Fréttablaðið - 16.05.2019, Blaðsíða 18
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Fullyrða má
að engri konu
er léttvæg
ákvörðun að
fara seint í
þungunarrof.
Við höfum í
gegnum
aldirnar lært
að gera mikið
úr litlu og
þurft að nýta
allt sem til
fellur því oft
hefur verið úr
litlu að moða.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Þessa dagana er unnið hörðum höndum við nýtt skipulag Reykjavíkurborgar, vegferð sem við lögðum upp í fyrr á árinu. Markmiðið er
að einfalda kerfið en einnig að skýra og skerpa á
hlutverkum og ábyrgð innan borgarinnar. Hryggjar-
stykki breytinganna er að draga fjármálin framar í
skipulagi borgarinnar. Það þýðir að allt eftirlit með
fjármálum verði eflt og leitað eftir meiri hagkvæmni
í öllum okkar innkaupum.
Af hverju er það gert? Jú, okkur er umhugað um
að fara vel með fé almennings. Við viljum tryggja
að haldið sé eins vel og kostur er utan um hverja
þá krónu sem við ráðstöfum fyrir hönd borgarbúa.
Íslenskt samfélag kallar á hagsýni. Við höfum í
gegnum aldirnar lært að gera mikið úr litlu og þurft
að nýta allt sem til fellur því oft hefur verið úr litlu
að moða.
Rekstur borgarinnar er í eðli sínu flókinn. Hjá
borginni starfa níu þúsund einstaklingar og verk-
efnin eru mörg. Í f lóknum rekstri er góð fjármála-
stjórn nauðsynleg. Heildaryfirsýn og aðgát í rekstri
eru lykilþættir velferðar allra borgarbúa. Tryggja
þarf gott eftirlit með innkaupum og framkvæmdum
og að hvergi sé krónum kastað á glæ. Við viljum leita
allra leiða svo borgin njóti bestu mögulegu kjara við
öll innkaup og til að tryggja það að skipulag starfa
og reksturs sé framúrskarandi. Með því getum við
skilað raunverulegum ábata til borgarbúa í formi
bættrar þjónustu og lægri gjalda, til dæmis með
lækkun fasteignagjalda, afslætti til eldri borgara og
lækkun útgjalda fyrir barnafjölskyldur.
Það var því sérstakt gleðiefni að sjá ársreikning
síðasta árs, en þar sést góð afkoma Reykjavíkur-
borgar vel. Ekki er einungis afgangur frá rekstri
borgarinnar heldur skilar borgin, og fyrirtæki í
hennar eigu, hagnaði. Stefna okkar að sjálf bærum
rekstri, aukinni hagræðingu og niðurgreiðslu skulda
er skýr. Slíkur árangur næst með samhentu átaki
stjórnmálanna og alls starfsfólks borgarinnar og
undirstrikar þann einlæga ásetning okkar að standa
vörð um hagsmuni borgarbúa í einu og öllu.
Förum vel með almannafé
Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir
oddviti Viðreisn-
ar og formaður
borgarráðs
Þau Aura svo á mig
Borga
Rukka
Skipta
Þingmenn í Alabama í Bandaríkjunum hafa samþykkt nýtt frumvarp sem bannar þungunarrof nema þegar þarf að bjarga lífi konunnar. Á ferðinni er strangasta löggjöf í landinu í þessum efnum.
Konur sem verða þungaðar eftir nauðgun eða
kynferðislega misnotkun ættingja eru neyddar til
að fæða barnið. Læknirinn sem sýnir aðstæðum
þeirra skilning og notar kunnáttu sína til að koma
í veg fyrir fæðingu við ömurlegar aðstæður brýtur
lög og getur átt yfir höfði sér 99 ára fangelsi. Skýrar
línur í Alabama.
25 öldungadeildarþingmenn í ríkinu sögðu já við
frumvarpinu á meðan sex sögðu nei.
Svokallaður Roe v. Wade dómur féll í hæstarétti
Bandaríkjanna árið 1973. Hann leiddi fóstureyð-
ingar í lög í öllum ríkjum Bandaríkjanna. Í málinu
reyndi á hvort lög sem bönnuðu fóstureyðingar og
voru sett af löggjafarþingi í Texas stæðust ákvæði
í stjórnarskrá um friðhelgi einkalífs. Meirihluti
hæstaréttar komst að þeirri niðurstöðu að svo væri
ekki. Lögin skertu um of rétt kvenna til að gangast
undir fóstureyðingu. Þessi dómur hefur verið
umdeildur síðan hann féll og hefur reynst þrætuepli
á milli frjálslyndra og íhaldsmanna í Bandaríkj-
unum svo áratugum skiptir.
Afturhaldið sigraði í Alabama í vikunni. Ef ríkis-
stjórinn, Kay Ivey, undirritar og staðfestir lögin
fylla þau f lokk 300 lagabálka sem vefengja rétt
kvenna til þungunarrofs í Bandaríkjunum. Slík lög
hafa verið innleidd í 16 af 50 ríkjum á þessu ári.
Sem betur fer eiga viðhorfin frá Alabama ekki
upp á pallborðið hér heima. Afturhaldið laut í lægra
haldi á íslenska þinginu í vikunni. Á meðan félagar
okkar vestanhafs grafa undan mannréttindum,
líkt og þeirri sjálfsögðu kröfu kvenna að ráða yfir
eigin líkama, var ein framsæknasta löggjöf um
þungunarrof sem til er samþykkt á Alþingi. Fjörutíu
þingmenn greiddu frumvarpinu atkvæði sitt, en 18
voru á móti.
Fjórða grein frumvarpsins, sem mælir fyrir um
heimild konu til að rjúfa þungun til loka 22. viku,
virtist einna helst vefjast fyrir andstæðingum frum-
varpsins. 96 prósent þungunarrofa fara fram fyrir
tólftu viku meðgöngu, þrjú prósent fyrir sextándu
viku og aðeins eitt prósent eftir þann tíma. Deilt er
um örfá tilvik. Fullyrða má að engri konu er léttvæg
ákvörðun að fara seint í þungunarrof. En stað-
reyndin er sú að framkvæmdin er við sama tíma-
mark með nýrri löggjöf, en konan tekur ákvörðun-
ina sjálf, í stað nefndar embættismanna.
Mikilvægasta skref sem hefur verið stigið í kven-
frelsisbaráttunni er réttur konu til að ráða yfir
eigin líkama. Konur eru fullfærar um að gangast við
þeirri ábyrgð, í orði og á borði.
„Hennar líf, hennar líkami, hennar ákvörðun,“
líkt og einn þingmaður komst svo vel að orði.
40 – 18.
40 – 18
Davíð í Miðflokkinn
Leiðarahöfundur Morgun
blaðsins, sem er líklegast Davíð
Oddsson ritstjóri, tók óvænta
stefnu þegar hann beinlínis
sagði það ekki harmsefni að
Sjálfstæðisf lokkurinn liði undir
lok. Benti hann réttilega á að
stjórnmálaf lokkar eru ekki
eilífir, líkti hann svo f lokknum
sem hann stýrði í áraraðir við
Íhaldsf lokkinn danska sem
er farinn úr því að vera valda
f lokkur í jaðarf lokk. Davíð
hefur lengi dásamað Miðf lokk
inn og leiðtoga hans – nú þegar
hann er búinn að segja skilið við
Sjálfstæðisf lokkinn þá hlýtur
hann endanlega að vera kominn
yfir í Miðf lokkinn.
Eilífðarvélin
Davíð líkir stefnubreytingum
í takt við tíðarandann við
eilífðarvél, þ.e.a.s. tilgangslaust
apparat sem stoppar alltaf að
lokum. Pirringinn í Hádegis
móum má að þessu sinni rekja
til nýrra laga um þungunarrof,
sem könnun Fréttablaðsins
leiddi í ljós að átta af hverjum
tíu í yngsta þjóðfélagshópnum
styðja. Allt þetta vekur óneitan
lega upp spurninguna hvort það
sé ekki einmitt öfugt, að stjórn
málaf lokkar líði undir lok ein
mitt þegar þeir skipta aldrei um
stefnu og aðlagast ekki nýjum
tímum. Annars eiga þeir á hættu
að enda með 13,7 prósenta fylgi
og sækja það aðeins til elstu
þjóðfélagshópanna.
arib@frettabladid.is
1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
0
1
-9
1
3
C
2
3
0
1
-9
0
0
0
2
3
0
1
-8
E
C
4
2
3
0
1
-8
D
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K