Fréttablaðið - 16.05.2019, Page 6
Garðtraktorar
fyrir þá kröfuhörðu
Gerir sláttinn auðveldari
ÞÓR FH
Akureyri:
Baldursnes 8
603 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
2 x 1 0
– B A R A G Ó Ð U R –
Í S L E N S K U R G Ó Ð O S T U R
TILBOÐ!
Borgarfulltrúar Mið-
flokksins og Flokks
fólksins skrifuðu undir
ársreikning Reykjavík-
urborgar með fyrirvara.
Forseti borgarstjórnar
sakar fulltrúana um
lélega niðurrifspólitík.
REYKJAVÍK Það var mikill hiti á fundi
borgarstjórnar í kringum undirritun
ársreiknings borgarinnar. Borgar
fulltrúar Miðf lokksins og Flokks
fólksins skrifuðu undir ársreikning
Reykjavíkurborgar með fyrirvara
um að ekki væri verið að leggja
blessun sína yfir fjárútlát sem fóru
fram úr fjárheimildum í fyrra.
Sjálfstæðismenn létu álit frá
Trausta Fannari Valssyni, dósent
við lagadeild HÍ, fylgja sinni undir
ritun. Þar kemur fram að undirrit
un feli ekki í sér samþykki á ólög
mætum fjárheimildum. Álit Trausta
Fannars átti ekki að koma fram
fyrr en á borgarráðsfundi í dag og
bað Örn Þórðarson, borgarfulltrúi
f lokksins, um frestun á undirritun
þar til búið væri að birta álitið.
Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri
grænna, sagði það reginhneyksli
að vísa í álit sem væri ekki komið
fram. „Ég næ ekki þessari umræðu.
Mér finnst þetta hneyksli. Regin
hneyksli að vera að vísa í álit sem
hefur enn ekki verið lagt fram.“
Í minnisblaði fjármálaskrifstofu
borgarinnar frá því í mars kemur
fram að undirritun ársreiknings
jafngildi því að samþykkja öll fjár
útlát sama hvort þau hafi farið fram
úr fjárheimildum eða ekki. Vigdís
Hauksdóttir, borgarfulltrúi Mið
flokksins, var ekki búin að ákveða
sig fyrir fundinn, hvort hún ætlaði
yfirleitt að skrifa undir ársreikning
inn. „Ef fjármálaskrifstofan hefur
rétt fyrir sér værum við þá að sam
þykkja allt sem var ekki búið að fá
heimild fyrir á síðasta ári, eins og
Mathöllina á Hlemmi og Braggann.
Það tvennt eru 150 milljónir. Þetta
stenst ekki neina einustu skoðun,“
segir Vigdís.
Fyrir helgi sendi endurskoð
unarstofan Grant Thornton bréf á
borgarfulltrúa að beiðni fjármála
skrifstofunnar þar sem segir að
borgarfulltrúum beri að undirrita
ársreikninginn nema hann sé bein
línis rangur. Kolbrún Baldursdóttir,
borgarfulltrúi Flokks fólksins, telur
minnisblaðið runnið undan rifjum
meirihlutans. „Það er alveg ljóst að
borgarstjóri þolir ekki tilhugsunina
um að fá einhverja fyrirvara inn í
þetta. Og það hefur sennilega aldr
ei gerst.“
Dóra Björt Guðjónsdóttir, forseti
borgarstjórnar, er ekki sátt við mál
flutning minnihlutans. „Mér finnst
þetta bera vott um skilningsleysi á
grundvallaratriðum í stjórnsýslu
borgarinnar. Opinberar bæði van
þekkingu og pólitískan vilja til þess
að skemma fyrir meirihlutanum,
alveg sama hvað. Þetta er léleg
niðurrifspólitík,“ segir Dóra Björt.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, for
maður borgarráðs, hafnaði alfarið
málflutningi borgarfulltrúa minni
hlutans. „Þetta er ekki kúgun frá
meirihlutanum, þetta er ekki mín
skoðun, þetta eru bara staðreyndir,“
sagði Þórdís Lóa á fundi borgar
stjórnar. „Ekki bulla, verum ábyrg,
til þess erum við kosin. Við erum
ekki hér til að fara með f leipur,
rugla og róta upp til að halda vit
leysunni gangandi.“
Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi
Viðreisnar, segir ársreikninginn
einfaldlega lýsa f járhagsstöðu
borgarinnar. Hann tekur fram að
hann vilji ekki segja öðrum borg
arfulltrúum fyrir verkum. „Ytri og
innri endurskoðun hafa lýst skoðun
sinni um að hann sé tækur til undir
ritunar og ég hef enga ástæðu til að
draga það í efa.“ arib@frettabladid.is
Ársreikningur veldur
harðvítugum deilum
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, var ekki sátt við að undirrita ársreikninginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ég næ ekki þessari
umræðu. Mér finnst
þetta hneyksli. Regin-
hneyksli að vera að vísa í álit
sem hefur enn
ekki verið lagt
fram.
Líf Magneudóttir,
borgarfulltrúi
Vinstri grænna.
BANDARÍKIN Ríkisstjórar fjögurra
bandarískra ríkja, Georgíu, Ken
tucky, Mississippi og Ohio, hafa
það sem af er ári undirritað nýja
og herta löggjöf um þungunarrof.
Valdhafar í ríkjunum fjórum hafa
nú bannað þungunarrof ef hægt er
að greina hjartslátt fósturs.
Samkvæmt Breska ríkisútvarp
inu benda andstæðingar þessara
hertu laga á að með þeim sé í raun
verið að banna þungunarrof nærri
alfarið. Hjartsláttur getur fyrst
greinst á sjöttu viku og svo snemma
viti stór hluti óléttra ef til vill ekki
af óléttunni.
Alabama bættist í þennan ríkja
hóp á þriðjudag og bannaði þung
unarrof nema ólétt kona sé í bráðri
lífshættu. Öldungadeild ríkisþings
ins í Alabama hafnaði því aukin
heldur með 25 atkvæðum gegn sex
að undanþágur yrðu gerðar í þeim
tilfellum þar sem ólétta kom til við
nauðgun eða sifjaspell.
Samkvæmt nýju löggjöfinni í Ala
bama geta þeir læknar sem fram
kvæma þungunarrof átt von á allt
að 99 ára fangelsisdómi. Þeim sem
vilja láta rjúfa meðgöngu sína verð
ur hins vegar ekki refsað. Stjórn
málamenn úr f lokki Repúblikana
stóðu fyrir löggjöfinni í öllum ríkj
unum fimm.
Demókratar hafa gagnrýnt þessar
aðgerðir andstæðinga sinna harð
lega, en frumvörp um herta þung
unarrofslöggjöf eru til umræðu
í 28 ríkjum Bandaríkjanna. Þeir
Demókratar sem nú sækjast eftir
útnefningu f lokksins til forseta
framboðs töluðu af hörku gegn
frumvörpunum og nýju lögunum
í kosningabaráttunni. Öldunga
deildarþingmaðurinn Bernie Sand
ers, sem mælist næstvinsælastur
frambjóðenda, sagði til að mynda
að löggjöfin í Alabama bryti gegn
stjórnarskrá og hundsaði réttindi
kvenna til yfirráða yfir eigin lík
ama. – þea
Harðnandi aðför að fóstureyðingum
Lengi hefur verið deilt um fóstureyðingar vestanhafs. NORDICPHOTOS/AFP
SAMFÉLAG Nokkrir eigendur fast
eigna á Grandanum freista þess nú
að koma í veg fyrir starfrækslu gisti
skýlis fyrir heimilislausa á svæðinu
með kæru til úrskurðarnefndar
umhverfis og auðlindamála.
Í nóvember samþykkti borgarráð
kaup á húsnæði við Grandagarð
undir gistiskýli fyrir unga heimilis
lausa karlmenn í verulegum vímu
efnavanda. Gistiskýlið mun rúma
15 einstaklinga í einu og verða opið
frá 17 síðdegis til tíu á morgnana.
Krafist er ógildingar á leyfisveit
ingu til innréttingar gistiskýlisins
með vísan til þess að starfsemin
samræmist hvorki skipulagsáætlun
um né lóðarleigusamningi. Borgin
telur hins vegar að um þjónustu
starfsemi sé að ræða og því í fullu
samræmi við skipulag svæðisins.
Kærendur telja star f ræk slu
gistiskýlis ekki samræmast þeirri
starfsemi sem fyrir er á svæðinu en
í kærunni er svæðinu lýst sem einu
mest spennandi svæði borgarinnar
undir veitinga og verslunarstarf
semi og raunar undir allar tegundir
atvinnustarfsemi, hönnunarvinnu
og nýsköpunar. Fjöldi fyrirtækja
á Grandanum aukist hratt, mikill
áhugi sé á vannýttu húsnæði og
lóðum og fjöldi gesta á svæðinu fari
hratt vaxandi.
Verulegum áhyggjum er lýst af
því að gistiskýli falli illa að starf
seminni á svæðinu og muni verða
til þess að hamla frekari þróun og
uppbyggingu þar. Vísað er til þess
að gistiskýlið verði sérstaklega
ætlað sprautufíklum og um þá segir
í kærunni: „Ljóst er að slíkum hópi
manna munu fylgja ýmiss konar
félagsleg vandamál sem munu koma
harkalega niður á þeirri starfsemi
sem nú blómstrar á svæðinu.“
Ekki er þó skýrt nánar í kærunni
hvernig umrædd félagsleg vanda
mál muni bitna á hinni blómlegu
starfsemi. – aá
Kæra áform um gistiskýli
Reykjavíkurborg hyggst opna gistiskýli úti á Granda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
0
1
-A
E
D
C
2
3
0
1
-A
D
A
0
2
3
0
1
-A
C
6
4
2
3
0
1
-A
B
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K