Fréttablaðið - 16.05.2019, Page 26

Fréttablaðið - 16.05.2019, Page 26
Það getur komið sér vel fyrir karla að kunna að bjarga sér með nál og tvinna og geta tyllt sér niður við saumavél til að gera við saumsprettur í vösum, festa tölur eða stytta buxur þegar þannig ber við,“ segir Elín- borg Ágústsdóttir, bókavörður og nemi í kjólasaumi og klæð- skurði. Elínborg verður í dag með örnámskeið fyrir karla í minni- háttar fataviðgerðum í Sauma- horninu sem opnað var í Borgar- bókasafninu í Árbæ í október og Gott fyrir karla að geta gert við saumsprettur Fataviðgerðir fyrir karla verða kenndar á örnámskeiði í saumahorni Borgarbókasafnsins í Árbæ síðdegis í dag þegar Elínborg Ágústsdóttir sýnir handtök við minniháttar fataviðgerðir. Elí nborg Ágústsdóttir starfar nú sem bókavörður en tekur senn sveinspróf í kjólasaumi. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI hefur vakið mikla lukku meðal notenda. „Það er í anda aukinnar umhverfisvitundar að vera nýtinn á föt sín. Því gagnast mörgum að verða sjálf bjarga við sauma- vélina og geta gert við f líkurnar í stað þess að henda þeim og kaupa nýjar þegar lítils háttar viðgerð getur gert f líkina eins og nýja,“ segir Elínborg sem hlakkar til að taka á móti áhugasömum í Saumahorninu í dag. Þar er að finna þrjár saumavélar, þar af tvær venjulegar og eina overlock- vél, en einnig er góð aðstaða til að taka upp snið. Því geta gestir saumað frá grunni en líka komið með f líkur sem þarfnast viðgerð- ar, en miðað er við að þeir sem nota saumavélar Saumahornsins séu að mestu sjálf bjarga, nema þegar boðið er upp á skipulagða fræðslu. „Ég ólst upp við að mamma bætti fötin mín með fallegum bótum og bætur eru einmitt að koma inn aftur núna. Það er enda ekkert púkalegt við að vera í bættum fötum; þvert á móti ber það vott um umhverfisvitund, nýtni og hagsýni og það eru ein- mitt þau góðu gildi sem eru að koma sterkt inn núna þegar kapp er lagt á vistvænan lífsstíl,“ segir Elínborg. Alls ekki svo flókið Elínborg á allt eins von á að örnámskeiðið verði endurtekið ef viðtökur verða góðar í dag. „Karlar sjá stundum fyrir sér að saumaskapur sé þeim ógjörningur en þetta er alls ekki svo f lókið. Þessi bjargræði hafa lengi verið kennd í handavinnu- tímum grunnskólanna og því er námskeiðið í dag svolítið hugsað fyrir eldri kynslóðirnar sem lærðu þetta ekki í skólum,“ útskýrir Elínborg sem liggur ekki á liði sínu við að miðla handverkinu. „Það eru margir karlar sem finna sig í handavinnu og ekki síst prjónaskap en kannski sjaldnar við saumavélina. Ég hef því trú á að margir karlar taki því fegins hendi að læra að gera við göt í vösum og festa á tölur í stað þess að leggja f líkum sem annars nýtt- ust þeim áfram.“ En flókið á köflum Nú á vordögum tekur Elínborg sveinspróf í kjólasaumi frá Tækni- skóla Íslands. „Ég er búin að ljúka náminu og tek sveinspróf á næstu dögum, en á meðan ég er enn ekki orðin sveinn má ég ekki kalla mig annað en nema þar sem starfsheitið er lögverndað. Ég ákvað að fara í námið vegna þess að ég var orðin þreytt á stærðfræði og bóklestri og langaði að vinna með hönd- unum,“ upplýsir Elínborg sem í náminu lærði að teikna föt, snið- gerð, saumaskap og allt handverk sem fellur til við kjólasaum og klæðskurð. „Námið var skemmtilegt og f lókið á köf lum en það er persónu- bundið hvernig slíkt liggur fyrir manni. Við byrjuðum þrjár vin- konur í náminu en ein fann f ljótt að það átti ekki við hana á meðan við hinar fundum okkur strax á réttri hillu. Maður græðir alltaf á því að mennta sig og kjólasaumur er ágætis aðal- eða aukabúgrein. Ég hlakka til að takast á við enn meiri saumaskap í framtíðinni,“ segir Elínborg. Örnámskeið Elínborgar stendur yfir í Borgarbókasafninu í Árbæ frá klukkan 17 til 18.30 í dag, 16. maí. Námskeiðið er frítt og allir vel- komnir, jafnt konur sem karlar. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Nú er í tísku að gera við föt sín í stað þess að henda þeim á haugana og kaupa ný. Því er tilvalið að læra að stytta buxur, festa tölur eða sauma göt. Það er ekkert púkalegt við að vera í bættum fötum; þvert á móti ber það vott um umhverfisvitund, nýtni og hagsýni. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Str. S-XXL Kjóll Kr. 10.900.- Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna FLOTT FÖT, FYRIR FLOTTAR KONUR NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 1 6 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :3 3 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 0 1 -C 7 8 C 2 3 0 1 -C 6 5 0 2 3 0 1 -C 5 1 4 2 3 0 1 -C 3 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 1 5 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.