Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 12

Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 12
Ge is lasve igur Eggbú K ja rn i Umf r ymi Frumuh imna G lærbe l t i EGGFRUMAN Spurt á Háskólatorgi Myndir þú íhuga að taka getnaðarvarnapillu fyrir karla þegar hún kemur á markað? Fréttablaðið fór á stúfana til að kanna viðhorf ungra karlmanna til getnaðarvarnapillu fyrir þá og hvort ungir karlmenn myndu skoða það að nýta sér slíka pillu. Á Háskólatorgi í Há- skóla Íslands voru það nokkrir sem voru til í að taka þátt en þó vakti það athygli hversu margir voru feimnir við að svara. Getnaðarvarnir ætl-aðar körlum eru fáar og tiltölulega lítið notaðar í sam-anburði við varnir ætlaðar eingöngu konum. Það sem körlum stendur til boða þegar getnaðarvarnir eru annars vegar eru smokkar, ófrjó- semisaðgerðir, eða það að neita sér um kynlíf. Í yfirlitsgrein sinni í læknariti þvagfæralækninga í Norður-Ameríku um getnaðar- varnir karla benda læknarnir Paul Kogan og Moshe Wald á að notkun smokka og framkvæmd ófrjósem- isaðgerða hjá körlum er aðeins um 8,9 prósent af heildarnotkun getn- aðarvarna í heiminum. Engum dylst að brýn þörf er á að róa á ný mið í getnaðarvarna- málum, bæði til þess að stuðla að áframhaldandi nýsköpun á þessu mikilvæga sviði heilbrigðisvísind- anna en einnig til þess að viðhalda þeirri nauðsynlegu stöðu að besta möguleg heilbrigðisþjónusta sé í boði hverju sinni, og að sú þjón- usta henti sem f lestum. Að auki eru á bilinu 80 til 90 milljónir fæð- inga sem eiga sér stað árlega sem ekki voru afrakstur meðvitaðrar ákvörðunar pars eða einstaklings um barneignir. Af þessum sökum hafa vísindamenn víða um heim leitað leiða á undanförnum ára- tugum til að gera getnaðarvarnir öruggari, aðgengilegri og þægi- legri í notkun. Þetta mikla verkefni tekur meðal annars til þróunar horm- ónagetnaðarvarna fyrir karlmenn. Slíkar hugmyndir vöknuðu fyrst á fjórða áratug síðustu aldar og hafa síðan árið 1960, eða um það leyti sem getnaðarvarnapillan kom á markað, verið rannsakaðar af miklum móð. Mikill árangur hefur náðst, en enn er langt í land með að koma slíkri getnaðarvörn á markað. Pilla fyrir karla Tilgátan sem býr að baki þessum rannsóknum byggir á að ná fram sambærilegri virkni og með notk un getn- aðarvarnapillunnar hjá konum sem inniheldur kvenhormónin estró- gen og prógesterón. Í tilfelli karla er horft til þess líffræðilega kerfis sem hefur áhrif á og stýrir sæðisfram- leiðslu, og hvernig lyf eða pilla sem inni- heldur testósterón, eða blöndu af karlhormóninu andró- geni og prógesteróni, getur haft áhrif á það. Þetta kerfi tekur til þriggja líffæra; undirstúku milli- heilans sem tengir saman ánægju- eða óánægjuskilaboð frá taugum og skynfærum; heiladingulsins sem gengur niður úr undirstúk- var asískum sjálf boða- liðum, náðist sami eða sambærilegur árangur hjá 98 prósentum. Vafasamar auka- verkanir Rannsóknir WHO og f lei r i s a mbær i leg a r rannsóknar hafa sýnt fram á fýsileika þess að beita hormónameðferð til að hamla myndun sáðfruma. Í þessum rannsóknum er þó að finna tilfelli þar sem ekki tekst að hamla sæðismyndun svo að öruggt sé að getnaður eigi sér ekki stað. Í rannsóknum WHO var jafn- framt tiltölulega stór hluti þátttak- enda sem sagði vikulegar sprautur vera kvöð. Þá voru nokkrir sem upplifðu minniháttar aukaverk- anir, þar á meðal hafði meðferðin þau áhrif hjá nokkrum að minna var af HDL-kólesteróli í blóði sem getur aukið líkur á æðakölkun. Aðrar þekktar aukaverkanir, sem oft á tíðum fylgja getnaðarvarna- pillunni, eins og breytingar á kyn- hvöt, höfuðverkur og skapsveiflur, hafa ekki verið rannsakaðar nægi- lega svo hægt sé að draga ályktanir um algengi þeirra. Á allra síðustu mánuðum hafa stór skref verið tekin í átt að til- raunum með getnaðarvarnapillu fyrir karla. Vísindamenn við Líf- læknisfræðistofnunina í Los Ang- eles í Bandaríkjunum (LA BioMed) og Háskólann í Kaliforníu eru um þessar mundir með tvö lyf á til- raunastigi 2 þar sem virkni og aukaverkanir eru kannaðar. Ly f in innihalda hormónin andrógen og prógesterón. Niður- stöður fyrri tilrauna gefa til kynna að lyfið dragi úr sæðismyndun án alvarlegra aukaverkana, þó svo að sumir karlar hafi upplifað þreytu og fengið höfuðverk. Kynhvöt örfárra minnkaði. „Niðurstöður okkar gefa til kynna að þetta lyf, sem byggir á tveimur hormónaferlum, hamli framleiðslu sæðis án þess að hafa almennt áhrif á kynhvöt,“ segir Christina Wang, læknir og rann- sakandi hjá LA BioMEd. Hún segir að nú taki við stærri og lengri rannsóknir á virkni og öryggi lyfjanna. „Öruggar hormónagetnaðar- varnir fyrir karla, sem hægt er að snúa við, verða að líkindum fáan- legar innan 10 ára,“ segir Wang. Er körlum treystandi? En er eftirspurn eftir slíkri getn- aðarvörn? Fáar ítarlegar rann- sóknir hafa verið gerðar á viðhorfi karla til þess að nota getnaðar- varnapillu. Þær rannsóknir sem hafa verið gerðar á undanförnum árum gefa þó til kynna að í mörg- um löndum sé áhugi fyrir því að karlar fái frekari tækifæri til að axla ábyrgð í þessum efnum. Könnun á þessu viðhorfi meðal karla í Edinborg, Sjanghaí, Hong Kong og Höfðaborg leiddi í ljós að 44 til 83 prósent karla höfðu áhuga á að nota hormónagetnaðarvörn. Árið 2009 voru tvö þúsund konur, í sömu borgum, spurðar út í það hvort að þær treystu maka sínum til að nota slíka getnaðarvörn. Mikill meirihluti þessara kvenna, eða 65 prósent, sagði að konur þyrftu almennt að axla of mikla ábyrgð á notkun getnaðarvarna. Á bilinu 70 til 90 prósent þeirra töldu að það væri mikilvægt að körlum standi hormónagetnaðarvörn til boða. Löng og erfið fæðing karlapillunnar Vísindamenn telja að getnaðarvarna- pilla fyrir karla komi á markað innan tíu ára. Slíkar hugmyndir hafa verið kannaðar síðan hormónagetn- aðarvarnir fyrir konur komu á markað um miðja síðustu öld. unni og stýrir framleiðslu ýmissa hormóna, þar á meðal hormóna sem nauðsynleg eru æxlunar- færum mannsins; og kyn- kirtilsins sem framleiðir sáðfrumur og staðsettur er í eistum karlmanna. Hormónagetnaðar- varnir fyrir karla felast í því að hamla sæðismyndun svo að hún verði minni en ein milljón sáð- fruma í hverjum m i l l i l ít r a s em myndast við sáð- fall. Undir venju- legum kringum- stæðum, og hjá flestum karlmönn- um, eru á bilinu 15 til 150 milljón sáð- frumur í sama magni af sæði. Sæði sem inni- heldur engar sáðfrum- ur, eða geldsæði, er hið endanlega markmið þeirra sem standa í þróun getn- aðarvarnapillu fyrir karla. Það markmið hefur ekki náðst hingað til. Í öllum þeim rannsóknum þar sem þessari nálgun er beitt hefur fjöldi sáðfruma í sæði minnkað töluvert, og oft undir 15 milljón frumna í millilítra. Ein milljón sáðfrumna í millilítra minnkar líkurnar á getnaði þannig að þær verða undir einu prósenti á ári. Þetta þykir viðunandi markmið í þeim rannsóknum sem nú eru stundaðar á hormónagetnaðar- vörnum fyrir karla. Þær virka, oftast Tilraunir síðustu ára með getn- aðarvarnapillu fyrir karla, sem byggja á og framkvæmdar hafa verið út frá fyrrgreindum aðferð- um og markmiðum, hafa ótví- rætt sýnt fram á að mögulegt er að hamla verulega sæðismyndun karla með þessum hætti. Hins vegar eru ýmis ljón á vegi framfara á þessu sviði. Ásættanleg fækkun sáðfruma næst ekki hjá öllum körlum og svo virðist sem uppruni karla skipti máli. Þannig hafa til- raunir með hormónagetnaðar- varnir hjá körlum sem eru af asísku bergi brotnir borið árangur í 90 til 100 pró- sent tilfella en aðeins í 60 til 80 prósent tilfella hjá körlum af evrópsk- um uppruna. Ekki er vitað hvað veldur þessu. Að auki þarf að líða dágóður tími frá því að meðferð með hormónagetnaðarvörn hefst og þangað til að hún hefur náð tilætluðum árangri, eða þrír til fjórir mánuðir. Það tekur síðan þrjá til sex mánuði fyrir sæðismyndun að ná fyrri stigum eftir að meðferð er hætt. Sem áður segir hafa fjölmargar tilraunir ver ið gerða r með hor mónaget nað a r- varnir fyrir karlmenn. Af þeim hafa tvær verið gerðar á vegum Alþjóða heilbrigðismálastofnun- arinnar (WHO). Í báðum rannsóknum, sem saman tóku til tæplega eitt þúsund karla, voru þátttakendur sprautaðir vikulega með 200 milligrömmum af lyfinu testósterón enanthate (betur þekkt sem Delatestryl). Í fyrri rannsókninni minnkaði sæðismyndun hjá 60 prósentum þátttakenda verulega, eða þann- ig að um geldsæði var að ræða. Í seinni rannsókninni, sem skipuð Kjartan Þórsson 30 ára n Það fer algjörlega eftir því hvernig þessi pilla er og hvað hún gerir. Hvernig hún hefur áhrif á mig og hvort það fylgi einhverjir eftirkvillar í fram- tíðinni. Hvernig sé búið að prófa hana og hvort það séu einhver markaðsöfl að koma þessu áfram eða hvað. Mér finnst alveg sanngjarnt að við höfum jöfn tækifæri til að taka getnaðarvarnapillur eins og konur. Moaz Malimam 25 ára n Kannski þegar ég er búinn að kynna mér þetta vel. Jón Þór Stefánsson 22 ára n Það er ákvörðun sem yrði tekin þegar upplýsingar eru komnar, hverjar hætturnar og aukaverkanir verða og svoleiðis. Þórður Ágústsson 21 árs n Nei. Ég er ekki fyrir pillur yfirhöfuð. Stefán G. Sigurðsson 20 ára n Ég held ég myndi alveg prófa það þegar kæmi að því. Aron Bjarki Jósepsson 29 ára n Já, ég myndi alveg skoða það og sjá hvernig þetta virkar. Það er ekki mikið mál. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@frettabladid.is Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Á allra síðustu mán- uðum hafa stór skref verið tekin í átt að tilraunum með getnaðarvarnapillu fyrir karla. TILVERAN 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F 5 -C 3 7 C 2 2 F 5 -C 2 4 0 2 2 F 5 -C 1 0 4 2 2 F 5 -B F C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.