Fréttablaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 19
Þorvaldur Gylfason Í DAG Rio de Janeiro – Arg-entína var þrisvar sinnum ríkari en Brasilía mælt í þjóðartekjum á mann þegar löndin tóku sér sjálfstæði, Argentína 1816 og Brasilía 1822. Argentína stóð þá skammt að baki Spánar á þennan kvarða en Brasilía var aðeins hálf- drættingur á við Portúgal. Þegar Argentína var ríkasta land heims árin fyrir aldamótin 1900 var landið átta til tíu sinnum ríkara en Brasilía mælt í tekjum á mann. Á valdatíma Peróns forseta í Arg- entínu 1944-1955 var munurinn fimm- til sexfaldur Argentínu í vil. Síðan hefur dregið saman með löndunum tveim. Nú eru tekjur á mann í Argentínu aðeins um þriðjungi hærri en í Brasilíu. Ýmsir félagsvísar hníga í sömu átt. Árið 1960 gat nýfætt barn í Argentínu vænzt þess að lifa ellefu árum lengur en nýfætt barn í Brasilíu. Nú er munurinn aðeins eitt ár. Meðalævilengd Argentínumanna er nú tæplega 77 ár (eins og hún var á Íslandi 1980) á móti tæplega 76 árum í Brasilíu (Ísland 1975). Brasilía hefur tekið skjótari fram- förum en Argentína. Stefan Zweig í Brasilíu Þetta sá austurríski rithöfundur- inn Stefan Zweig fyrir þegar hann settist að í Brasilíu 1940, gyðingur á f lótta frá Evrópu undan nasist- um. Hann hafði fyrst f lúið til Eng- lands 1934 og þaðan til Bandaríkj- anna og áfram til Brasilíu. Zweig hafði kynnzt Suður-Ameríku á PEN-þinginu í Buenos Aires 1936, heimsþingi rithöfunda þar sem Halldór Kiljan Laxness flutti og fékk samþykkta tillögu til varnar friði og fórnarlömbum fasista í Evrópu. Halldór sagði frá því síðar að Zweig hefði orðað við sig á þinginu þá hugmynd að flytjast til Íslands. En Brasilía varð ofan á. Zweig sagðist aldrei hafa séð fegurri sjón en á innsiglingunni til Rio de Janeiro. Hann bjó þar ásamt konu sinni og í nærsveitum í hálft annað ár, fór víða um landið og gekk frá fjórum bóka sinna til útgáfu: Brasilía: Framtíðarlandið, Manntafl, Veröld sem var og Balzac. Íbúð Zweig-hjónanna í Petro- pólis skammt fyrir norðan Ríó er nú safn til minningar um þau, Casa Stefan Zweig. Manntafl teng- ist Íslandi á þann veg að margir telja að fyrirmynd söguhetjunnar, skáksnillings sem forðast taflborð eins og heitan eld af ótta við að missa vitið, hljóti að vera íslenzki hæstaréttarlögmaðurinn Björn Kalman þar eð þekkt æviatriði hans séu svo nauðalík lýsingum Zweigs í bókinni. Um þessa kenn- ingu hafa m.a. Garðar Sverrisson rithöfundur og Guðmundur G. Þórarinsson fv. alþingismaður birt fróðlegar ritgerðir í Lesbók Morgunblaðsins og verður þeim íslenzka vinkli sögunnar vonandi haldið til haga í Casa Stefan Zweig í Petropólis þar sem Manntafl er í forgrunni safnsins. Fegurð landsins Brasilía: Framtíðarlandið er falleg bók. Zweig lýsir því þar líkt og í sjálfsævisögunni Veröld sem var að hann tapaði öllu tvisvar, fyrst í fyrra stríði og síðan aftur í hinu síðara. Hann leit á sig sem Evrópumann í fyrsta lagi Framtíðin brosir enn við Brasilíu og Austurríkismann í öðru lagi. Að tapa Evrópu aftur í hendur vitfirrtra þjóðrembla olli honum djúpri þjáningu. Þess vegna þótti honum Brasilía svo undurfögur. Hann hafði fundið landið þar sem börnin – allavega á litinn, súkku- laði, mjólk, kaffi – leiðast hlæjandi heim úr skólanum, landið þar sem tunga heimamanna á engin ókvæðisorð eins og þau sem hvítir Bandaríkjamenn nota sumir jafn- vel enn um svarta meðbræður sína og systur. Zweig ýkti. Hann ýkti alltaf, það var hans stíll. Brasilía var ekki alveg laus við fordóma og mismunun þótt minna færi þar fyrir slíku en í Bandaríkjunum eða Evrópu sem stóð í björtu báli og þar sem helförin gegn gyðingum kostaði þegar upp var staðið sex milljónir mannslífa. Að sjá roða nýs dags Þótt Stefan Zweig lyki fjórum snilldarverkum þann stutta tíma sem hann bjó í Brasilíu, þ.m.t. þrjár beztu bækurnar hans að margra dómi, Manntafl, Veröld sem var og Balzac, þá dugði það ekki til að lyfta af honum þungu oki þeirrar þjáningar sem stríðið í Evrópu olli honum, stríð sem enginn gat vitað 1942 hvernig myndi ljúka. Sextugur að aldri, eftir aðeins átján mánaða vist í nýjum heimkynnum sem hann elskaði, ákvað Zweig að stytta sér aldur og þau hjónin bæði saman. Hún hét Elisabet Charlotte Alt- mann, kölluð Lotte, og var 27 árum yngri en hann. Zweig skildi eftir sig bréf sem hangir á vegg í Casa Stefan Zweig. Bréfinu lýkur með þessum orðum í þýðingu Þórarins Guðnasonar læknis: „Svo kveð ég alla vini mína. Vonandi lifa þeir það að sjá roða nýs dags eftir þessa löngu nótt. En mig brestur þolinmæði, og því fer ég á undan þeim.“ Drög að skýrslunni er að finna á www.landsnet.is Við bjóðum til samtals á eftirfarandi stöðum : Reykjavík Þriðjudaginn 14. maí kl. 8.30-10.30 Grand Hótel Akureyri Miðvikudaginn 15. maí kl. 14.00-16.00 Hótel KEA Neskaupstaður Fimmtudaginn 16. maí kl. 14.00-16.00 Safnahúsið Neskaupstað Grundarfjörður Föstudaginn 17. maí kl. 12.30- 14.30 Samkomuhús Grundarfjarðar Hella Mánudaginn 20. maí kl. 12.00-14.00 Stracta Hótel Vestmannaeyjar Mánudaginn 20. maí kl. 19.30-21.00 Akóges Ísafjörður Þriðjudaginn 21. maí kl. 15.00-17.00 Hótel Ísafjörður Komdu og kynntu þér hvað er verið að gera til að tryggja leiðina inn í framtíðina sem við vitum að verður rafmagnaðri en áður. Við kynnum drög að nýrri kerfisáætlun á opnum fundum víðs vegar um landið á næstu vikum. Að kynningu lokinni gefst fundargestum tækifæri til að ræða við fólkið sem vinnur að gerð áætlunarinnar yfir kaffibolla. SAMRÁÐ OG SAMTAL UM DRÖG AÐ KERFISÁÆTLUN 2019–2028 Uppbygging flutningskerfis raforku – Hver er staðan í þinni heimabyggð? S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19F I M M T U D A G U R 9 . M A Í 2 0 1 9 0 9 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :4 9 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 5 -C D 5 C 2 2 F 5 -C C 2 0 2 2 F 5 -C A E 4 2 2 F 5 -C 9 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.