Fréttablaðið - 03.05.2019, Blaðsíða 20
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Ástkæri eiginmaðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Á. Guðmundsson
prentari,
lést eftir stutt veikindi þann 17.04. í Hirtshals, Danmörku.
Jarðarförin hefur farið fram.
Guðrún Óskarsdóttir
Jón Óskar Reynisson
Ingimar Daníel Aðalsteinsson Harpa Ársælsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Grímur Sigurgrímsson
húsasmiður og matsmaður fasteigna
frá Holti í Stokkseyrarhreppi,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
sunnudaginn 28. apríl. Útför hans fer fram
frá Seljakirkju mánudaginn 6. maí kl. 15.00.
Frímann Grímsson Margrét Á. Hrafnsdóttir
Jón Grímsson Sigríður P. Guðmundsdóttir
Hrafnhildur Grímsdóttir Þorgeir Sæberg
Ingibjörg Grímsdóttir Gísli Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Reynir Carl Þorleifsson
bakarameistari,
Helgubraut 7, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Reykjavík
þann 25. apríl. Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju 7. maí kl. 15.00.
Jenný Eyland
Þorleifur Karl Reynisson Helena Rós Hafsteinsdóttir
Anna María Reynisdóttir Kristinn Þór Ingvason
Henrý Þór Reynisson Elísa Örk Einarsdóttir
Magnús Þór Reynisson Erna Dís Eriksdóttir
Elsku maðurinn minn og faðir okkar,
Kristberg Óskarsson
Hjallavegi 23, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 30. apríl.
Útför hans fer fram frá Áskirkju
miðvikudaginn 8. maí kl. 13.00.
Ingiríður B. Þórhallsdóttir
Harpa Stefánsdóttir
Bergþóra Kristbergsdóttir
Ástkær dóttir okkar, systir,
mágkona og frænka,
Kristín Óskarsdóttir
Þverholti 19 / Tröllateig 45,
Mosfellsbæ,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
miðvikudaginn 24. apríl eftir stutt veikindi.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Þroskahjálp.
Útför fer fram frá Lágafellskirkju 6. maí
kl. 13.00 í Mosfellsbæ.
Fyrir hönd aðstandenda,
Óskar Gíslason Vilborg Heiða Waage
Guðmundur Arnar Óskarsson Sigurborg Matthíasdóttir
Anna Aurora Waage Óskarsdóttir Hreinn Heiðar Oddsson
og frændsystkini.
Jú, þetta er risastórt afmæli, maður er að verða hundgamall,“ segir Gunnar Guðmundsson, fyrrver-andi atvinnubílstjóri, hlæjandi þegar falast er eftir viðtali í tilefni
sjötugsafmælisins sem er í dag.
Hann kveðst ætla að vera heima.
„Það verður opið hús eftir klukkan sex,
standandi veitingar og vinir og vanda-
menn velkomnir,“ upplýsir hann.
Gunnar er fyrrverandi formaður
Rangæingafélagsins, fæddur og uppal-
inn í Eystri-Skógum undir Eyjafjöllum.
„Bærinn er undir hlíðinni, skammt
austan við Skógasafn. Þar hjálpaði ég
til að tína grjót úr sandinum til að við
gætum ræktað þar tún. Svo var gríðarleg
sandrækt framan við þjóðveg sem allur
hreppurinn var með. Við heyjuðum þar
líka.“
Á Skógasandi er líka flugvöllur. „Þrist-
arnir lentu þar, oft var það sama vélin og
fór til Vestmannaeyja, það er svo örstutt
út í Eyjarnar frá Skógum.“
Gunnar hafði ekki bara Eyjar fyrir
augunum, hann fór þangað líka tvisvar
á vertíðir. „Ég var í Vinnslustöðinni og
skrapp líka í róðra þegar með þurfti.
Ég kunni mjög vel við mig á sjó og fór á
togara eftir að ég f lutti til Reykjavíkur.
Var á Marsinum, við sigldum mikið
til Englands og Þýskalands og það var
mikið ævintýri, fórum bara beint af
miðunum sem ýmist voru út af Suður-
landi á Halanum eða við Grænland.
Einu sinni var prófað að kasta í Rósa-
garðinum, miðja vegu milli Íslands og
Færeyja, en lítill árangur var af því. Síðar
var ég á bát frá Sandgerði í eitt og hálft
ár. Eftir það keypti ég mér sendibíl en
seldi hann tveimur árum seinna, þegar
við keyptum fyrstu íbúðina. Þá fór ég að
vinna í Mjólkursamsölunni en færði mig
yfir í ísgerðina, Emmessís. Ég var í mörg
ár að dreifa ísnum út á land og er búinn
að fara á alla verslunarstaði á landinu
margoft í sambandi við það.“
Nú víkjum við talinu að fjölskyld-
unni. Frúnni fyrst. „Hún heitir Sigur-
jóna Björgvinsdóttir og er Skagfirð-
ingur. Við kynntumst hér í Reykjavík,
nánar tiltekið á balli í Klúbbnum, og
erum búin að vera saman í tæp fimm-
tíu ár. Við eigum þrjár dætur, tvær
þeirra búa hér á höfuðborgarsvæðinu
og ein í Noregi en það er á stefnuskránni
hjá henni að f lytja heim aftur. Afa- og
ömmubörnin eru sjö blóðtengd, svo eru
nokkur á ská líka svo það er oft fjör hér
á heimilinu.“
Gunnar er félagslyndur, kveðst hafa
mætt á samkomur og spilakvöld Rang-
æingafélagsins þegar hann gat en segir
ekkert orðið eftir af starfseminni nú
nema að sýsla með sumarbústaðina tvo
undir Eyjafjöllunum. „Vonandi hressist
félagið aftur, það þarf ekki mikið til,“
segir hann bjartsýnn. Kveðst líka hafa
mjög gaman af að spila bridds. „Við
hjónin spilum einu sinni til tvisvar í
viku og höfum gert í nokkur ár. Fórum
í Dalina um síðustu helgi á ágætis mót
og í fyrra fórum við til Madeira á stórt
briddsmót.“
Nú þykir Gunnari komið nóg af upp-
lýsingum um hann. „Þú ert að verða
búin að fá ævisöguna,“ segir hann glett-
inn og kveðst þurfa að fara að taka til í
garðinum. gun@frettabladid.is
Er að verða hundgamall
Gunnar Guðmundsson er sjötugur í dag. Hann vann við landbúnað og sjávarútveg og
ók margoft í öll pláss landsins á Emmessísbílnum. Nú snýst lífið um afabörn og bridds.
Gunnar ætlar að hafa opið hús í dag fyrir vini og vandamenn og kæmi ekki á óvart
þó að dóttirin Lilja Katrín mætti með eitthvert nýbakað góðgæti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ísland tók þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
í fyrsta skipti þennan mánaðardag árið 1986, með laginu
„Gleðibankinn“. ICY hópurinn flutti það af list í Bergen í
Noregi.
Gleðibankinn er eftir Magnús Eiríksson og var íslenska
þjóðin afar ánægð með það lag og einnig flytjendurna,
stórstjörnurnar Pálma Gunnarsson, Helgu Möller og Eirík
Hauksson. Stemningin á Íslandi var gríðarleg þegar keppnin
nálgaðist og sala á kampavíni var
með mesta móti. En atkvæða-
greiðslan varð hálfgerð sorgar-
saga. Þjóðinni til undrunar og
þvert á allar væntingar hennar
sigraði Gleðibankinn ekki í
keppninni heldur hafnaði í
16. sæti. Þótti Íslendingum
umheimurinn ekki kunna að
meta hann eins og vert var.
Það var ung stúlka frá
Belgíu, Sandra Kim sem
sigraði keppnina með laginu
„J'aime la vie“.
Þ E T TA G E R Ð I S T: 3 . M A Í 19 8 6
Gleðibankinn hljómaði um alla Evrópu
Icy tríóið, Ei-
ríkur Hauks,
Helga
Möller
og Pálmi
Gunnars.
Plötuumslagið var svalt.
3 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
0
3
-0
5
-2
0
1
9
0
8
:3
8
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
E
B
-E
F
D
4
2
2
E
B
-E
E
9
8
2
2
E
B
-E
D
5
C
2
2
E
B
-E
C
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
3
2
s
_
2
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K