Fréttablaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 18
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Algjörlega nýr reynslu- heimur myndi opnast fyrir fína fólkinu. Er ekki kominn tími til að treysta fólki aftur fyrir eigin nöfnum? Göngugötur eru nauðsynlegur og um leið skemmtilegur þáttur í því að skapa aðlaðandi miðbæ. Á sólríkum dögum í Reykjavík blasir þetta við öllum. Slíkir dagar eru reyndar of fáir en þegar þeir koma ganga íbúar glaðir í bragði út úr húsum sínum og streyma í bæinn um leið og þeir fagna því hversu sjarmerandi, notalegur og skemmtilegur hann er. Þegar sólin bregður birtu yfir bæinn gerir hún hann sjálfkrafa að góðum stað en fleira kemur til, ekki síst göngugötur. Slíkar götur eru nauðsynlegar í öllum borgum og það er engin tilviljun að erlendir ferðamenn leita þær uppi og borgarbúar spóka sig þar. Göngugötur gera verslunarumhverfi meira aðlaðandi en það alla jafna er og eiga stóran þátt í að skapa líf­ legan miðbæ með iðandi mannlífi, fjarri bílaumferð. Unnendur einkabílsins andvarpa margir mæðulega í hvert sinn sem tilkynnt er um opnun göngugatna í Reykjavík enda takmarka þær óneitanlega mögu­ leika þeirra á því að geta lagt bíl sínum fyrir framan áfangastað sinn. Bílaeigendur eiga ekki að hafa slíka þráhyggjukennda ást á farartæki sínu að þeir flokki það sem svívirðu að þurfa að leggja bílnum og ganga einhvern spöl. Hreyfing er holl, auk þess má margt sjá á göngu og þar mætist fólk og oft verða fagnaðar­ fundir. Svo er ekki eins og ómögulegt sé að fá bílastæði í miðborginni. Kvartanir bílóðra landsmanna um að þeir komist ekki leiðar sinnar í miðbænum vegna bílastæðaskorts eru einfaldlega ekki byggðar á traustum grunni. Í miðborginni eru 1.144 stæði í bílahúsum bílastæða­ sjóðs, 250 stæði í bílakjallara Hafnartorgs og í Hörpu eru 545 stæði. Bílaeigendur verða að sætta sig við þann raunveruleika, sem er alls ekki sársaukafullur, að það er pláss fyrir bílaumferð á ákveðnum svæðum en annars staðar á hún ekki erindi. Þá verða bílaeigendur að skilja bíla sína eftir á bílastæðum og af þeim er nóg. Svo geta þeir náttúrlega líka tekið strætó. Allir hafa gott af því að fara einstaka sinnum í strætisvagn. Strætó er miklu betri kostur en margir ætla. Ekki er ýkja langt síðan alltof langt var á milli ferða en það hefur stórlagast. Nú er yfirleitt hægt að komast leiðar sinnar á þægilegan hátt á skömmum tíma. Viðhorfið til strætisvagnaferða hér á landi ein­ kennist þó af furðulegu snobbi, það er eins og ekki þyki fínt að temja sér þann ferðamáta. Hefur einhver séð forstjóra í strætó? Ráðamenn þjóðarinnar, sem bera ábyrgð í mörgum málum, ættu að gera sitt til að breyta þessu viðhorfi. Þeir sem eru með einkabílstjóra ættu að gefa honum frí í eins og eina viku og þau fyrirmenni sem sýna þá hógværð að keyra sjálf ættu að leggja bíl sínum og taka strætó eins og alþýðan. Algjörlega nýr reynslu­ heimur myndi opnast fyrir fína fólkinu. Í strætó væri skyndilega stétt með stétt. Sannarlega skemmtileg tilbreyting. Síðan má svo vippa sér út úr vagninum, spássera um göngugöturnar og kynnast mannlífinu og fólkinu í borginni. Ráðamenn hafa tekið sér margt vitlausara fyrir hendur. Í bænum Ef þú ert karlmaður máttu heita Marzelíus eða Marsellíus en ekki Marzellíus. Þar er vísað til mannanafnalaga sem segja að nafn skuli geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið megi ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi. Þannig að augljóslega ekki Marzellíus, bara Marzelíus eða Marsellíus. Eða hvað? Samkvæmt úrskurði mannanafnanefndar sem birtist í liðinni viku var nafninu Marzellíus hafnað þar sem rit­ háttur nafnsins hefur ekki unnið sér hefð í ís lensku máli. Nú er orðið hefð örugglega teygjanlegt hugtak í huga ein­ hverra, en engu að síður er það umhugsunarefni að Marz­ ellíus hefur um langt skeið verið nokkuð algengt nafn á Vestfjörðum og Vestfirðir tilheyrðu Íslandi síðast þegar ég vissi. Það muna örugglega fleiri en ég eftir Skipasmíða­ stöð Marzellíusar sem nefnd var í höfuðið á stofnand­ anum honum Marzellíusi. Og á Ísafirði býr a.m.k. einn Marzellíus sem fær meira að segja að hafa nafnið sitt svo ritað í Þjóðskrá. En hann var reyndar skírður áður en mannanafnanefnd komst að þeirri niðurstöðu á grunni mannanafnalaga að það væri ekki hefð fyrir nafninu. Sem sagt, of gamall til að vera hefð! Botnar einhver í þessari vitleysu? Vill einhver þessa vitleysu? Yfirlýst markmið núgildandi mannanafnalaga er m.a. að vinna að varðveislu íslenska mannanafnaforðans og íslenskra nafnasiða. Forsjárhyggja af því tagi sem lögin leiða af sér á ekki heima í nútímasamfélagi. Ef Íslendingar vilja varðveita íslensk nöfn og nafnahefð, og ekkert bendir til annars en að svo sé, þá gera þeir það sjálfir án valdboðs stjórnvalda. Alþingi er nú með til meðferðar frumvarp Viðreisnar um breytingar á mannanafnalögum þar sem markmiðið er að tryggja rétt einstaklinga til að bera þau nöfn sem þeir kjósa. Í um þúsund ár hafði íslensk þjóð fullt og óskorað frelsi til að nefna börn sín þeim nöfnum sem hún vildi. Þetta frelsi skilaði þeirri nafnahefð sem Alþingi hefur síðustu áratugi talið þörf á að festa í sessi með verulega íþyngjandi hætti fyrir almenning. Er ekki kominn tími til að treysta fólki aftur fyrir eigin nöfnum? Hringanafnavitleysa Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Viðreisnar Þau Aura svo á mig Borga Rukka Skipta Læk-her Pírata Píratar í borgarstjórn sendu fjölmiðlum fréttatilkynningu í gær þar sem vakin var athygli á nýsamþykktri tillögu um íbúa­ ráð í borginni. Tillaga sem virð­ ist til þess fallin að auka lýðræði í borginni sem hlýtur að teljast jákvætt. Það sem var jafnvel enn áhugaverðara var önnur síða tilkynningarinnar sem hefur væntanlega óvart slæðst með. Þar var farið yfir strategíuna við kynningu málsins og samskipti við fjölmiðla. Borgarfulltrúar áttu svo að deila á samfélags­ miðlum og virkja átti læk­her. Þegar jafnvel Píratar eru farnir að hrasa í glímunni við tæknina, hvaða von eigum við hin? Konungur á gestalista Utanríkismálanefnd hefur sett saman áhugaverðan gestalista fyrir fund dagsins um þriðja orkupakkann. Þar má meðal annars finna forsetateymi ASÍ, kanónur frá Viðskiptaráði og Frosta Sigurjónsson. Lengsta tímann fær hins vegar sviss­ neski lögspekingurinn Carl Baudenbacher. Hann var lengi forseti EFTA­dómstólsins og var dómarinn sem dæmdi í IceSave­málinu á sínum tíma. Norskir fjölmiðlar hafa kallað hann „Konung EES“ og „einn valdamesta mann Noregs“. Það verður án efa fróðlegt að sjá hvað hann hefur að segja um orkupakkann. sighvatur@frettabladid.is arib@frettabladid.is 9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F 5 -B E 8 C 2 2 F 5 -B D 5 0 2 2 F 5 -B C 1 4 2 2 F 5 -B A D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.