Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 14
Til eru margar getn-aðar var napillur á markaði og þær inni-halda mismunandi m a g n h o r m ó n a , en svo eru til aðrar
tegundir getnaðarvarnapilla sem
innihalda eingöngu gestagen.
Þá eru til hormónastafir sem eru
settir undir húð, sprauta sem er
notuð í vöðva og svo hringurinn
sem er notaður staðbundið í leg-
göngum.
Margar konur sem hafa eignast
börn nota hormónalykkju. Þessar
tegundir getnaðarvarnalyfja virka
ekki allar alveg eins en í grunninn
snúast þær um að hafa áhrif á tíða-
hring kvenna, egglos og uppbygg-
ingu slímhúðar í legi og leghálsopi.
Hindrun eggloss á miðjum tíða-
hring kvenna gerir það að verkum
að egg getur ekki frjóvgast og þung-
un því nær útilokuð og er vörnin
talin allt að 99%.
„Það hefði mikla þýðingu að
auka fjölbreytileika og möguleika
til getnaðarvarna fyrir pör og
sjálfsagt að karlmenn tækju ríkan
þátt í þeim vörnum sem hingað til
hafa verið mestmegnis í höndum
kvenna,“ segir Teitur Guðmunds-
son, læknir og eigandi Heilsuver-
unnar, um það ef vel tekst til með
getnaðarvarnapillu fyrir karlmenn.
„Enn erum við of stutt komin til
að geta nýtt okkur slík lyf og því
enn að vissu leyti fræðileg umræða.
Hins vegar eru karlmenn í auknum
mæli farnir að fara í svokallaða
„herraklippingu“ sem er einföld og
fljótleg ófrjósemisaðgerð. Það má
til að mynda segja að hún sé mun
betri en fyrir konu að fara í slíka
aðgerð þar sem ekki er um að ræða
inngrip í kviðarholi heldur stað-
bundið í pung karlmannsins og
aukaverkanir og f lækjustig mun
minna en hjá konum.“
Áhrifin margskonar
Ef horft er til aukaverkana af pill-
unni þá f lokkast þær sem vægar
annars vegar líkt og ógleði, þyngd-
arbreytingar, höfuðverkir, skap-
breytingar og minnkun á kynhvöt
auk eymsla í brjóstum. Oftar en
ekki ganga þær yfir eða það þarf að
breyta um getnaðarvörn. Sumum
konum þykja aukaverkanir það
slæmar að þær kjósa að nota ekki
pilluna og verjast þungun með
öðrum hætti.
„Inngripið í hormónaker f i
kvenna er umtalsvert við notkun
þessara lyfja en rannsóknir hafa
ekki sýnt fram á að við venjulega
notkun og þegar þær þolast vel að
konur þurfi að hafa miklar áhyggj-
ur, á því eru þó undantekningar,“
segir Teitur.
„Áhyggjur lækna af þróun
ýmissa sjúkdóma líkt og krabba-
meina hafa verið misvísandi, sum
mein virðast aukast á meðan tíðni
annarra dregst saman. Blóðtappa-
hneigð hefur verið rædd og virðist
aukin við notkun ákveðinna teg-
unda en einnig ef kona reykir og
er orðin 35 ára eða eldri. Einhver
aukning er á áhættu á hjarta- og
æðasjúkdómum sérstaklega ef
um er að ræða fleiri undirliggjandi
áhættuþætti slíkra sjúkdóma eins
og háan blóðþrýsting, ættarsögu
og reykingar einnig.“
Eftir að kona hættir á hvers kyns
getnaðarvörn líða almennt nokkr-
ir mánuðir þar til tíðahringur
kemst aftur í samt horf og verður
reglulegur.
„Kona getur orðið þunguð þegar
hún er aftur farin að hafa egglos og
eðlilega uppbyggingu slímhúðar.
Almennt er hægt að taka getnaðar-
varnir býsna lengi án þess að þær
hafi teljandi áhrif á frjósemi, en
eftir því sem konan eldist og fleiri
þættir koma til dregur vissulega
úr getu þeirra til barneigna,“ segir
Teitur.
Ófrjósemisaðgerð öruggust
Aðspurður hvaða getnaðarvörn
sé talin vænlegust á markaðnum
núna segir Teitur að það sé sú sem
hafi næga virkni til að koma í veg
fyrir getnað og þolist vel, auka-
verkanir séu litlar sem engar.
Margir möguleikar falla þar undir.
„Það má segja að skírlífi sé
öruggasta leiðin almennt, en taki
kona getnaðarvörn og hún sé
tekin með réttum hætti og engir
aðrir utanaðkomandi þættir
spilli fyrir virkni hennar eru þær
flestar meira en 95% öruggar eða
allt að 99%. Ef pillan gleymist til
inntöku þá er ákveðin hætta á
þungun, sömuleiðis ef getnaðar-
varnahringurinn er ekki rétt not-
aður sem og aðrar varnir líkt og
smokkar eða viðlíka geta rofnað,“
segir Teitur.
„Langverkandi getnaðarvarnir
eru iðulega einna öruggastar þar
sem minni hætta er á að konan
gleymi inntöku. Þá má ekki
gleyma því að fyrir utan lyf og stað-
bundna meðferð eru til ófrjósem-
isaðgerðir bæði karla og kvenna
sem eiga að hindra nær fullkom-
lega getnað.Margir karlmenn
eru hræddir við slíkar aðgerðir
og horfa á þær sem einhvers
konar geldingu og að þeir muni
ekki njóta samlífis með sama
hætti og áður. Staðreyndin er sú
að aðgerðin er mjög einföld og
hefur í engu áhrif á framleiðslu
kynhormóna eða atriða sem hafa
áhrif á kynhvöt eða löngun. Geta
karlsins til að stunda kynlíf er með
öllu óskert og ættu þeir ekki að
hafa áhyggjur af því að slíkt muni
verða minna, heldur þvert á móti
þar sem konan þarf ekki lengur
getnaðarvörn sem getur einmitt
haft hamlandi áhrif á löngun
hennar. Þannig má segja að slík
aðgerð geti verið afar hentug fyrir
báða aðila og þeim til ánægju.“
Sjálfsagt
að karlmenn
tækju ríkan
þátt
Það getur haft margvísleg áhrif á líkamann
að nota getnaðarvarnir. Flestar innihalda
þær tvö hormón, estrógen og gestagen.
Áhrif og einkenni sem konur geta
fundið fyrir við notkun hormónaríkra
getnaðarvarna eru margar.
Algengast er
að karlmenn
eftir miðjan
aldur finni
fyrir ris
truflun þar
sem vandinn
getur verið
líkamlegur
jafnt sem
andlegur,
yngri menn
geta lýst
svipuðum
einkennum
en orsakir
þeirra eru
sjaldnar
líkamlegar.
Teitur Guðmundsson
læknir
Kynhvöt karla
og kvenna
Ein af grunnhvötum beggja kynja og einn af drifkröftunum í samskiptum þeirra er kynhvötin og munu væntan-lega flestir vera því sammála að hún sé nauðsynleg, á stundum óáreiðanleg og ekki til staðar, en hjá sumum jafnvel
yfirdrifin.
Hægt er að skilgreina kynhvöt sem tilfinningu
eða líðan sem byggir á f lóknu samspili andlegra,
líkamlegra og samfélagslegra þátta sem leiða
af sér líffræðilegar, hugrænar og hegðunarlegar
breytingar hjá einstaklingum þar sem markmiðið
er einhvers konar fullnæging.
Ekki skal lagt sérstaklega mat á það hvað er eðli-
legt í sjálfu sér, enda engin mælistika til um það.
Einstaklingar eru jafn mismunandi og þeir eru
margir og leika aldur, aðstæður, sjúkdómar, lyf og
margt f leira hér auðvitað stórt hlutverk.
Það er hins vegar áhugavert að velta fyrir sér
hvaða þættir hafa áhrif á og draga úr kynhvöt
og þar af leiðandi samlífi einstaklinga. Þetta eru
gjarnan mjög persónuleg mál og ekki á borð borin
alla jafna í samtölum milli vina og kunningja, jafn-
vel ekki milli aðila í sambandi eða hjá hjónum.
Við læknar og heilbrigðisstarfsfólk sem eigum
samskipti við einstaklinginn í trúnaði og á bak við
luktar dyr fáum oft að heyra um slík vandamál,
ekki síst þegar erfiðleikar steðja að í samböndum
og lífi fólks en einnig t.d. sem aukaverkun við
lyfi sem hefur verið ávísað. Það getur reynst fólki
erfitt að tjá sig og stundum þarf að brjóta ísinn
og opna umræðuna til þess að fá fram orsakir og
afleiðingar.
Þá er kynhvöt á stundum ruglað saman við kyn-
getu sem er allt annars eðlis þó þar geti verið sam-
hengi á milli. Mjög mikilvægt er að fá fram góða
sögu og nálgast vandann út frá kyni og aldri ein-
staklings auk þess sem taka þarf tillit til aðstæðna
og umhverfis viðkomandi.
Rannsóknir sýna að stór hópur kvenna, sérstak-
lega eftir tíðahvörf, finnur fyrir því sem á fagmáli
er kallað FSD (Female Sexual Dysfunction) sem
mætti lauslega þýða sem kynlífs- eða kynhvatar-
truflun sem byggist oftar en ekki á hormóna-
breytingum. Það er þó umtalsverður hluti kvenna
fyrir tíðahvörf sem hefur svipaðar kvartanir og er
almenna reglan að þetta er vangreint vandamál
hjá báðum hópum og þar af leiðandi vanmeð-
höndlað.
Algengast er að karlmenn eftir miðjan aldur
finni fyrir ristruflun þar sem vandinn getur verið
líkamlegur jafnt sem andlegur, yngri menn geta
lýst svipuðum einkennum en orsakir þeirra eru
sjaldnar líkamlegar. Hér er svipaða sögu að segja
með konurnar, nema umræðan er orðin opnari
gagnvart þessum vanda eldri karla eins og ávís-
anir stinningarlyfja bera með sér. Umræða um
testosteron og nálgun þess hvað varðar líðan og
getu er einnig orðin fyrirferðarmikil.
Hvað er það þá sem ber að hugsa um finni ein-
staklingar til minnkaðrar kynhvatar?
Alþekkt er að andleg og líkamleg þreyta, svefn-
leysi, streita, áhyggjur, vanlíðan og samskipta-
örðugleikar hvers kyns eru stórir áhrifaþættir
hjá báðum kynjum. Áfengi og vímuefni losa um
hömlur en dempa skilningarvitin og samskipti,
þannig dregur úr kynhvöt og ánægju af sam-
lífi. Dæmi um lyf sem geta haft áhrif á kynhvöt
eru háþrýstingslyf, þunglyndislyf, ofnæmislyf,
krabbameinslyf, getnaðarvarna- og hormónalyf.
Mikilvægt er að átta sig á líkamlegum orsökum
og gæta að andlegu jafnvægi en í grundvallar-
atriðum verður að huga að nánd, trausti, opnum
og heiðarlegum samskiptum milli aðila auk þess
að virða þau mörk sem hver einstaklingur setur.
Bylting í lífi kvenna með tilkomu pillunnar
Pillan kom á markað í Banda-
ríkjunum árið 1960 og varð
bylting í lífi kvenna. Carl
Djerassi, stundum nefndur
faðir pillunnar, sem fór fyrir
rannsóknum sem leiddu til
getnaðarvarnarpillunnar sagði
að uppgötvun pillunnar hefði
haft meiri áhrif á líf fólks en
flestar aðrar vísindauppgötv-
anir eftirstríðsáranna. Þessi
smáa en virka getnaðarvörn gaf
stúlkum og konum gríðarlegt
frelsi til þess að ná valdi yfir
eigin líkama og stjórna barn-
eignum sínum. Margar konur
náðu að klára nám í stað þess
að hverfa inn á heimilin til að
sinna börnum og búi. Fyrst um
sinn þóttu einhleypar konur á
pillunni lauslátar og voru litnar
hornauga. En blessunarlega er
það ekki staðan í dag.
„Tilkoma getnaðarvarnapill-
unnar fyrir tæpum fimmtíu
árum leiddi til byltingar í kyn-
frelsi og kynhegðun kvenna,“
segir Guðrún Jónsdóttir, tals-
kona Stígamóta. „Konur gátu
í fyrsta skipti með tiltölulega
öruggum hætti stýrt því hvort
þær urðu þungaðar eður ei.
Þær gátu notið kynlífs án þess
að þurfa að treysta á verjur
ástmanna sinna. Þetta skipti
enn meira máli en ella vegna
þess að á þessum tíma var
þungunarrof ólöglegt.“
TILVERAN
9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R14 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
5
-A
F
B
C
2
2
F
5
-A
E
8
0
2
2
F
5
-A
D
4
4
2
2
F
5
-A
C
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K