Fréttablaðið - 09.05.2019, Page 29
Sumarið leynir sér ekki í sólgylltu hári.
Með skínandi sumarsól er vel hægt að lýsa hárið á náttúrulegan hátt en gæta
þarf varúðar til að hárið brenni
ekki undan efniviðnum sem
notaður er.
l Sítrónusafi lýsir hárið en aðgát
skal höfð þar sem sítrónusýra
getur brennt hárið. Best er að
blanda sítrónusafa saman við
hárnæringu eða kókosolíu til að
verja hárið.
l C-vítamín getur líka lýst hárið
um nokkra tóna. Leysið upp
C-vítamíntöflu í vatni og setjið
í spreybrúsa til að spreyja yfir
hárið í sólinni.
l Vatn blandað salti gerir hárið
ljósara og skerpir á lituðu ljósu
hári. Blandið saman vatni og
smávegis af salti í spreybrúsa og
spreyið í hárið þegar sólin skín.
l Eplaedik fer einkar vel með hárið,
leysir flækjur, gerir það mjúkt,
losar olíu úr hársverðinum og
lýsir hárið. Blandið saman einum
hluta ediks við sex hluta vatns.
Sólkysstir
sumarlokkar
Ariana Grande birti mynd á Insta
gram af skjöldóttum nöglum.
Svart/hvítt mynstur á nöglum er vinsælt um þessar mundir. Sérstaklega hvítt með
svörtum doppum en slíkt nagla-
lakk hafa þær sýnt opinberlega
Ariana Grande og Kendall Jenner.
Tískulöggur kalla þetta skjöldótt
(eins og margar kýr eru) sem hafi
yfir sér mikinn sjarma. Það þarf þó
líklega naglafræðinga til að setja
slíkt mynstur á neglurnar.
Stjörnurnar hafa sýnt nagla-
lakkið á Instagram og fleiri hafa
bæst í kjölfarið. Ef fylgt er #Cow-
PrintNails koma margar myndir
upp. Tískutímaritið Elle segir að
þetta mynstur á nöglum hafi sést á
fyrirsætum hjá Burberry, Mosch-
ino og hjá Victoriu Beckham.
Þá hafa nokkrar stjörnur sést
í stígvélum í sama stíl. Glamour
segir að þetta sé heitasta tísku-
trendið í sumar. Breska Metro
segir að auðvelt sé að naglalakka
sig sjálfur, fyrst með hvítu og setja
síðan svartar doppur á eftir. Blaðið
birtir nokkrar myndir því til stað-
festingar.
Skjöldótt er það
allra heitasta
Fair trade er stefna sem leggur áherslu á sanngjörn viðskipti. Stefnan hefur verið að ryðja
sér til rúms innan tískuiðnaðarins
undanfarin ár. Ýmsir fatafram-
leiðendur leggja áherslu á að öll föt
þeirra séu framleidd á sanngjarnan
hátt. Ef fötin innihalda sanngirnis-
vottunarmerki Fair Trade USA,
Fairtrade International eða Fair For
Life, getur kaupandinn verið nokk-
uð öruggur um að þau séu framleidd
við mannúðlegar vinnuaðstæður.
Til að vefnaðarvara fái sanngirnis-
vottun þarf hún að uppfylla ströng
framleiðsluskilyrði. Meðal annars
að starfsfólkið fái viðunandi laun
og vinni ekki of langan vinnudag.
Fleiri og fleiri leggja áherslu á að
kaupa einungis sanngirnisvottaðar
flíkur og tískusýningar með slíkum
fatnaði hafa sprottið upp víða.
Sanngjörn tíska
Eykur virkni krema sem
draga úr merkjum öldrunar
Double Serum
YFIR KVENNA SAMMÁLA!
88%
1
Gerir húðina
stinnari
Extra-Firming dagkrem
endurvekur uppsprettu
stinnleika húðarinnar.
88% kvenna sögðu
virkni þess aukast
með Double Serum.3
Dregur úr
fínum línum
Multi-Active dagkrem gefur
húðinni frískleika og ljóma.
Með Double Serum verður
það enn áhrifaríkara:
88% kvenna voru sammála.2
Gefur aukinn
ljóma
Super Restorative dagkrem
örvar húðina, sléttir fínar línur
og dregur fram ljóma.
Notað með Double Serum:
91% kvenna upplifðu betri
árangur.4
1 Ánægjupróf á eftirfarandi tvennum: Multi-Active Jour All skin types + Double Serum, Extra-Firming Jour All skin types + Double Serum, Super Restorative Day All skin types + Double Serum.
2 Ánægjupróf-109 konur-28 dagar: 14 dagar með Multi-Active Jour All skin types + 14 dagar með Multi-Active Jour All skin types + Double Serum. 3 Ánægjupróf-103 konur-28 dagar: 14 dagar
með Extra Firming Jour All skin types + 14 dagar Extra Firming Jour All skin types + Double Serum. 4 Ánægjupróf-113 konur-28 dagar: 14 dagar með Super Restorative Day All skin types + 14 dagar
með Super Restorative Day All skin types + Double Serum.
www.lyfogheilsa.is Kringlunni
Glæsilegur kaupauki fylgir ef keyptar eru
vörur fyrir 6.900 kr. eða meira*
*Meðan birgðir endast.
KAUPAUKI
Kynningardagar 9.–12. maí 20% afsláttur af öllum Clarins vörum
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 F I M MT U DAG U R 9 . M A Í 2 0 1 9
0
9
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:4
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
5
-B
9
9
C
2
2
F
5
-B
8
6
0
2
2
F
5
-B
7
2
4
2
2
F
5
-B
5
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K