Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 20
Í um tvo áratugi hef ég fjallað töluvert um þróun byggðarinnar í miðbæ Reykjavíkur. Gamli bær
inn í höfuðborg Íslands er ekki stór
en hann var engu að síður merkileg
ur. Það voru ekki hallir eða önnur
glæsileg stórhýsi sem gerðu miðbæ
Reykjavíkur merkilegan. Það voru
þvert á móti litlu húsin, marglitu
bárujárnshúsin og önnur fíngerð
timburhús, íslenska steinsteypu
klassíkin og hús eins og Stjórnar
ráðið. Stjórnarráðið vekur einmitt
athygli fyrir hversu lítil og hófstillt
byggingin er, þrátt fyrir hlutverkið
og hina merku sögu.
Virðingarleysi við söguna
Í ljósi þess hvað miðbær Reykja
víkur er lítill og fíngerður, og byggir
sérstöðu sína á því fremur en öðru,
hefur borgin haft meiri þörf fyrir að
vernda byggðina en nokkur önnur
evrópsk höfuðborg. Það er því
undar legt og oft á tíðum sorglegt
hversu verndunarsjónarmið hafa
átt erfitt uppdráttar í borginni.
Vakning hófst fyrir nærri 50
árum þegar hópur fólks stóð vörð
um Bernhöftstorfuna þegar til stóð
að rífa byggingarnar sem þar standa
og reisa í staðinn nýja stjórnarráðs
byggingu. Síðan þá hefur við og við
verið litið til sjónarmiða verndunar
án þess að þau hafi fest sig í sessi
eins og í öðrum löndum. Síðast varð
vakning í þessum málum snemma á
þessari öld. Þensla þess tíma hafði
getið af sér umfangsmikil áform um
að „byggja yfir“ gamla bæinn. Þau
áform vöktu marga til umhugs
unar og ég taldi að Reykjavík myndi
loksins taka upp stefnu eins og þá
sem ráðið hafði för annars staðar í
Evrópu í hálfa öld. Svo kom banka
hrunið og bjargaði hluta byggðar
innar, um sinn. Ekki leið þó á löngu
áður en rúmmetravæðingin náði
nýjum hæðum í formi stáls, stein
steypu og glers.
Upp við elstu byggð Reykjavíkur
og skáhallt á móti Stjórnarráðinu
og Bernhöftstorfunni hefur farið
fram einhver umfangsmesta upp
bygging miðbæjarins. Á sínum tíma
hafði mér tekist að fá fram endur
skoðun þeirra áforma með það að
markmiði að framkvæmdirnar féllu
betur að umhverfinu. Ekki mátti þó
bregða sér af bæ án þess að allt færi
í fyrra horf.
Hið litla stjórnarráð er nú komið
í annað og nýtt samhengi sem er
síður en svo til þess fallið að undir
strika hinn lágstemmda mikilfeng
leika þess.
Ný stjórnarráðsbygging
Þegar ég var í forsætisráðuneytinu
var aftur farið að skoða hugmyndir
um viðbyggingu við Stjórnarráðið.
Ráðuneytið komast ekki allt fyrir
í gamla húsinu og útlit var fyrir að
það missti skrifstofur sínar í næstu
húsum vegna hótelvæðingar mið
bæjarins. Þörfin bauð þannig upp
á tækifæri til að fegra bakgrunn
hinnar sögufrægu byggingar og
skapa sterka heild.
Nú hefur fjölgað mikið í ráðu
neytinu á skömmum tíma og búið
er að halda samkeppni um hönnun
viðbyggingar. Miðað við niður
stöðurnar virðist ekki hafa verið
veitt skýr leiðsögn um til hvers væri
ætlast.
Vinningstillagan minnir óneitan
lega á stjórnarráðsbygginguna
sem átti á sínum tíma að rísa í stað
gömlu húsanna á næsta reit við
gamla stjórnarráðið. Nú á nýbygg
ingin að standa á bak við þá gömlu
en ekki við hliðina á henni og vissu
lega er um talsvert minni byggingu
að ræða. Ég ætla enda ekki að setja
út á húsin sem slík (hvorki tillögu
ársins 1971 eða 2019) eða að efast
um færni hönnuðanna. Það sem
ég set út á er að slíkt hús sé byggt á
þessum stað í þessum tilgangi.
Þeir eru ekki margir staðirnir í
Reykjavík þar sem varðveist hefur
það sem kallast getur heildstæð
gömul götumynd. Þó hafa austur
hlið Lækjargötu og Bankastrætið
að mestu náð að varðveita söguleg
einkenni sín. Sú staðreynd veitir
stjórnarráðsbyggingunni nauðsyn
legt samhengi og dálítið mótvægi
við þróunina vestan lækjarins.
Tillagan um nýja stjórnarráðið
setur þar strik í reikninginn. Þótt
byggingin sé ekki há fer hún ekki
fram hjá neinum. Byggingin væri
ekki til þess fallin að styrkja merki
legustu heildarmynd bæjarins,
þvert á móti. Heildarmynd í hjarta
Reykjavíkur sem hefur varðveist
vegna sögulegra tilviljana og bar
áttu liðinna áratuga. Vissulega er
lóðin nú óbyggð en í þéttbýli mynda
húsin einingu og geta því ekki bara
skoðast hvert um sig.
Ekki þarf að líta lengra en til Fær
eyja til að finna meiri virðingu fyrir
sögunni en við eigum að venjast í
Reykjavík. Stjórnarráðshverfið á
Þinganesi í Þórshöfn er heildstæð
byggð fallegra gamalla húsa sem
mörg hver eru prýdd torfþaki. Hvers
vegna ekki að nota tækifærið sem nú
gefst til að undirstrika sambærilega
kosti í umhverfi Stjórnarráðsins í
Reykjavík (hvort sem menn vilja
hafa torfþak eða ekki)?
Laxness og
stjórnarráðsbyggingin
Þegar baráttan um Torfuna og nýja
stjórnarráðsbyggingu stóð sem
hæst, árið 1971, ritaði Halldór Lax
ness grein í Morgunblaðið undir
fyrirsögninni „Brauð Reykjavíkur“.
Þar segir skáldið:
„Að öllu þessu athuguðu má segja
meistaranum nafnlausa sem að ofan
getur til hróss, að í staðinn fyrir að
hafa forhliðina eintómar rúður, þá
hefur hann gert ráð fyrir 44 láng
rifum í miðhæðinni á kassa sínum
sem hann kallar „nýa stjórnarráðs
húsið“; en hætt er við að það dugi
honum skamt og muni margur eftir
sem áður tauta fyrir munni sér þetta
Grettluorð: „og komið þér ekki þeim
kassa á mig“.
Ýmsir sem reifað hafa gaungu
móðir um tískuborgir sem svo eru
kallaðar, en það eru þær borgir sem
gánga f ljótast úr tísku, slíkir píla
grímar munu þess minnugir hver
hvíld og hressíng það einatt var
að hitta fyrir sér innanum gler og
plast og ál fornhýsi með yfirsvip
og andblæ liðinna tíða, hlutföll
hvílandi í sjálfum sér og húsið alt í
þokkafullu sambandi við jörð sína
og loft án þess sólin hafi verið gerð
að píslartæki á fólkið. Fyrri menn
stóðu á jörðinni og vissu að him
inninn var á sínum stað en því eiga
menn bágt með að trúa nú á tímum.
Á Bernhöftstorfunni standa enn
fáein heldur lágreist hús. Ef ætti að
brúka um þau lýsingarorð dytti
manni helst í hug að kalla þau yfir
lætislaus vinhlý og prúðmannleg, og
mundu þær einkunnir ekki vera því
fjarri að auðkenna þá menn ýmsa
sem í þá daga settu bæarbraginn í
Reykjavík eða jafnvel töluðu fyrir
landið og þjóðina.“
Væri ekki ráð að viðbygging við
Stjórnarráðshúsið, eitt elsta og sögu
frægasta hús landsins, verði ekki
tískuhús heldur yfirlætislaust, vin
hlýtt og prúðmannlegt og í þokka
fullu sambandi við jörð sína og loft?
Þér hefðuð alla vega ekki komið
þessum kassa á mig.
Samhengislaust stjórnarráð, aftur
Sigmundur
Davíð Gunn-
laugsson
formaður
Miðflokksins
Vinningstillagan.
Stjórnarráðsbyggingar Færeyja.
Væri ekki ráð að viðbygging
við Stjórnarráðshúsið, eitt
elsta og sögufrægasta hús
landsins, verði ekki tísku-
hús heldur yfirlætislaust,
vinhlýtt og prúðmannlegt
og í þokkafullu sambandi
við jörð sína og loft?
ERT ÞÚ SNILLINGUR Í GREININGUM OG
ÚRVINNSLU?
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM AÐILA TIL AÐ SJÁ UM GREININGU OG ÚRVINNSLU GAGNA
FYRIR FRÉTTABLAÐIÐ, FRÉTTABLAÐIÐ.IS, MARKAÐINN OG GLAMOUR.
KONUR JAFNT SEM KARLAR ERU HVÖTT TIL AÐ SÆKJA UM.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Rannsóknir og greiningar
• Söfnun, úrvinnslu og útgáfa upplýsinga
• Framsetning á gögnum
• Skýrslugjöf
Menntun- og hæfniskröfur
• Þekking á Excel
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Reynsla af öflun, greiningu og úrvinnslu gagna
• Reynsla af framsetningu og miðlun upplýsinga í mæltu og rituðu máli
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð íslenskukunnátta
• Færni í mannlegum samskiptum
Umsókn ásamt kynningarbréfi skal senda á storf@torg.is til og með 18 maí.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Helga Viðarsdóttir á johanna@torg.is
9 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R20 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
5
-D
2
4
C
2
2
F
5
-D
1
1
0
2
2
F
5
-C
F
D
4
2
2
F
5
-C
E
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K