Fréttablaðið - 16.05.2019, Síða 24
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
SMART FÖT, FYRIR SMART KONUR
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@
frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr
Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Ég pæli mjög mikið í hverju ég klæðist fyrir sviðið og hef mjög gaman af því að vera
áberandi eða öðruvísi. Það fer allt
eftir hvaða tónleikastað ég er að
koma fram á, ef ég er að syngja á
menntaskólaballi þá klæðist ég
kannski meira töffaralega, en ef ég
er að koma fram fyrir fjölda fólks
erlendis þá er ég í meira áberandi
„edgy“ fötum,“ segir söngkonan
Bríet.
Fataval tónlistarmanna á tón-
leikum verður oftast að vera í
takt við tónlistina og sýninguna
sem henni fylgir, en Bríet segir að
hún sé alls ekki alltaf í eins fötum
og velji sér klæðnað eftir skapi.
„Fólk spyr mig oft hvort ég sé
alltaf klædd í einhverjum geðveikt
áberandi stíl, en það er alls ekki
þannig. Ef ég er bara róleg í skapi
eða þreytt þá er ég bara í kósíföt-
um, ef mig langar að vera skvísa þá
klæði ég mig eins og svaka skvísa.
Svo daginn eftir er ég kannski í
geðveikt fríkuðum fötum.
En maður er að túlka sjálfan sig
með fatavali. Það fer mjög mikið
eftir hvernig þú klæðir þig hvort
fólk taki þig alvarlega, eða þá hvort
fólk viti að þú ert að taka það sem
þú ert að gera alvarlega sjálf. Þann-
ig að það skiptir alveg máli hvernig
maður klæðir sig hverju sinni.“
Miklar breytingar
Bríet segir að fatasmekkur sinn
hafi breyst mjög mikið í gegnum
ferilinn. „Ekkert endilega út af því
að tónlistin mín er að breytast,
ég sjálf er að breytast, eldast, og
uppgötva hvað mér finnst kúl og
gaman að hverju sinni.“
Tónlistarferillinn hefur þó
sannarlega tekið miklum breyt-
ingum á þessu tímabili breytinga á
fatavali, en hann hófst þegar Bríet
var 15 ára og fór að syngja á veit-
ingastöðum. „Ég hafði alltaf verið
að leika mér og syngja, en þarna
byrjaði ég að koma fram og var þá
að syngja djasslög, blús, og hægar
útsetningar á popplögum. Út frá
þessum giggum kynntist ég svo
Pálma Ragnarssyni, sem er pródú-
serinn minn í dag. Þá byrjuðum
við að taka upp tónlist saman,
semja og gefa út lög. Þannig byrjaði
þetta allt,“ segir hún.
Í útrás
Bríet verður í útrás í sumar og fer
bæði til London og Ítalíu. Í London
ætlar Bríet að taka upp lag sem
hún er að vinna með þarlendum
pródúserum og kemur út bráðlega.
„Síðan er ég að fara að taka upp
tónlistarmyndband, og spila í
brúðkaupi á Ítalíu. Erlendi mark-
aðurinn er búinn að vera opinn
fyrir mér frá fyrsta laginu sem ég
gaf út. Það er allt að blómstra núna
og sumarið er pakkað af vinnu
fyrir mig. Það hefur alltaf verið
stefnan að fara út fyrir landstein-
ana, þess vegna hef ég haldið bæði
í enskuna og íslenskuna í lögunum
mínum. Það stendur allavega til
boða þegar rétti tíminn kemur.“
Það virðist vera að sá tími sé
kannski kominn, London og Ítalía
bíða Bríetar og kannski f leiri
staðir í heiminum. Íslensk tónlist
virðist vera að gera það gott úti í
heimi. Við vitum allavega að Bríet
blómstrar í tónlistarsenu Íslands
í dag og virðist vera komin til að
vera.
solrunfreyja@frettabladid.is
Bríet árið 2015 þegar hún tók þátt í sjónvarpsþættinum Ísland Got Talent.
Maður er að túlka
sjálfan sig með
fatavali. Það fer mjög
mikið eftir hvernig þú
klæðir þig hvort fólk taki
þig alvarlega, eða þá
hvort fólk viti að þú ert
að taka því sem þú ert að
gera alvarlega sjálf.
Framhald af forsíðu ➛
Bríet segir að
fatasmekkurinn
hafi mikið
breyst í gegnum
tíðina. Hverju
hún kýs að
klæðast áður
en hún stígur
á svið fer eftir
hvort hún sé
til dæmis að
spila á mennta-
skólaballi eða í
stórum sal fyrir
erlenda tón-
leikagesti. Fata-
valið verður að
vera í takt við
tónlistina og
sýningunni sem
henni fylgir.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
0
1
-C
C
7
C
2
3
0
1
-C
B
4
0
2
3
0
1
-C
A
0
4
2
3
0
1
-C
8
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K