Fréttablaðið - 16.05.2019, Page 28
Ritstjórinn Ham-
ish Bowles hefur
mikla ástríðu fyrir
tísku. Hann er
óhræddur við að
fara nýjar leiðir og
klæðast djörfum
litum.
Hamish Bowles, einn ritstjóra Vogue, er óhræddur við að fara óhefðbundnar leiðir í
fatavali. Hann vakti mikla athygli
á Met Gala fjáröflunarhátíðinni í
New York á dögunum þegar hann
mætti í fjólubláum alklæðnaði
eftir John Galliano hjá Maison
Margiela tískuhúsinu í París.
Hann klæddist jakka bundnum
saman með fjólubláum borða og
eins konar buxnapilsi. Við þetta
skartaði hann fjólubláum sokka-
buxum og fjólubláum skóm með
lágum hæl og hafði íburðarmikla
skikkju á herðunum, marglita með
fjólubláum undirtón. Skikkjan
var búin til úr málmþráðum,
angóraull og strútsfjöðrum svo
eitthvað sé nefnt. Heildarútlitið
var fullkomnað með marglitu hári
ritstjórans sem tónaði vel við lita-
dýrðina í skikkjunni.
Hamish Bowles klæddist líka
litskrúðugri skikkju á Met Gala
árið 2018. Skikkjan var frá Val-
entino Haute Couture og undir
henni klæddist hann fjólubláum
jakkafötum. Bowles segist hafa
beðið Valentino að hanna fyrir
sig skikkju með litskrúðugum
vængjum í stíl við það sem hann
hafði séð á trúarlegum málverkum
frá 14. öld. En þema Met Gala í
fyrra var tíska og kaþólsk trú.
Fjólublár litur er greinilega
í miklu uppáhaldi hjá Hamish
Bowles þessa dagana. Á 350 ára
afmælishátíð Garnier óperu-
hússins í París, fyrr í mánuðinum,
mætti hann í fjólubláum flauels-
jakkafötum prýddum útsaum-
uðum fjólubláum, bleikum og
hvítum blómum. Á tískuvikunni
í London í september á síðasta ári
mátti sjá Bowles klæddan köfl-
óttum, ljósfjólubláum Savile Row
jakkafötum frá Huntsman. Upp
úr bláum og brúnum Christian
Louboutin skóm mátti sjá glitta í
fjólubláa sokka.
sandragudrun@frettabladid.is
Litskrúðugur
karakter
Í fjólubláu
flaueli í 350 ára
afmæli Garnier
óperuhússins í
París.
Vænghaf á Met Gala 2018.
Skikkjan í allri sinni dýrð.
Hamish Bowles mætir á Met Gala 2019 í fötum frá Maison Margiela.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
6
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:3
3
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
0
1
-B
3
C
C
2
3
0
1
-B
2
9
0
2
3
0
1
-B
1
5
4
2
3
0
1
-B
0
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K