuð var frá Hofsstöðum í Hálsasveit í Borgarfirði. Með þeim kom Ingibjargarnafnið í ættina því Jón Guðmundsson, hreppstjóri á Hömrum sonur Guðmundar og Hallgerðar gekk að eiga Ingibjörgu dóttur Þórðar. Árið 1791, þann 26. janúar, kaupir Jón Hamra af Skálholtsstað á 273 ríkisdali. Hverakot, nú Sólheimar, var eyðihjáleiga sem var hluti af Hömrum. Einbýli var á Hömrum á þessum árum, þangað til börn Jóns festa ráð sitt og Margrét fær Hverakot en Snorri langa- langafi minn fær austurbæinn þar sem við systkinin erum fædd. Snorri kvæntist Sigríði Einarsdóttur sem fædd var á Hrygg í Flóa. Þau eignuðust tvö börn; soninn Jón og dótturina Katrínu sem var langamma mín. Hún varð kona Jóns Björnssonar frá Búrfelli. Sagan segir að þegar Jón var við nám í Kaupmannahöfn hafi hann skrifað vini sínum á Íslandi og beðið hann að benda sér á konuefni. Vinurinn teiknaði mynd af Katrínu og sendi hon- um. Jóni fannst stúlkan falleg og gekk að eiga hana árið 1853. Þau bjuggu lengst í Arakoti á Skeiðum en fluttu að Hömrum með sjö börn árið 1872. Þrjár dæt- ur þeirra, Ingibjörg, Ragnhildur og Sigríður urðu hús- mæður á Hömrum. Alls eignuðust þau hjónin 10 börn; Ingibjörgu, Ragnhildi, Björn, Snorra, Ingibjörgu, Jóhönnu, Jóhönnu, Sigríði, Jón og Sigurjón. Upphaflega fékk Sigríður dóttir þeirra hjóna alla Hamrana eftir systur sína Ingibjörgu og mann henn- ar Jörgen en öll börn þeirra hjóna dóu kornung. Þau Ingibjörg og Jörgen tóku móður mína Sigríði í fóstur en hún var systurdóttir Sigríðar, dóttur Ragnhildar. Ég er þriðja Ingibjörgin og sonardóttir mín Ingibjörg er sú fjórða. Þau Sigríður og Kristinn Jónsson maður henn- ar, bjuggu á Hömrum og afkomendur þeirra; Jónína, Ingibjörg og Guðmunda eignuðust 2/3 jarðarinn- ar. Yngsta barn Katrínar og Jóns, Sigurjón, er fædd- ur á Hömrum, en frá fimm ára aldri var hann alinn upp á Minni Bæ hjá Ragnhildi systur sinni. Þegar Ragnhildur hætti búskap tók Sigurjón við búinu og bjó þar til dauðadags. Ingibjörg Jörgína Jóhannesdóttir Tönsberg: Hamrar í Grímsnesi ættarsaga Hamrar í Grímsnesi, austurbærinn. Myndin er tekin 1947 af Martin Tönsberg. Einar Tönsberg, eiginmaður Ingibjargar stendur í dyrunum.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.