Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 22

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2015, Side 22
22http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2015 aett@aett.is Guðjón Ragnar Jónasson formaður: Ársskýrsla Ættfræðifélagsins fyrir árið 2014 Starfsemi Ættfræðifélagsins var með hefðbundnu sniði. Megináhersla var lögð á útgáfu Fréttabréfsins undir rit- stjórn Guðfinnu Ragnarsdóttur, enda er Fréttabréfið eina tenging margra félagsmanna við félagið, ekki síst þeirra sem búa úti á landi. Hinn máttarstólpinn eru félagsfundirnir sem haldnir eru síðasta fimmtudaginn í hverjum mánuði yfir veturinn. Aðsókn að fundunum hefur verið góð, oft mjög góð, einkum þegar fjallað er um einstakar ættir. Á janúarfundinum hélt Guðný Hallgrímsdóttir erindi um Guðbjörgu Ketilsdóttur, óvenjulega almúgakonu sem var einstæð og útivinnandi alla tíð, f. 1767. Aðalfundurinn var svo haldinn í lok febrúar. Á marsfundinum fjallaði Sigrún Magnúsdóttir alþingismaður um Dr. Hallgrím Scheving, kennara og vísindamann á Bessastöðum. Á aprílfundinum skýrði Bjarni Harðarson bóksali frá athugunum sínum á Merði Valgarðssyni og forleiknum að Njáls sögu. Í maí gekk Margrét Gunnarsdóttir sagnfræðingur með félögum Ættfræðifélagsins um slóðir Jóns Sigurðssonar forseta og Ingibjargar konu hans í Reykjavík, en Margrét hafði fyrr um veturinn haldið erindi um Ingibjörgu fyrir félagsmenn. Í september fjallaði Marín Guðrún Hrafnsdóttir bókmenntafræðingur um langömmu sína Guðrúnu frá Lundi og feril hennar sem rithöfundar. Í október kom Guðni Ágústsson og flutti erindi sem hann kallaði Ættir okkar Árnesinga. Á nóvemberfund- inn mættu svo allir af Morthensætt til þess að hlýða á Svein Allan Morthens uppeldisfræðing segja frá Edward Morthens ættföður Morthensættarinnar. Allir félagsfundir hafa verið haldnir í Þjóð skjala- safninu í fundarsalnum á 3. hæð. Ættfræði félagið vill koma á framfæri sínum innilegustu þökkum fyrir þann einstaka velvilja sem það ætíð hefur mætt þar á bæ. Fjöldi stjórnarfunda voru haldnir og liggja fund- argerðirnar frammi. Rætt hefur verið um ýmsa starfsemi s.s. samvinnu við átthagafélög, námskeið í ættfræði og skráningu minninga. Vonandi kemst eitthvað af því til framkvæmda. Einnig hefur verið rætt um breytingar á húsnæði félagsins, en leigan er stór útgjaldaliður. Breyttur opnunartími á Opnu húsi hafði lítið að segja hvað aðsóknina varðar. Fáir mæta á Opið hús. Mun fleiri mæta þó ef eitthvað sérstakt er á döfinni eins og þegar Vilborg Einarsdóttir kynnti og seldi bók föður síns Einars Ingimundarsonar Saga lögreglunnar í Keflavík. Ákveðið hefur þó verið að halda Opnu húsi áfram enn um sinn. Æskilegt væri að geta haft opið á skrifstofunni einn eða tvo daga í viku en þess er þó því miður ekki kostur. Heimasíðan er í loftinu undir stjórn Rakelar Báru Þorvaldsdóttur og Ættfræðifélagið er á Facebook einnig undir hennar stjórn. Töluverður áhugi er á þessum síðum. Sala á manntölum er alltaf fremur dræm og lag- erinn er stór. Alltaf selst þó eitthvað á bókamarkaðn- um en um þá sölu hefur Olgeir Möller að mestu séð. Kristinn Kristjánsson hefur haft veg og vanda af dag- legum rekstri félagsins og sinnt honum af einstakri vandvirkni og samviskusemi. Undirritaður hóf átak í söfnun félaga þegar hann tók við sem formaður og gekk það nokkuð vel, 40 nýir Stjórn Ættfræðifélagsins: Aftari röð f.v. Kristinn Kristjánsson, Ragnar Ólafsson, Anna Guðrún Hafsteinsdóttir, Jón Sævar Baldvinsson og Arnbjörn Jóhannesson. Femri röð f.v. Guðfinna Ragnarsdóttir, ritstjóri Fréttabréfsins, og Guðjón Ragnar Jónasson. Á myndina vantar Rúnu Þráinsdóttur.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.